Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. ágúst 2026 07:30 Kosningarnar vestanhafs fara fram 3. nóvember næstkomandi. Margt getur gerst þangað til. Getty Einn helsti skoðanakannanasérfræðingur Bandaríkjanna telur 84 prósent líkur á því að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeild bandaríska þingsins í nóvember og 56,8 prósent líkur á því að þeir nái einnig yfirráðum í öldungadeildinni.
Repúblikanar ráða nú ríkjum í Hvíta húsinu og báðum þingdeildum og það myndi gjörbreyta hinu pólitíska landslagi ef þeir misstu völdin í fulltrúadeildinni, hvað þá ef öldungadeildin félli Demókrötum einnig í skaut. Sérfræðingar og aðrir spámenn eru sammála um að yfirgnæfandi líkur séu á því að Demókratar tryggi sér meirihluta í fulltrúadeildinni en öldungadeildin er annað mál. Þar mun baráttan hverfast um sex ríki: Maine, Michigan, Ohio, Texas, Iowa og Alaska. Eins og sakir standa eiga Repúblikanar 53 sæti í öldungadeildinni en Demókratar 47. Þar sem varaforsetinn ræður úrslitum ef atkvæði eru jöfn, þurfa Demókratar að fara með sigur af hólmi í að minnsta kosti fjórum af áðurnefndum sex ríkjum til að ná meirihluta. Trump sigraði Kamölu Harris með yfir tíu prósenta mun í fjórum ríkjanna: Ohio, Texas, Alaska og Iowa. Demókratar þurfa að taka tvö af þessum fjórum ríkjum, að því gefnu að þeir nái einnig Michigan og Maine. Eiga raunhæfan en þröngan möguleika Kosningaspá Nate Silver, sem hann kallar FLIPR, er nokkuð flókið fyrirbæri en tekur í megindráttum til þriggja áhrifaþátta; skoðanakannana, undirliggjandi þátta á borð við hið pólitíska landslag, almennt fylgi stjórnmálaflokkanna og „gæði“ frambjóðenda og niðurstöður annarra sérfræðinga. Deluxe-útgáfa spálíkansins tekur allt ofangreint og fleira með í reikninginn. Sérfræðingar eru almennt sammála um að Demókratar séu með byrinn í bakið; Donald Trump Bandaríkjaforseti er gríðarlega óvinsæll og þá hefur þjónkun þingmanna Repúblikanaflokksins við forsetann ekki verið þeim til framdráttar. Einn ofangreindra þátta sem spámenn horfa á er almennt fylgi (e. generic ballot) en Demókratar þurfa að tryggja sér sex til sjö prósenta forskot til að eiga möguleika á að taka öldungadeildina. Samkvæmt Silver stendur forskot þeirra í 7,6 prósentum og gæti raunar verið meira. Hann telur þannig Demókrata eiga raunhæfa möguleika á að taka öldungadeildina og rúmlega það en afar mjótt er á munum og lítið sem fara má úrskeiðis. Eins og sakir standa spáir kosningalíkan Silver Demókrötum sigri í Maine, Michigan, Ohio, Texas og Alaska. Samkvæmt líkaninu er útlit fyrir að Repúblikanar taki Iowa. Hér fyrir neðan má sjá stöðu mála í ríkjunum sex. Maine Troy Jackson (D) og Susan Collins (R). Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur Troy Jackson forskots á Susan Collins og mælist með 49,7 prósent fylgi, samanborið við 46,1 prósent Collins. FLIPR metur líkurnar á því að Demókratar nái öldungadeildarsætinu 68,2 prósent. Jackson varð fyrir valinu sem frambjóðandi Demókrata eftir að Graham Platner, sem naut mikilla vinsælda, var ásakaður um kynferðisofbeldi. Collins hefur vermt öldungadeildarsætið frá 1997, þykir hófsöm og hefur verið meðal örfárra Repúblikana sem eru þekktir fyrir að greiða atkvæði með Demókrötum. Vinsældir hennar hafa hins vegar dvínað í seinni stjórnartíð Trump. Michigan Abdul El-Sayed (D) og Mike Rogers (R). Abdul El-Sayed hefur naumt forskot á Mike Rogers eins og sakir standa. El-Sayed mælist með 46,4 prósent fylgi en Rogers með 45,4 prósent. FLIPR metur líkurnar á sigri Demókrata í ríkinu 71,6 prósent. El-Sayed sigraði Haley Stevens í forvali Demókrataflokksins, þrátt fyrir að Stevens nyti stuðnings The American Israel Public Affairs Committee og hefði mun meira fé milli handanna til að heyja vægðarlausa auglýsingaherferð gegn andstæðingi sínum. El-Sayed þykir eiga nokkuð inni, nú þegar Stevens og aðrir demókratar hafa fylkt sér að baki honum. Þeir sem þekkja til segja hann engu að síður þurfa að vanda sig til að ná til óháðra og óákveðinna. Mörgum þykir hann nefnilega nokkuð dómharður og hrokafullur. Ohio Sherrod Brown (D) og Jon Husted (R). Samkvæmt FLIPR eru 60,7 prósent líkur á því að Sherrod Brown tryggi Demókrötum öldungadeildarþingsætið í Ohio. Hann mælist með 49,1 prósent fylgi en Repúblikaninn Jon Husted með 46 prósent. Brown var öldungadeildarþingmaður fyrir Ohio árin 2007 til 2025. Þá tapaði hann sætinu en naut engu að síður átta prósentum meira fylgis en Kamala Harris fékk í forsetakosningunum í ríkinu. Husted er sitjandi öldungadeildarþingmaður en hann tók við stólnum af J.D. Vance þegar sá síðarnefndi varð varaforseti. Texas James Talarico (D) og Ken Paxton (R). Texas er það ríki sem spámenn telja líklegast til að ráða úrslitum um yfirráð yfir öldungadeildinni en FLIPR metur líkurnar á sigri Demókrata 60,5 prósent. James Talarico mælist með 47,4 prósent fylgi samanborið við 45,6 prósent Ken Paxton. Paxton var kjörinn fulltrúi Repúblikanaflokksins í kjölfar stuðningsyfirlýsingar frá Trump en hefur, líkt og forsetinn, verið viðriðinn hvert hneykslismálið á fætur öðru. Texas hefur hingað til verið blóðrautt í kosningum en „gæði“ Talarico sem frambjóðanda, almennur byr undir vængjum Demókrata og óvinsældir Paxton gera það að verkum að öldungadeildarsætið gæti loksins skipt um hendur. Iowa Josh Turek (D) og Ashley Hinson (R). Margir telja að afar mjótt verði á munum í Iowa en líklega muni Repúblikaninn Ashley Hinson taka sætið. FLIPR metur líkurnar á sigri Demókrata aðeins 44 prósent en eins og sakir standa mælist Hinson með 47 prósent fylgi og Josh Turek með 46,5 prósent. Hvorugur frambjóðandinn er hokinn af reynslu og hafa Hinson og Turek verið bendluð við hneykslismál. Turek er bundinn við hjólastól og hefur hlotið tvenn gullverðlaun á Ólympíumóti fatlaðra en Hinson er þingmaður og fyrrverandi sjónvarpsfréttamaður. Alaska Mary Peltola (D) og Dan Sullivan (R). Það urðu stórar breytingar á spám fyrir Alaska í vikunni þegar það lá fyrir að slagurinn myndi sannarlega standa á milli Mary Peltola og Dan Sullivan. Fyrir það spáði FLIPR Sullivan sætinu en líkanið metur líkurnar á sigri Peltola nú 52,6 prósent. Peltola mælist með 48 prósent fylgi í skoðanakönnunum og Sullivan með 46,6 prósent. Sigur í Alaska yrði himnasending fyrir Demókrataflokkinn og pólitískur sigur fyrir Chuck Schumer, leiðtoga flokksins í öldungadeildinni, sem gekk fast á eftir því að Peltola gæfi kost á sér. Spámarkaðirnir Spámarkaðir njóta nú sívaxandi vinsælda vestanhafs en þar geta menn veðjað á allt milli himins og jarðar. Íþróttir og stjórnmál eru sérlega vinsæl meðal áhættusækinna og hafa milljónir dala verið lagðar undir í veðmálum um úrslit kosninganna í nóvember. Þegar tveir vinsælustu markaðirnir, Polymarket og Kalshi, eru skoðaðir má sjá að veðmálin eru nokkuð í takt við spálíkön og skoðanakannanir. Það er ef til vill ekki skrýtið þar sem það virðist skynsamlegt að taka tillit til þeirra þegar lagt er undir. Líkur á báðum mörkuðum eru Demókrötum í hag en hins vegar er afar mjótt á munum. Samkvæmt Polymarket eru 51 prósent líkur á að Demókratar nái öldungadeildinni og 89 prósent líkur á að þeir taki fulltrúadeildina. Á Kalshi eru 47 prósent líkur á að Demókratar nái meirihluta í báðum deildum og 39 prósent líkur á að þeir verði í meirihluta í fulltrúadeildinni en Repúblikanar haldi öldungadeildinni. Aðeins fjórtán prósent líkur eru taldar á því að Repúblikanar verði áfram við völd í báðum deildum. Hvað varðar ríkin sex sem hér hafa verið rædd eru markaðirnir samhljóma spá Silver, að einu ríki undanskildu. Samkvæmt Silver og Polymarket mun James Talarico fara með sigur af hólmi gegn Ken Paxton í Texas en Paxton verður ofan á samkvæmt Kalshi. Athugasemd blaðamanns: Allar tölur í fréttinni miðast við stöðuna eins og hún var að morgni 21. ágúst.
Bandaríkin Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira