Hildur segir nýjan meirihluta þurfa breiða skírskotun Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. maí 2026 02:09 Hildur ræddi hugmyndir sínar um mögulegan meirihluta í kosningasjónvarpi. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist líta til Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks hvað varði meirihluta, þá sitthvoran kostinn. Báðir séu einfaldasta leiðin að myndun meirihluta en Hildur segist vilja mynda meirihluta með breiða skírskotun sem geti endurreist traust til borgarstjórnar.
Þetta er meðal þess sem fram kom í umræðum með oddvitum í Reykjavík þar sem þeir brugðust við fyrstu tölum. Ljóst er að miðað við allra fyrstu tölur hefur Hildur val um myndun tveggja flokka meirihluta með Miðflokki eða þá þriggja flokka meirihluta með Framsókn og Viðreisn. Hildur ræddi málið við Berghildi Erlu Bernharðsdóttur fréttakonu Sýnar núna í nótt. Þar kom skýrt fram í máli Hildar að tveir kostir væru í stöðunni. Ekki rætt við neina oddvita í dag Hildur þakkaði í oddvitaumræðum í kvöld sjálfboðaliðum flokksins fyrir hjálpina. Hún segist telja gott gengi flokksins helgast af því að hann hafi hlustað á íbúa. „Við sjáum það að þeir kölluðu eftir breytingum og þeir skulu fá breytingar.“ Hún segir það mikilvægasta við myndun meirihluta vera málefnin. Eðlilegt sé að stærsti flokkurinn leiði nýjan meirihluta. Hún segist ekki hafa rætt sérstaklega við Ara Edwald oddvita Miðflokksins í dag. Hildur sagði í kappræðum í gær að hún hefði þegar rætt við nokkra oddvita um mögulegt meirihlutasamstarf en upplýsti ekki hvaða oddvitar það hefðu verið. Viltu upplýsa um þá í dag? „Nei, nei. Það er athyglisverð staða uppi. Þetta eru fyrstu tölur, nóttin er ung, við höfum mörg hver reynslu af því að margt getur breyst,“ segir Hildur. Hún segir að sér hafi fundist vera menningasrstríð í borginni og segist Hildur vilja mynda meirihluta sem borgarbúar geti heilt yfir verið ánægðir með. Spurð hvaða meirihluta væri einfaldast að mynda, meirihluta með Miðflokki eða þá Viðreisn og Framsókn, saðgi Hildur: „Þessir tveir kostir sem ég nefni eru báðir nokkuð einfaldir á sinn hátt og nú þarf að eiga þessi samtöl. Ég vona að það takist að bæta vinnuumhverfið, við höfum talað um traustsmælingar, fólk og landsmenn treysta borgarstjórn mjög lítið,“ sagði Hildur og bætti því við að Einar hefði viðrað áhyggjur af þessu á sínum tíma og Björg og Pétur nú tekið undir þær áhyggjur. „Ég vona að við nýtum tækifærið núna til að tala saman,“ sagði Hildur sem bætti því við að hann hefði oft verið í minnihluta. Sagðist hún telja hægt að ná fram betra samstarfi í borgarstjórn. „Það væri gott að myndað meirihluta með breiða skírskotun.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira