Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Agnar Már Másson skrifar 17. maí 2026 03:48 Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur fest atkvæði í höfuðborginni og á hún möguleika á að mynda meirihluta með Framókn og Viðreisn. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að oddvitar annarra flokka séu farnir að hvísla ástarorðum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn bar sigur úr býtum í sveitarstjórnarkosningum í nótt, samkvæmt nýjustu tölum. „
Mér líður auðvitað ofsalega vel, maður eiginlega trúir bara ekki niðurstöðum og ég er mjög þakklát,“ sagði Hildur Björnsdóttir í viðtali við Sýn í nótt, kampakát með sigur flokksins, sem er samkvæmt fyrstu tölum besta niðurstaða frá því 2010. Flokkurinn hennar virtist ætla að fá níu borgarfulltrúa. Samkvæmt fyrstu tölum voru tveir líklegir meirihlutar að teiknast upp; annars vegar tveggja flokka meirihluti Sjálfstæðisflokks og þriggja fulltrúa Miðflokks eða hins vegar þriggja flokka meirihluti Sjálfstæðisflokks, tveggja fulltrúa Viðreisnar og eins fulltrúa Framsóknar. Síðan þá hafa aftur á móti nýjar tölur birst sem sýna að Sjálfstæðismenn hljóti átta fulltrúa frekar en níu, sem gerir tveggja flokka meirihluta með Miðflokki ómögulegan. Enn á eftir að telja öll atkvæði og því gæti staðan breyst. Rúmlega 60 þúsund atkvæði eru talin en um 108 þúsund eru á kjörskrá. „Það eru tveir augljósir kostir í stöðunni og nú þarf að vega þá og meta,“ segir Hildur og bætir við að hún vilji eiga í viðræðum við alla oddvita burtséð frá því hvort þeir fari í meirihluta eður ei. „Við reynum að vinna saman að því að auka traust á borgarstjórn og bæta þetta starfsumhverfi okkar.“ Við myndun meirihluta muni málefnin ráða för. „En ég myndi gjarnan vilja mynda sterkan meirihluta með breiða skírskotun til fólksins í borginni og að við gætum skapað meiri sátt um verkefni borgarstjórnar og borgarlífið.“ Hún viðurkennir að margir oddvitar séu farnir að „hvísla ástarorðum“. „Við erum búnir að vera mikið saman undanfarið og ég vil bara þakka öllum þessum kröftugu mótframbjóðendum fyrir öfluga baráttu. En jú, jú, samtölin hefjast örugglega í nótt og næstu daga.“ Stuðningsmenn hafa yfirgefið Sjálfstæðissalinn, eða Nasa, og örkuðu glaðir út á torg. „Gleðin heldur áfram og ég mun örugglega vaka eftir næstu tölum.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira