Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Birgir Olgeirsson skrifar 6. maí 2026 18:30 Sjálfstæðisflokkurinn fengi 8 borgarfulltrúa miðað við nýjustu könnun Maskínu en Samfylking fimm. Bilið á milli flokkanna hefur aukist heldur mikið frá því þeir voru nánast jafnir að fylgi í könnun Maskínu frá því í mars. Ljóst er að það stefnir í mikinn endasprett hjá Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, og Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingarinnar. Lýður Sjálfstæðisflokkurinn mælist með tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna í nýrri Maskínu-könnun í Reykjavík. Flokkarnir voru nánast jafnir í mars en síðan þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn bætt verulega við sig á sama tíma og Samfylkingin hefur dalað. Vinstrið sækir jafnframt mest fram milli mælinga.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 27,9 prósent fylgi í nýrri könnun Maskínu um fylgi flokka í Reykjavík og hefur tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna, sem mælist með 18 prósent. Könnunin var framkvæmd dagana 29. apríl til 6. maí. Niðurstöðurnar marka verulega breytingu frá því í mars, þegar flokkarnir tveir voru nánast jafnir að fylgi. Frá þeim tíma hefur Sjálfstæðisflokkurinn bætt við sig rúmum sex prósentustigum en Samfylkingin tapað tæpum fjórum. Vinstrið er sá flokkur sem bætir þó mestu við sig milli kannana. Flokkurinn eykur fylgi sitt um 2,6 prósentustig og mælist nú með 13,2 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn bætir næstmestu við sig, 2,5 stig og styrkir enn frekar stöðu sína sem stærsti flokkur borgarinnar. Miðflokkurinn tapar hins vegar mestu milli mælinga og fer niður um 3,3 prósentustig í 6,7 prósent. Samfylkingin minnkar einnig um þrjú stig og dettur niður í 18 prósent. Átta fulltrúar hjá Sjálfstæðisflokki Miðað við þessa könnun fengi Sjálfstæðisflokkurinn átta borgarfulltrúa. Samfylkingin fengi fimm fulltrúa, en Vinstrið og Viðreisn þrjá hvor. Svona gæti borgarstjórn litið út ef niðurstaða kosninga verður í takt við nýjustu könnun Maskínu. Miðflokkurinn, Framsókn, Sósíalistar og Píratar fengju síðan einn borgarfulltrúa hver samkvæmt þessari stöðu. Nokkur meirihlutamynstur teiknast upp Eini tveggja flokka meirihlutinn sem þessi staða býður upp á er samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Að auki væri mögulegur hægri meirihluti með Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Miðflokki. Sú þriggja flokka samsetning næði tólf borgarfulltrúum. Þá væri einnig mögulegur tólf fulltrúa meirihluti Framsóknar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks. Miðju-vinstri meirihluti með Samfylkingu, Vinstri og Viðreisn næði hins vegar ekki einn og sér að mynda meirihluta. Til þess þyrfti sá kjarni fjórða flokkinn með sér til að komast upp í tólf fulltrúa.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Skoðanakannanir Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Viðreisn Miðflokkurinn Flokkur fólksins Sósíalistaflokkurinn Vinstrið Píratar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira