Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Aron Guðmundsson skrifar 8. ágúst 2026 09:19 Infantino sætir mikilli gagnrýni þessa dagana og hefur verið kallað eftir því að hann segi af sér. Vísir/Getty Gianni Infantino, forseti FIFA, hafnar fullyrðingum Daily Telegraph þess efnis að UEFA hafi greitt þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu hans er Infantino starfaði hjá UEFA sem aðalritari. UEFA staðfestir að greiðsla hafi verið innt af hendi.
Daily Telegraph birti í gær frétt þar sem þessu var haldið fram en Infantino starfaði sem aðalritari UEFA frá árinu 2009 til 2016. Infantino hefur sætt mikilli gagnrýni frá því að hann setti fram áætlun sína um að fá inn utanaðkomandi fjárfestingu inn í FIFA og þá hafa birst ásakanir um fjárkúgun og spillingu í hans garð. Þær hugmyndir féllu vægt til orða tekið í grýttan jarðveg og dró Infantino síðar í land. Einhver knattspyrnusambönd hafa dregið til baka stuðning sinn við hann, önnur sett fram stuðningsyfirlýsingu en UEFA hefur lýst yfir vantrausti og hótað sniðgöngu í mótum á vegum FIFA. Fullyrðingar Daily Telegraph um greiðslu UEFA til meintrar ástkonu Infantino birtast nú þegar að mikil ólga ríkir í kringum forsetann og hans störf. Talsmaður Infantino segir í samtali við Daily Telegraph að forsetinn „þvertaki fyrir þessar ósönnu ásakanir.“ Samkvæmt frétt Daily Telegraph var um að ræða sex tölustafa greiðslu UEFA til meintrar ástkonu Infantino, sem er giftur maður, á þeim tíma sem hann starfaði á vegum UEFA. UEFA hefur staðfest að umrædd greiðsla hafi verið innt af hendi til konu og að meðal annars hafi verið geitt fyrir meistaranám hennar. Greiðslurnar hafi verið í samræmi við reglugerðir þess tíma en að síðan þá hafi regluverkið verið hert til muna.
FIFA UEFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira