Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Árni Sæberg skrifar 26. maí 2026 17:20 Hildur heldur spilunum einstaklega þétt að sér. Vísir Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur ekkert heyrt í Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, síðan á föstudag. Ekki er von á tíðindum af meirihlutaviðræðum í borginni í dag en dregið gæti til tíðinda á morgun. Hildur var fjarverandi á síðasta fundi fráfarandi borgarstjórnar í dag.
Þetta herma heimildir Vísis en tíu dagar eru liðnir frá kjördegi, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn náði inn níunda manni og Hildur Björnsdóttir var þar með með pálmann í höndunum. Ari ekkert heyrt þrátt fyrir fund á föstudag Hildur hefur fundað einslega með oddvitum allra flokka sem náðu kjöri til borgarstjórnar og fundaði með oddvitum Miðflokks, Framsóknar og Viðreisnar sameiginlega í Hannesarholti á miðvikudag í síðustu viku. Með þeim flokkum gæti hún myndað öflugan fimmtán manna meirihluta gegn átta manna minnihluta í borgarstjórn. Þá gæti hún einnig myndað meirhluta með Miðflokki einum, Miðflokki og Framsókn eða Viðreisn og Framsókn. Samkvæmt heimildum fréttastofu fundaði Hildur einslega með oddvitunum þremur á föstudag og bjuggust þeir við því að heyra aftur í Hildi fljótlega. Fjórum dögum síðar hefur Ari Edwald ekkert heyrt frá Hildi. Ekki liggur fyrir hvort Einar Þorsteinsson í Framsókn eða Björg Magnúsdóttir í Viðreisn hafi gert það en hvorugt hefur svarað símtölum fréttastofu undanfarna daga. Brynjar aldrei vitað minna Hildur fundaði með borgarstjórnarflokki sínum á fimmtudag í síðustu viku en svo virðist sem hann hafi ekkert frétt af áframhaldandi meirihutaviðræðum síðan þá, í það minnsta ef marka má orð Brynjars Níelssonar, sem er þriðji maður flokksins í borgarstjórn. „Ég hef bara ekkert heyrt síðan nú í að verða viku. Hildur hefur umboðið. Það eru kostir og gallar við allt,“ segir hann í samtali við Vísi. Hann segist reyndar aldrei hafa vitað eins lítið og nú. Hann hafi heyrt í Bjarna Guðjónssyni í gær og hann verið alveg eins mikið úti á túni og Brynjar. „Við vitum bara ekki neitt.“ Borinn var undir Brynjar sá orðrómur sem borist hefur fréttastofu að Hildur stefndi nú ótrauð á meirihlutaviðræður með Viðreisn og Framsókn. Brynjar sagðist ekkert hafa heyrt. „Ég fer á námskeið á morgun. Þetta er þriggja daga námskeið. Þar á ég að læra að verða borgarfulltrúi. Læra á kerfið og svona. Ég sagði þeim að ég væri orðin of gamall til að læra en allt að einu, mér finnst þetta vel í lagt.“ Hildur fjarverandi á kveðjustund Fráfarandi borgarstjórn kom saman á sínum síðasta borgarstjórnarfundi í dag, þar sem nokkur mál voru til umræðu áður en borgarfulltrúar fengu tækifæri til að halda kveðjuræðu. Athygli vakti að Hildur mætti ekki á fundinn en þeir Björn Gíslason og Friðjón R. Friðjónsson fluttu kveðjuræður sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Þeir verða 1. og 2. varaborgarfulltrúi flokksins á komandi kjörtímabili og hafa því vafalítið ekki sagt sitt síðasta í borgarstjórn.
Sjálfstæðisflokkurinn Borgarstjórn Reykjavík Miðflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira