Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. apríl 2026 17:13 Ríkisstjórn Kristrúnar samþykkti að leggja fram frumvarpið. Vísir/Vilhelm Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur samþykkt að leggja fram frumvarp þess efnis að laun kjörinna fulltrúa og embættismanna hækki um 3,5 prósent nú í júlí. Sú hækkun kemur í stað fyrirhugaðrar 9,7 prósenta launahækkunar. „
Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði varanlegt viðmið um uppfærslu launa þessa hóps og að laun hópsins hækki um 3,5% 1. júlí nk. í stað 9,7% hækkunar að óbreyttu,“ segir í tilkynningu á síðu Stjórnarráðsins. Markmið frumvarpsins sé að skapa festu í uppfærslu launa kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna og að skapa sem víðtækasta sátt um launafyrirkomulag þeirra. Í tilkynningunni er haft eftir Kristrúnu Frostadóttur sem segir að það fyrirkomulag launahækkana kjörinna fulltrúa sem hefur verið síðustu ár í gildi hafi ekki virkað sem skyldi. „En nú breytum við lögunum þannig að launaþróun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins taki betur mið af almennri þróun launa í landinu,“ segir Kristrún. „Það hefur lengi verið samstaða á þinginu um að viðmið við uppfærslu launa skuli vera með þessum hætti. Þá er sérstaklega mikilvægt að við styðjum bæði við stöðugleika á vinnumarkaði og sýnum ábyrgð á tímum verðbólgu og hárra vaxta,“ er haft eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Laun kjörinna fulltrúa munu hækka um 3,5 prósent 1. júlí 2026 og 1. júlí 2027 en það er í samræmi við kjarasamningsbundnar hækkanir sem samið hefur verið um. Ef ekki hefði verið gripið til þessara aðgerða hefðu laun kjörinna fulltrúa hækkað um 9,7 prósent. „Þá er lagt til að uppsöfnuð hækkun ársins 2028 verði að hámarki 3,5 prósent.“
Stjórnsýsla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira