Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Jón Þór Stefánsson skrifar 14. maí 2026 12:38 Ari Edwald og Björg Magnúsdóttir ræddu um hvort þeirra flokkar gætu unnið saman í borgarstjórnarmeirihluta. Vísir/Vilhelm Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í borginni, segir að erfitt yrði að mynda meirihluta með Miðflokknum í borginni. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, segir sömuleiðis að hann telji að Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, myndi ekki leyfa Viðreisn að vinna með Sjálfstæðisflokknum í borginni.
Þetta kom fram í kappræðum frambjóðendanna í Reykjavík á Sýn í gærkvöldi. Mikið hefur verið rætt og ritað um mögulega lykilstöðu Viðreisnar í meirihlutaviðræðum að kosningum loknum þar sem flokkurinn þykir bæði líklegur til að geta unnið til vinstri og hægri. Björg sagði flokkinn ganga opinn til kosninga, en gaf til kynna að hún væri ekki sérlega spennt fyrir því að vinna með Samfylkingunni. „Ég hef nú sagt það að ef ég væri að fara að mynda meirihluta um breytingar í borginni þá væru Pétur og Heiða ekki fyrsta dúóið sem ég myndi hringja í.“ Björg hefur sagt að það væri erfitt fyrir Viðreisn að vinna með flokkum sem standa sig ekki í mannréttindamálum. Aðspurð um hvort hún hafi verið að vísa í einhvern flokk með þeim ummælum minntist hún á Miðflokkinn. „Ég veit að Ari sagðist standa með mannréttindum, en hans flokkur hefur ekki gert það. Við sjáum það bara hjá öðrum frambjóðendum flokksins varðandi hinseginsamfélagið og fjölbreytileikann. Þar er augljóslega mjög skýr ágreiningur.“ Ari greip þá orðið og sagði Viðreisn hafa að undanförnu afflutt stefnu Miðflokksins, að sumu leyti með mjög lágfreyðandi hætti. Björgu var þá sýnd niðurstaða úr skoðanakönnun þar sem fyrirhugaðir kjósendur Viðreisnar voru spurðir með hvaða flokki þeir myndu helst vilja vinna með. Flestir, eða 42,5 prósent, nefndu Samfylkinguna og næstflestir, eða 29,1 prósent, nefndu Sjálfstæðisflokkinn. Hins vegar var Miðflokkurinn einungis nefndur af um hálfu prósenti svarenda. Gætir þú, gagnvart þínum kjósendum, farið í samstarf með Miðflokki? „Það yrði mjög erfitt.“ Kristrún Frostadóttir gefi ekki leyfi Ari Edwald sagðist útiloka samstarf við Samfylkinguna, en spurður sérstaklega út í hvort hann gæti unnið með Viðreisn sagði hann það mögulegt ef komist væri að góðu samkomulagi um málefnin. „En ég hef áhyggjur af því að Viðreisn muni ekki vinna í borgaralegum meirihluta, eins og við höfum áhuga á að mynda,“ sagði Ari. Hann benti á að Viðreisn og Samfylkingin væru í stjórnarsamstarfi í landsmálunum. „Samfylkingin hefur í raun líf Viðreisnar í hendi sér,“ sagði hann. „Ég trúi ekki að Kristrún Frostadóttir samþykki það að Viðreisn starfi með Sjálfstæðisflokknum í borginni eftir kosningarnar?“ „Að Kristrún Frostadóttir... ?“ kváði Björg. „Ég er ekki undirmaður hennar. Ég er með umboðið hér.“ Hvað sögðu aðrir um mögulegt samstarf? Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagðist ekki útiloka neitt varðandi meirihlutasamstarf en tók fram að Samfylkingin væri algjörlega síðasta val sjálfstæðismanna. Hún tók þó fram að hún væri spenntust fyrir „samsuðu“ með Miðflokki, Viðreisn og Framsóknarflokki. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, útilokaði samstarf við Samfylkinguna. Þá sagðist hann helst vilja mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokknum og flokkum á miðju- og hægrivængnum. Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði ólíklegt að hann gæti unnið með Sjálfstæðisflokknum. Þá sagðist hann óttast U-beygju til hægri. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, sagði að erfitt væri að vinna með hægri flokkum, og nefndi Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn þar, og taldi Framsókn líka falla undir þann hatt. Fyrir síðustu kosningar útilokaði hún, þá sem oddviti Sósíalistaflokksins, samstarf við Viðreisn, en sagðist ekki gera það nú. Þá sagðist hún algjörlega geta unnið með Sósíalistum, þrátt fyrir að vera ekki lengur í þeim flokki. Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins, sagðist ekki útiloka samstarf við neinn. Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata, útilokaði Miðflokkinn vegna mannréttindamála. Silja Sóley Birgisdóttir útilokaði ekki beinlínis neinn flokk, en sagði að samhljómurinn væri meiri eftir því hversu langt til vinstri væri farið. Kappræður Sýnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Miðflokkurinn Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira