Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. apríl 2026 08:33 Það virtist fara ágætlega á með konunginum og Mamdani í gær, þrátt fyrir allt. AP/Jeenah Moon Heimsókn Karls III Bretakonungs til Bandaríkjanna virðist hafa gengið með ágætum en hann sló bæði í gegn með þrumuræðu á þinginu og þegar hann gaf gestgjafa sínum, Donald Trump forseta, forláta bjöllu úr breska kafbátnum HMS Trump.
Það vakti hins vegar athygli þegar skrifstofa Zohran Mamdani, borgarstjóra New York, sendi frá sér tilkynningu þess efnis að Mamdani yrði viðstaddur heimsókn Karls að minnisvarðanum um árásirnar 11. september 2001 en myndi ekki funda með honum. Þegar hann var síðan spurður að því í gærmorgun um hvað hann myndi ræða við konunginn ef til þess kæmi, svaraði Mamdani: „Ég myndi líklega hvetja hann til að skila Koh-i-Noor demantinum.“ Koh-i-Noor demanturinn fannst Golconda á Indlandi á 13. öld og komst í eigu Viktoríu drottningar árið 1849, eftir að Austur Indíafélagið lagði Punjab undir sig. Demanturinn er talinn hafa verið um 186 karöt þegar hann fannst en telur nú um 106 karöt og er áfastur kórónu Elísabetar drottningamóður. Hann er einn sá stærsti í heiminum. Demanturinn situr nú í kórónu Elísabetar drottningamóður, sem sést hér á kistu Elísabetar við útför hennar árið 2002. Mamdani er af inverskum og úgönskum uppruna og faðir hans, Mahmood Mamdani, er fræðimaður og sérfræðingur í nýlendutímabilinu. Bretar hafa oftsinnis verið sakaðir um að hafa stolið demantinum úr höndum Indverja og hvattir til að skila honum. Það virtist þó sem það færi ágætlega á með Karli og Mamdani þegar þeir tókust í hendur í New York og ræddust stuttlega við. Þess má geta að Buckingham-höll hefur neitað að svara fyrirspurn Guardian varðandi það hvort það komi til greina að skila demantinum.
Kóngafólk Bandaríkin Karl III Bretakonungur Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira