Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Birgir Olgeirsson skrifar 21. mars 2026 14:47 Finnbogi Jónasson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra Greiningardeild ríkislögreglustjóra undirbýr nú mat á því hvort erlend ríki eða aðrir hagsmunaaðilar kunni að reyna að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið.
Horft er til þess hvort aðilar utan Íslands kunni að vilja veikja Evrópusambandið, styrkja það, eða hafa sérstakan hag af því að Ísland gangi inn vegna auðlinda landsins. „Það sem við munum líklega byrja á því að gera er að leggja þetta fyrir okkur og meta áhættuna. Við gerum einhvers konar ógnarmat eða áhættumat varðandi þær hættur sem geta stafað af svona kosningum,“ segir Finnbogi Jónasson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra. Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, þegar þær handsöluðu varnarsamstarf nýlega. Bluesky-síða Kaju Kallas Hann segir upplýsingar frá erlendum samstarfsaðilum sýna að reynt hafi verið að hafa áhrif á kosningar í öðrum ríkjum. Því verði líka að taka alvarlega að sambærilegar tilraunir geti beinst að Íslandi, meðal annars með áróðri, þrýstingi á kjósendur, ólöglegri fjármögnun eða hótunum gegn þeim sem taka þátt í opinberri umræðu.„Þannig að það er í rauninni mat þeirra kannski að það sé líklegt að það verði reynt að hafa áhrif á kosningar hér líka,” segir Finnbogi. Hann segir að þar geti komið við sögu ríki sem vilja annaðhvort veikja Evrópusambandið eða styrkja það. Þá sé líka horft til þess að sum ríki eða aðrir aðilar kunni að sjá sér hag í því að Ísland verði hluti af sambandinu vegna auðlindanna sem hér er að finna. Í Evrópu séu þekkt dæmi um afskipti af hálfu rússneskra leyniþjónusta og einnig hafi komið upp sögur um hópa tengda stjórnvöldum í Kína. „Það eru ríki sem gætu séð hag í því að Ísland sé hluti af Evrópusambandinu, þau hafi mögulega einhvers konar auðlindir sem að menn sjá fyrir að þeir gætu sótt í,” segir Finnbogi. Dæmi um umræðu af þessu tagi sást í Slóveníu í vikunni, þar sem forsætisráðherrann sakaði erlenda aðila um afskipti af þingkosningum eftir fréttir um heimsókn fulltrúa frá ísraelska njósna- og ráðgjafarfyrirtækinu Black Cube. Emmanuel Macron Frakklandsforseti sagði jafnframt að fyrir lægju skýr og skjalfest merki um utanaðkomandi afskipti og rangfærslur fyrir kosningarnar þar.
Lögreglan Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Evrópusambandið Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira