Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar 12. júní 2026 07:30 Hérlendir Evrópusambandssinnar hafa ítrekað sagt að við Íslendingar ættum að taka frændur okkar Færeyinga til fyrirmyndar í Evrópumálunum. Sem er áhugavert þar sem Færeyjar eru ekki í Evrópusambandinu. Raunar eru þeir ekki heldur aðilar að EES-samningnum. Fyrr á árinu kom fram í fréttum að ný ríkisstjórn landsins vildi stefna á aðild að Fríverzlunarsamtökum Evrópu (EFTA), eins og Ísland, og gera fríverzlunarsamning við sambandið. Það er til fyrirmyndar. Framkvæmdastjóri Viðreisnar, Svanborg Sigmarsdóttir, gerði Færeyjar nú síðast að umtalsefni í grein á Vísi í gær þar sem hún kaus að taka þær sem dæmi um að hægt væri að vera með fastgengi og lítið atvinnuleysi á sama tíma. Vísaði hún þar til þess að færeyska krónan væri tengd við dönsku krónuna sem aftur væri tengd gengi evrunnar. Hvers vegna hún kaus að taka Færeyjar sem dæmi en ekki ríki sem er innan Evrópusambandsins og með evruna segir auðvitað sína sögu. Danska krónan er tengd gengi evrunnar af þeirri einföldu ástæðu að hún var áður tengd við þýzka markið sem síðan hvarf inn í evruna. Tengingin hefur í raun ekkert með evruna sem slíka að gera heldur hliðstæða hagsveiflu Danmerkur og Þýzkalands og mikil viðskipti þar á milli í gegnum tíðina. Danir geta hvenær sem er kippt þessari tengingu úr sambandi en gætu það ekki væru þeir með evruna. Þá má ekki gleyma að Danir hafa hafnað evrunni í þjóðaratkvæði. Eins og Svíar. Hvað atvinnuleysið varðar hefur það verið sögulega lágt í Færeyjum, löngu áður en evran kom til sögunnar, og var ekki afleiðing þess að Danmörk fór í ERM II gjaldmiðlakerfi Evrópusambandsins í byrjun árs 1999 eins og Svanborg heldur fram. Það sýna hagtölur færeysku hagstofunnar. Atvinnuleysið var þannig mjög lítið á 8. og 9. áratug síðustu aldar en rauk hins vegar upp vegna efnahagskrísunnar í byrjun 10. áratugarins en minnkaði síðan jafnt og þétt næstu árin. Við Íslendingar höfum lengi búið við hvað minnst atvinnuleysi í Evrópu almennt séð. Í nánast öllum öðrum ríkjum álfunnar hefur verið meira atvinnuleysi en hér og í flestum miklu meira. Ekki sízt í þeim ríkjum sem tekið hafa upp evruna. Það er sem fyrr segir ekki að ástæðulausu að hérlendir Evrópusambandssinnar hafa ítrekað vísað til Færeyja sem fyrirmyndar, lands sem er hvorki í Evrópusambandinu né með evruna sem slíka sem gjaldmiðil, í stað eiginlegs evruríkis. Vitanlega ættum við Íslendingar fyrst og fremst að velta því fyrir okkur hvers vegna Færeyingar vilja alls ekki ganga í Evrópusambandið. Og ekki einu sinni vera aðilar að EES-samningnum. Fyrst og fremst vegna þess að þeir vilja stjórna sínum eigin málum. Þá ekki sízt sjávarútveginum. Fyrir utan annað sitja þeir við borðið þegar samið er um deilistofna. Ásamt okkur Íslendingum – ennþá. En ekki þjóðum Evrópusambandsins. Þar situr aðeins fulltrúi sambandsins. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Danmörk Viðreisn Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar