Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. maí 2026 13:20 Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokks, Karolína Helga Símonardóttir oddviti Viðreisnar og Hildur Rós Guðbjargardóttir oddviti Samfylkingar hittust í dag. Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hittust á óformlegum fundi í morgun til að ræða mögulegt meirihlutasamstarf. Fundurinn gekk vel og munu þeir hittast aftur til þess að ákveða næstu skref.
Þetta segir Hildur Rós Guðbjargardóttir oddviti Samfylkingarinnar í samtali við Vísi. Líkt og fram hefur komið sleit Sjálfstæðisflokkur meirihlutaviðræðum við Framsókn í gær vegna meints trúnaðarbrests. Þá sagði Hildur að hún útilokaði samstarf við Framsókn og oddviti Viðreisnar að það hugnaðist henni ekki lengur. Þær sögðu Valdimar Víðisson oddvita Framsóknar hafa leikið tveimur skjöldum og átt í viðræðum við Samfylkingu og Viðreisn á sama tíma og við Sjálfstæðisflokk. Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokks sagði í kvöldfréttum Sýnar í gær viðræðurnar hafa í megindráttum snúist um það að Valdimar hafi viljað vera bæjarstjóri áfram. Valdimar hefur hafnað ásökunum um trúnaðarbrest og segist hafa komið fram af heilindum. Fundurinn góður „Þetta var góður fundur. Auðvitað liggur okkur ekkert endilega á og auðvitað var ekki fullkominn samhljómur milli okkar, enda er það alltaf þannig. Við þurfum bara að sjá hvernig og hvort við getum smíðað nýjan meirihluta,“ segir Hildur Rós. Býstu við því að þið munið hefja formlegar viðræður? „Við höfum ekki rætt það neitt sérstaklega. Samtalið er allavega hafið en við erum ekki komin það langt. Fyrsta skrefið er það að við áttum okkur á því að það þarf að mynda starhæfan meirihluta í Hafnarfirði. Ég held að við öll gætum unnið saman að fullt af flottum málum, það þarf bara að mynda starfhæfan meirihluta.“ Einar Geir Þorsteinsson oddviti Miðflokksins furðaði sig á því við Vísi í dag að enginn oddviti hafi haft samband við hann um mögulegt meirihlutasamstarf. Áður hefur oddviti Viðreisnar sagst ekki vera spennt fyrir samstarfi við Miðflokkinn og þá sagði Einar Geir að Hildur hefði einnig útilokað samstarf. Er alveg útilokað að þið starfið í meirihluta með Miðflokki? „Við útilokum ekki neitt. Persónulega þá er það alveg algjörlega síðasti kostur. En við höfum sagt það skýrt að séum tilbúin til að sinna okkar skyldu gagnvart kjósendum til þess að stíga upp og taka ábyrgð í meirihlutasamstarfi ef til þarf. Við skorumst ekki undan ábyrgð þegar það kemur upp sú staða eins og nú þar sem er erfitt að mynda starfhæfan meirihluta, þá förum við í það samtal með þeim flokkum sem eru kostir. En ég get ekki farið að lyfta upp einhverskonar hatursorðræðu eða öðru sem Miðflokkurinn hefur haldið á lofti. Við förum ekkert inn í hvað sem er bara til þess að vera í meirihluta.“ Eruð þið oddvitar Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar búin að ákveða að hittast aftur? „Já. Við erum ekki búin að ákveða hvenær, en við ætlum að hittast aftur.“
Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Viðreisn Samfylkingin Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira