Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Eiður Þór Árnason skrifar 26. júní 2026 18:01 Margrét Jónsdóttir Njarðvík var rektor Háskólans á Bifröst í tæp sex ár. vísir/sigurjón Margrét Jónsdóttir Njarðvík hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti af Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Margrét var rektor Háskólans á Bifröst í tæp sex ár en hætti eftir að hún kærði þrjá kennara við skólann til siðanefndar.
Málið átti eftir að reynast umdeilt og lýsti Félag akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst yfir vantrausti á stjórnsýslu Margrétar. Starfsmenn sögðu starfsumhverfið þrúgandi og að réttlætiskennd fólks væri misboðið. Bentu gögn til að Margrét, auk deildarstjóra og rannsóknarstjóra við skólann, hefðu notað gervigreindarmállíkan til að meta réttmæti höfundarstöðu á vísindagreinum hjá starfsmönnunum þremur. Einn þeirra líkti kærunni við „faglega aftöku.“ Siðanefnd skólans átti síðar eftir að hreinsa starfsmennina þrjá af sök en nemendur gagnrýndu sömuleiðis stjórn skólans. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir er fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti en hún hefur gegnt embættinu í sautján ár. Sex aðrir sóttu um Margrét er skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautarskólans í Breiðholti frá 1. ágúst til fimm ára. Greint er frá þessu í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Alls sóttu sjö um stöðuna og voru umsækjendur eftirfarandi: Elvar Jónsson, leiðtogi farsældar barna Guðmundur Stefán Gunnarsson, kennari og íþróttafræðingur Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari og sérfræðingur Hrafnhildur Hafberg, framhaldsskólakennari, alþjóðafulltrúi og kynningarstjóri Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor Nanna Kristjana Traustadóttir, sérfræðingur Víðir Stefánsson, aðstoðarskólameistari Starfað lengi hjá HR og HÍ Áður en Margrét tók við stöðu rektors var hún í átta ár hjá Háskólanum í Reykjavík (HR) sem lektor, dósent og forstöðumaður alþjóðasviðs. Þá starfaði hún í tæp átta ár sem lektor og skorarformaður í Háskóla Íslands (HÍ) auk þess að hafa kennt spænsku við Kvennaskólann í Reykjavík, Menntaskólann í Reykjavík og Verzlunarskóla Íslands. Margrét er með MBA-gráðu í stjórnun frá Háskólanum í Reykjavík auk doktorsgráðu í spænsku máli og bókmenntum frá Princeton University. Hún er með kennsluréttindi og lauk grunnnámi í spænsku við Háskóla Íslands. Fréttin hefur verið uppfærð.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vistaskipti Skóla- og menntamál Reykjavík Deilur í Háskólanum á Bifröst Framhaldsskólar Tengdar fréttir Sjö vilja embætti skólameistara FB Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, er á meðal sjö umsækjenda um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Listi yfir umsækjendur hefur verið birtur á vefsíðu Stjórnarráðsins. 11. maí 2026 10:03 Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Háskólinn á Bifröst er sagður hafa ráðið aftur starfsmann sem var rekinn í sömu viku og rektor vísaði máli hans til siðanefndar skólans í vetur. Núverandi rektor segir starfsmanninn hafa verið borinn röngum sökum. 24. apríl 2026 11:03 Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. 9. febrúar 2026 12:18 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
Sjö vilja embætti skólameistara FB Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, er á meðal sjö umsækjenda um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Listi yfir umsækjendur hefur verið birtur á vefsíðu Stjórnarráðsins. 11. maí 2026 10:03
Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Háskólinn á Bifröst er sagður hafa ráðið aftur starfsmann sem var rekinn í sömu viku og rektor vísaði máli hans til siðanefndar skólans í vetur. Núverandi rektor segir starfsmanninn hafa verið borinn röngum sökum. 24. apríl 2026 11:03
Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. 9. febrúar 2026 12:18