Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Lovísa Arnardóttir skrifar 22. júní 2026 09:42 Eiríkur segir ekkert óvænt við afsögnina. Vísir/EPA og Anton Brink Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor segir afsögn Starmer hafa legið fyrir um helgina og hún sé ekki óvænt. Starmer hafi barist við atlögu Andy Burnham en eftir niðurstöður í aukakosningum í síðustu viku hafi niðurstaðan verið ljós. Eiríkur var til viðtals um afsögnina í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr formaður Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust. Starmer tilkynnti um afsögnina fyrir utan bústað forsætisráðherrans í Downing-stræti í London á níunda tímanum í morgun. Hann sagðist hafa tilkynnt Karli III Bretakonungi um ákvörðun sína í morgun. Starmer hefur gegnt embætti forsætisráðherra Bretlands frá júlí 2024 eftir stórsigur Verkamannaflokksins í þingkosningum. Eiríkur segir stöðuna í breskum stjórnmálum í raun hafa verið erfiða allt frá Brexit-kosningunni fyrir tíu árum. Frá þeim tíma hafi verið um tíu forsætisráðherrar og nú taki við sá sjötti á fimm árum og þeir hafi nánast í öllum tilfellum verið hraktir frá embætti. Eiríkur nefnir í því samhengi Boris Johnson, Liz Truss og svo nú Keir Starmer. „Það er búið að vera ofboðslega mikill vandræðagangur.“ Eiríkur segir Burnham hafa skorað Starmer á hólm og það hafi legið fyrir frá því fyrr á árinu að hann hafi viljað það. Eiríkur segir hann hafa lýst sér sem öðrum valkosti við Starmer sem sé talinn ákvarðanafælinn og ekki afgerandi stjórnmálamaður. Hann sé feikilega óvinsæll og málefni Petner Mandelson séu kornið sem fyllti mælinn. Eiríkur segir Burnham engan nýgræðing. Hann hafi verið í ríkisstjórn bæði Tony Blair og Jeremy Corbyn og þar sé himinn og haf á milli. „En hann hefur verið að stilla sér upp sem sósíalískum valkosti, en á sérstakan hátt, ekki klassískan hátt.“ Eiríkur segir hann hafa verið að snúast í átt að harðari innflytjendastefnu en hafi áður verið kallaður „open-border-Andy“ eða „opin-landamæra-Andy“. Hann hafi stutt strangari aðgerðir eins og nánast allir aðrir stjórnmálamenn. Eiríkur segir innflytjendamál ekki sama mál í Bretlandi og þau voru á til dæmis hátindi flóttamannakrísunnar fyrir um áratug síðan. Það sé færra fólk að sækja um hæli í dag og deilur stjórnmála í Bretlandi snúist meira um dýrtíð og efnahag. Talið er líklegt að Andy Burnham taki við af Starmer. Vísir/EPA Framfærslu-krísa „Þeir kalla þetta cost- of living crisis,“ segir hann og að efnahagur Breta hafi dalað og menn tali um að Brexit hafi kostað um sex prósent í þjóðarframleiðslu. „Það er ansi hár verðmiði,“ segir hann og að öll fyrirheit um að „peningarnir kæmu aftur inn í landi“ hafi látið standa á sér. Eiríkur segir umræðu í Bretlandi um að fara aftur inn í Evrópusambandið, eða ná betri tengingu, en hann sjái það ekki endilega gerast. Það hafi enginn endilega sé fyrir séð að öllum samningum yrði sagt upp. „Þeir fara bara með öllum þeim vandræðagangi og kostnaði sem fylgir. Menn gleyma því oft að Evrópusambandið er fyrst og fremst markaðsbandalag, sem gengur út á að samræma reglur til að auðvelda viðskipti,“ segir Eiríkur og að þessi vandræði séu það sem Bretar séu að takast á við í dag.
Bretland Bítið Brexit Kosningar í Bretlandi Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Sjá meira