„Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Árni Sæberg skrifar 17. apríl 2026 12:05 Sigmar, til hægri, vísaði ásökunum Sigmundar á bug. Vísir Formaður Miðflokksins segir stjórnarliða annað hvort viljandi eða óviljandi hafa sagt þinginu og þjóðinni ósatt varðandi eðli þeirra viðræðna við Evrópusambandið, sem kosið verður um í ágúst. Þingmaður Viðreisnar vísar því á bug og segir ekki hægt að plata þjóðina inn í ESB.
Fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið var enn og aftur til umræðu á Alþingi í morgun, nú undir liðnum störf þingsins. Þar kvaddi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sér hljóðs og vísaði í grein í Morgunblaðinu í dag þar sem segir að aðildarviðræður við Evrópusambandið feli samtímis í sér aðlögun að reglusafni sambandsins meðan á viðræðunum stendur. Blaðið segir að þetta hafi komið skýrt fram í samningsafstöðu ESB þegar aðildarviðræður hófust árið 2010. Málið fram komið á fölskum forsendum Sigmundur sagði því ljóst að stjórnarliðar hefðu því annað hvort viljandi eða óviljandi sagt þinginu og þjóðinni ósatt. „Það liggur nú ljóst fyrir að takist að endurvekja viðræðurnar, þá þarf að gera það á þeim forsendum sem lagt var upp með. Evrópusambandið sjálft gerði grein fyrir því, lagði línurnar, og þar kemur skýrt fram að þessar viðræður munu ekki snúast um að sjá hvað er í boði. Áframhald viðræðna myndi eingöngu snúast um áframhaldandi aðlögun að Evrópusambandinu og umfangsmikla aðlögun.“ Með öðrum orðum væri máli fram komið á fölskum forsendum og þingheimur gæti ekki rætt það á þeim forsendum. Því legði hann fram beiðni til forseta um að gefið yrði svigrúm í dagskrá þingsins fyrir sveitarstjórnarkosningahlé til þess að ræða þetta mál sérstaklega Vísar ásökunum um blekkingar á bug Fleiri þingmenn stjórnarandstöðunnar komu svo í pontu og lýstu svipuðum skoðunum en Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, var hins vegar á öðru máli. Hann sagði að þingið eigi að kalla eftir þeim upplýsingum sem þarf til að vinna málið vel í þinginu. Hann sagðist þá vilja gera athugasemdir við allt tal um blekkingar í málinu. „Þetta tal um að það sé einhvern veginn verið að reyna að plata þjóðina. Þetta tal um það að ríkisstjórn Íslands og ráðherrar, sem eru auðvitað rétt eins og stjórnarandstaðan, að reyna að vinna þannig að hagsmunir þjóðarinnar verði sem best tryggðir þótt að sýnin á það sé ólík. Það er bara ofur einfaldlega þannig. Það er ekki verið að blekkja. Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið, einfaldlega vegna þess að fyrirkomulagið gerir ráð fyrir því að það verði tvær þjóðaratkvæðagreiðslur í ferlinu. Tvisvar sinnum þarf þjóðin að segja já, tvisvar.“
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Miðflokkurinn Utanríkismál Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira