Erlent

Banda­ríkin og Íran stað­festa að sam­komu­lag hafi náðst

Eiður Þór Árnason skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist nú vilja láta olíuna flæða, eitthvað sem stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum hafa lengi markvisst reynt að koma í veg fyrir.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist nú vilja láta olíuna flæða, eitthvað sem stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum hafa lengi markvisst reynt að koma í veg fyrir. Getty/Kevin Dietsch

Bandaríkin og Íran hafa náð samkomulagi um að binda endi á stríðið í Íran. Þetta staðfesta Bandaríkjaforseti og aðstoðarutanríkisráðherra Íran. Til standi að undirrita samninginn í Sviss föstudaginn 19. júní.

„Samkomulagið við Íslamska lýðveldið Íran er nú frágengið,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðlinum Truth Social.

„Ég heimila hér með að fullu opnun Hormússunds án tollgjalda og heimila um leið og samstundis að herkví Bandaríkjanna verði aflétt,“ segir hann. „Skip heimsins, ræsið vélarnar. Látið olíuna flæða!“

Íran segir einnig samkomulag í höfn

Kazem Gharibabadi, aðstoðarutanríkisráðherra Írans, hefur staðfest í símtali við ríkissjónvarpið þar í landi að samkomulag hafi náðst við Bandaríkin og að formleg undirritun fari fram í Sviss á föstudag.

„Tilkynnt verður um tafarlausan og varanlegan endi á stríðinu og hernaðaraðgerðum á ólíkum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon, í kvöld,“ segir hann.

Kharg-eyja
Hormússund
JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR

BBC greinir frá þessu en Gharibabadi bætir við að herkví Bandaríkjanna verði einnig aflétt í kvöld. Bandaríkjaher hefur stöðvað skipafarir við íranskar hafnir til að koma í veg fyrir útflutning á olíu. Aðgerðin var svar við lokun Hormússunds sem hamlaði olíu- og vöruflutninga í Persaflóa og hefur haft mikil áhrif á olíuverð og efnahagskerfi heimsins.

Árás Ísraelshers á Líbanon í dag setti striki í reikninginn og gáfu ráðamenn Íran til kynna að hún hafi sett viðræðurnar í uppnám. Á sama tíma sagði Trump að árásin myndi einungis seinka niðurstöðunni um nokkrar klukkustundir. Bandaríkjaforseti var mjög ósáttur með aðgerðir Ísraels og gerði forsætisráðherra landsins það ljóst í samtali þeirra í dag. 

Enn eigi eftir að útfæra ýmis atriði

Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, greindi fyrst frá samkomulaginu en ríkið hafði milligöngu um viðræður stjórnvalda.

„Báðir aðilar hafa lýst yfir tafarlausri og varanlegri stöðvun hernaðaraðgerða á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon,“ sagði hann í færslu á X, áður Twitter. 

Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans.AP

„Nú eftir að samkomulagið er í höfn munu sáttasemjarar hafa umsjón með röð funda í þessari viku. Þessar for-innleiðingarviðræður munu leggja grunninn að tæknilegum viðræðum og opinberu undirritunarathöfninni.“

Í yfirlýsingu sem flutt var í íranska ríkissjónvarpinu er fullyrt að Bandaríkin hafi verið „neydd til þess að skrifa undir samning“ sem bindi enda á stríðið við Íran. Þetta segir Ghoncheh Habibiazad, fréttamaður BBC Persian. Ríkismiðilinn lýsi niðurstöðunni sem sigri fyrir stjórnvöld í Teheran.

Trump hafi gefið eftir á síðustu stundu

Fars-fréttastofan í Íran sem er með tengsl við íranska byltingarvörðinn, herafla klerkastjórnarinnar, segir von á yfirlýsingu frá stjórnvöldum um samkomulagið.

Að sögn fréttastofunnar stöðvaði Íran samningaviðræðurnar eftir árás Ísraelshers á Líbanon í dag og hafi búið sig undir að svara með árás á Ísrael. Stjórnvöld hafi að lokum fallist á að hætta við árásina vegna tilslakana sem Bandaríkjaforseti bauð á síðustu stundu.

Hluti af þeim hafi verið að „vernda friðhelgi yfirráðasvæðis Líbanons“, að Ísrael myndi draga sig frá landamærum Líbanons og tafarlaus aflétting á herkví Bandaríkjahers við íranskar hafnir.

Einnig hafi verið ákveðið að endurskoða stjórn og reglur um umferð á hafsvæðunum við Persaflóa í samvinnu við Íran og Óman, að sögn Fars. Þetta hefur ekki verið staðfest af írönskum eða bandarískum stjórnvöldum. 

Fréttin er í vinnslu.


Tengdar fréttir

Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“

„Af hverju í andskotanum þurfti Bibi að gera árás? Ég varð svo brjálaður. Ég lét hann vita af því. Hann hefur enga helvítis dómgreind. Ég sagði honum það.“ Þetta segir Donald Trump Bandaríkjaforseti um árás Ísraelshers á Líbanon í dag og samtal sem hann átti við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í kjölfarið.

Friðarviðræður sagðar í uppnámi

Aðalsamningamaður Íran sagði friðarviðræður við Bandaríkin í uppnámi eftir nýjustu loftárás Ísraela á Beirút, höfuðborg Líbanon. Þrír eru látnir og fimmtán særðir í úthverfum borgarinnar eftir árásina, að sögn yfirvalda í Líbanon. Þá hafa byggingar og verslanir orðið fyrir umtalsverðum skemmdum. 

„Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“

Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×