„Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Aron Guðmundsson skrifar 25. ágúst 2026 10:45 Gianni Infantino, forseti FIFA hefur sætt mikilli gagnrýni en heldur framboði sínu til endurkjörs í embætti til streitu. KSÍ hefur skrifað undir yfirlýsingu, ásamt öðrum knattspyrnusamböndum Norðurlandanna þar sem lýst er yfir vantrausti á hendur Infantino. Þorvaldur Örlygsson er formaður KSÍ Samsett/Getty/Vísir Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, segir það ekki undir sér komið að segja til um það hvort Gianni Infantino sé stætt í embætti sem forseti FIFA. KSÍ er eitt af aðildarsamböndum UEFA sem vill fá utanaðkomandi aðila til þess að fara yfir stjórnarhætti í nýlegu hneykslismáli.
KSÍ og önnur knattspyrnusambönd Norðurlandanna sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu um helgina þar sem lýst var yfir vantrausti á hendur Gianni Infantino, forseta FIFA, í kjölfar áætlunar forsetans að selja hlut í innviðum sambandsins til einkafjárfesta. Eftir mikla gagnrýni neyddist Infantino til þess að draga áætlun sína til baka. Í yfirlýsingu KSÍ og hinna sambandanna er alvarlegum áhyggjum lýst yfir af stjórnarháttum og ákvarðanatöku í æðstu lögum FIFA. „Staðan er náttúrulega bara þannig að við, eins og flest önnur sambönd, styðjum þá yfirlýsingu sem hefur komið ekki svo alls fyrir löngu frá UEFA,“ segir Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ í samtali við íþróttadeild Sýn. „Styðjum það og höfum verið í sambandi við UEFA og fylgst mjög vel með. Nú þegar að við hittumst, Norðurlöndin, fannst okkur kjörið að setja út þessa tilkynningu. Lýsa yfir því sem við höfum áhyggjur af, eftir að sú tillaga sem kom fram og kallast FFE. Við erum með áhyggjur af stjórnarháttum og annað. Viljum að það ferli sem var í gangi verði skoðað. Með framtíð knattspyrnunnar í huga er mjög vænlegt að gera það. Stjórnarhættina þurfi að skoða Er hægt að túlka þessa yfirlýsingu þannig að þið komið nú með þá beiðni til Infantino að stíga til hliðar? „Í raun erum við fyrst og fremst að benda á stjórnarhættina. Það er undir forsetanum sjálfum komið, FIFA og stjórn FIFA að sjá hvað hann vill gera. Í þessu ferli, hvort það verði kosinn nýr forseti eða hann verði áfram, er bara eitthvað sem tíminn mun leiða í ljós. Við viljum að það sé skýrt, að knattspyrnan sé virt og annað. Við berum vissulega virðingu fyrir FIFA og UEFA, en fyrst og fremst erum við að benda á stjórnarhættina.“ Infantino ætlar að sitja sem fastast og bjóða sig fram til endurkjörs á þingi FIFA í mars á næsta ári. Enn hefur ekki komið fram mótframboð. Evrópska knattspyrnusambandið, sem KSÍ er aðili að, hefur lýst yfir vantrausti og hótað sniðgöngu sinna aðildarþjóða á mótum á vegum FIFA. UEFA sem og knattspyrnusamband ASÍ og Norður, Suður- og Mið Ameríku eru sögð róa í sömu átt í þessu máli og hefur fréttaveitan Reuters heimildir fyrir því að þau íhugi að þvinga fram kosningu um vantraust á hendur Gianni Infantino innan FIFA. Engin fordæmi eru fyrri slíkri kosningu í 122 ára sögu sambandsins. Vilja að farið sé eftir settum reglum Þegar að maður hefur í huga ímynd knattspyrnunnar á alþjóðavísu. Er honum stætt í embætti? „Það er svo sem ekkert undir mér komið að tjá mig um það. Við erum að fylgjast með, skoða málin og sjá hvernig framtíðin verður. Það er óhætt að segja að okkur þykir vænt um FIFA og UEFA. Við viljum að það sé farið eftir settum reglum og unnið vel að málum þegar að þessi mál koma upp. En fyrst og fremst viljum við að fengnir verði utanaðkomandi aðilar til þess að skoða stjórnarhættina í þessu máli.“ Brot úr viðtalinu við Þorvald var sýnt í Sportpakkanum á Sýn í gær og má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
KSÍ FIFA UEFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö Íslenski boltinn „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Enski boltinn Læti í göngunum eftir leik Íslenski boltinn Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Íslenski boltinn KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Íslenski boltinn Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Íslenski boltinn „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ Íslenski boltinn Dagur Kári jók erfiðið og hreppti brons í Ungverjalandi Sport Fleiri fréttir Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö „Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Albert með Lazio á toppinn en Þórir settist niður Jón Dagur mætir sjóðheitur í landsleikina Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Sjáðu markið sem kom Þrótti í Bestu deildina „Skorti yfirvegun og gæði á hólminum“ „Vinnusemi og liðsheild skilaði þessum sigri“ „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Raphinha með þrennu í Sevilla Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið „Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 0-1 | Margrét tryggði Þór/KA dýrmæt stig á Hlíðarenda „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Harry Kane sló ótrúlegt met í Þýskalandi Læti í göngunum eftir leik Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Ævintýrið heldur áfram hjá Frey og hans mönnum Sjáðu trylltan fögnuð Víkinga þegar titillinn var í höfn og viðtal við hetjuna Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Glódís og liðsfélagar hennar unnu þægilegan sigur Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Sjá meira