Viðskipti erlent

Sam­runi Paramount og Warner Bros sam­þykktur

Freyja Þórisdóttir skrifar
Samruninn hefur verið umdeildur og hafa verið gerðir undirskriftalistar þar sem fólk í kvikmyndageiranum mótmælir kaupunum.
Samruninn hefur verið umdeildur og hafa verið gerðir undirskriftalistar þar sem fólk í kvikmyndageiranum mótmælir kaupunum. Getty

Kaup Paramount á Warner Bros hafa verið samþykkt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna en salan hefur verið umdeild, meðal annars vegna tengsla forstjóra Paramount og Donalds Trump forseta. Þrátt fyrir samþykkið eru kaupin ekki frágengin og enn er mögulegt að ríki höfði mál til að stöðva söluna.

Kaup Paramount Skydance á Warner Bros Discovery hljóða upp á hundrað og ellefu milljarða dala eða um fjórtán billjónir íslenskra króna. Í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) segir að samþykkið sé lykilþáttur í samrunanum sem muni „endurmóta fjölmiðlalandslagið“ en að salan hafi verið umdeild. David Ellison, forstjóri Paramount, sé sonur Larry Ellison, sem sé stór styrktaraðili Donalds Trump forseta.

Með yfirtöku á Warner Bros verður Paramount eitt stærsta aflið í Hollywood og bætir fréttastöðinni CNN, sjónvarpsstöðvunum HBO, TBS, TNT, TCM, auk kvikmyndaveranna DC Studios og New Line Cinema við núverandi eignasafn sitt. Þar á meðal eru Paramount Pictures, CBS, Showtime og Nickelodeon.

Yfirráð Paramount yfir CBS News og þættinum 60 Minutes hafa verið harðlega gagnrýnd vegna dagskrárákvarðana sem gagnrýnendur segja að hygli Trump-stjórninni, þar á meðal að ný stjórn hafi rekið starfsfólk með langan starfsaldur og þekkta blaðamenn.

Skákaði tilboði Netflix

Ríflega fjórtán þúsund leikarar, leikstjórar og kvikmyndagerðarmenn í Hollywood skrifuðu undir opið bréf í apríl þar sem þeir mótmæltu samrunanum.

„Niðurstaðan verður færri tækifæri fyrir höfunda, færri störf í framleiðsluvistkerfinu, hærri kostnaður og minna val fyrir áhorfendur í Bandaríkjunum og um allan heim,“ sögðu undirritaðir.

Warner Bros var fyrst til sölu á síðasta ári og gerði þá samning við Netflix um kaup á hluta eigna sinna, í samningi sem var metinn á um 82 milljarða dala, tíu billjónir íslenskra króna, að meðtöldum skuldum.

Paramount gerði samkeppnistilboð, sem Warner Bros hafnaði, en fyrirtækið gafst ekki upp og hækkaði tilboð sitt í upphæð sem Netflix sagði að væri „ekki lengur fjárhagslega aðlaðandi“ að reyna að mæta.

En samkvæmt frétt BBC er þetta ekki frágengið mál enn þá, þar sem ríki eins og Kalifornía séu enn að fara yfir söluna og gætu höfðað mál til að stöðva hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×