Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. júlí 2026 06:32 Ráðherra segir að hvort sem svarið verði já eða nei, sé það þjóðin sem ræður. Það sé kjarni málsins. Vísir „Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um eitt: Viljum við að Ísland setjist við samningaborðið og freisti þess að ná eins hagfelldum samningi og völ er á, með þessi markmið að leiðarljósi? Verði svarið já opnum við á tækifæri. Með því að segja nei lokum við þessum dyrum. Í báðum tilvikum er það þjóðin sjálf sem ræður. Það er kjarni málsins, og hann breytist ekki þótt reynt sé að flækja hann.“
Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í aðsendri grein á Vísi. Ráðherrann segir grundvallaratriði málsins hafa „kafnað“ í hávaða undanfarnar vikur og að umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“. „Sumir fjölmiðlar hafa lagt sig fram um að mála þetta ferli sem eitthvað annað en það er. Ég ætla ekki að eyða dýrmætum tíma kjósenda í að eltast við hvert einasta slíkt skot. Þjóðin á betra skilið en þras. Hún á skilið staðreyndir,“ segir Þorgerður Katrín. Staðreyndin sé sú að ef niðurstaðan verði já, opnist dyr að samningaborðinu. Ekkert annað. Stjórnvöld muni setjast að borðinu með skýr markmið, ekki opinn tékka. „Og hafi einhver haldið að slíkar viðræður þýði að Ísland afsali sér einhverju fyrirfram, þá er sá skilningur einfaldlega rangur. Ekkert er frágengið fyrr en yfir lýkur, og þá aðeins ef þjóðin sjálf samþykkir niðurstöðuna.“ Að sögn utanríkisráðherra liggi samningsmarkmiðin fyrir, svart á hvítu, í áliti meirihluta utanríkismálanefndar. „Í sjávarútvegsmálum er markmiðið skýrt og engum vafa undirorpið: Ísland haldi fullu forræði yfir sjávarauðlindinni og rétti okkar til að stýra veiðum á grundvelli sjálfbærni, ráðgjafar sérfræðinga og veiðireynslu, og að afrakstur auðlindarinnar haldist hér áfram. Í landbúnaði er lögð áhersla á að hér verði áfram hægt að stunda öflugan landbúnað í þágu fæðuöryggis og byggða, og að banni við innflutningi lifandi dýra verði viðhaldið til að verja sérstöðu okkar sem eyju langt út í hafi. Í orkumálum er markmiðið að forræði þjóðarinnar yfir vatns og orkuauðlindum haldist óskorað, og að ákvörðun um sæstreng verði áfram íslensk ákvörðun eins og lög kveða á um í dag,“ segir ráðherra. Þá segir Þorgerður stefnt að því að Ísland geti tekið upp evru eins fljótt og aðstæður leyfa.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira