Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. júlí 2026 07:51 Samkomulagið er svokallaður „123 samningur“ og fjallar um samvinnu á sviði kjarnorku. Bandaríkin hafa gert 26 slíka samninga við 51 ríki. Getty/Win McNamee Bandaríkjastjórn mun greina frá því í dag að hún hafi komist að samkomulagi við stjórnvöld í Sádi Arabíu um samvinnu á sviði kjarnorkumála. Það er sagt geta leitt til úranauðgunar í Sádi Arabíu.
New York Times greinir frá. Samkvæmt miðlinum verður samkomulagið undirritað í dag og þingið upplýst í framhaldinu. Búast má við andstöðu meðal þingmanna beggja flokka, auk þess sem stjórnvöld í Ísrael hafa áður lýst sig andsnúin úranauðgun Sáda. Óttast er að hún myndi að lokum leiða til þess að ríkið eignaðist kjarnavopn. Krónprinsinn Mohammed bin Salman hefur sagt að Sádar muni sannarlega smíða kjarnavopn ef Íranir gera það á undan. Samkomulag af þessu tagi var einnig til skoðunar í stjórnartíð Joe Biden en þá var það hugsað sem hluti af stærri samningi sem fæli meðal annars í sér viðurkenningu Sáda á Ísrael. Athygli hefur vakið að samkomulagið felur ekki í sér skuldbindingu af hálfu stjórnvalda í Sádi Arabíu um eftirlit af hálfu Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni, jafnvel þótt Sádar eigi aðild að henni. Embættismenn segja samkomulagið milljarða virði fyrir kjarnorkuiðnaðinn í Bandaríkjunum, þá ekki síst fyrirtækið Westinghouse, sem hannar marga af þeim kjarnakljúfum sem seldir eru til erlendra ríkja.
Kjarnorka Bandaríkin Sádi-Arabía Donald Trump Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira