Inga segir já Lovísa Arnardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 28. ágúst 2026 12:34 Inga Sæland hefur þegar greitt atkvæði. Vísir/Lýður Inga Sæland formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra hefur þegar greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun, og sagði já. Inga segir hótanir, ósannindi og falsfréttir í aðdraganda kosninga yfirgengilegar. Henni hafi verið hótað eins og fleiri ráðherrum.
Inga greindi frá þessu í viðtali við Berghildi Erlu Bernharðsdóttur fréttamann að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. „Ég hef þegar greitt atkvæði,“ segir Inga og að hún sé ánægð með þessa lýðræðisveislu sem atkvæðagreiðslan er. „Við erum að gefa þjóðinni okkar valdið,“ segir hún Inga segir ýmislegt hafa haft áhrif á það að hún hafi skipt um skoðun í málinu og nefndi í því samhengi upplýsingaóreiðu og falsfréttir sem henni hafa þótt yfirgengilegar í aðdraganda kosninganna. Inga segir að hún harmi á sama tíma orðræðu ákveðinna aðila í samfélaginu í aðdraganda kosninganna. „Ég harma lygar, ósannindi, hótanir og ofbeldi. Ég á ekki orð. Ég bjóst aldrei við því þegar við vorum í góðri trú að gefa þjóðinni okkar valdið að þetta væri útkoman.“ Inga segir til dæmis Guðlaug Þór Þórðarson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, halda því fram í Bítinu í morgun að á morgun eigi að greiða atkvæði um inngöngu í Evrópusambandið. „Það er eins ósatt og það getur orðið,“ segir hún og að á morgun sé verið að greiða atkvæða um það hvort við viljum halda áfram samningaviðræðum við Evrópusambandið. „Það er algjörlega hafsjór þar á milli,“ segir hún og að atkvæðagreiðslan verði, ef það kemur já, í tvennu lagi. Þjóðin muni alltaf hafa valdið. „Mér finnst þetta hafa verið óvægið, óprúttið, ég hefði ekki trúað því að ég yrði vitni að slíku.“ Inga segist sjálf vilja sjá samninginn og að hún hafi áður verið nei-sinni. Þessi staða sem hafi teiknast upp, þar sem allir þeir sem eigi Ísland vilji halda áfram að gera það og ekki gefa venjulegu fólki tækifæri á því að sjá hvað er í boði. Salt-ill vegna orðræðu nei-sinna Hún segir þessa stöðu og orðræðu nei-sinnanna hafa gert hana salt-illa. Það viti allir sem hafi heimsótt eitthvert 27 Evrópusambandsríkjanna að matvælaverðið er allt annað en okkar. „Þessi samningur gæti verið algjörlega út úr öllu korti og þjóðin segir bara nei, en ætla að loka þessum dyrum og sjá ekki hvort við eigum möguleika á því að komast í eitthvað sambærilegt sem við sjáum í öllum hinum 27 löndunum, þar sem vextir hafa lækkað, þar sem verðbólga er minni,“ segir hún og að það megi sjá að í löndum sem einnig upplifðu mikla verðbólgu eftir heimsfaraldur Covid að þau séu búin að jafna sig og ná henni niður. „Að fólkið okkar skuli í rauninni láta auðmagnið og þau sem eru með átta og hálfa milljón á mánuði ætla að fara að leiða þetta. Þá sem slógu Íslandsmet í málþófi í fyrra til að koma í veg fyrir að þjóðin fengi rentu af sjávarauðlindinni. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því,“ segir Inga og að fyrir sína parta vilji hún að sama hvernig fer á morgun þá sé ríkisstjórnin einhuga og standi þéttar saman en nokkru tíma fyrr. „Við virðum bæði sjónarmið og þannig líður mér akkúrat núna.“ Hún segir það samt sem áður hafa hleypt í sig illu blóði síðustu daga að gott fólk hafi orðið fyrir ósannindum, ómálefnalegum hótunum, líflátshótunum og ofbeldi. „Ég á ekki orð og hef sjaldan orðið eins hissa.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, greindi í Bítinu á Bylgjunni í morgun frá alvarlegum hótunum í sinn garð í aðdraganda kosninganna. Inga segir fleiri ráðherra hafa orðið fyrir samskonar hótunum og sjálf hafi hún orðið fyrir „nettum“ hótunum sem ekki séu jafn alvarlegar og aðrir hafi fengið að þola. „Hver einasta hótun er andstyggileg og á ekki að eiga sér stað,“ segir hún en vill ekki tjá sig um það hverjir hafa orðið fyrir hótunum. Stefna Flokks fólksins hefur alltaf verið á móti Evrópusambandinu en Inga segir að þó svo að það sé stefna finnist henni í lagi að skoða hvað þau myndu fá og þau geti þá skipt um skoðun síðar. Hefur ekki snúist hugur Inga segir að þó svo að hún segi já í þessari atkvæðagreiðslu hafi henni ekki snúist hugur um það að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Það sé skýr stefna flokksins að þau séu ekki hlynnt aðild en þar með sé ekki sagt að þau vilji ekki sjá hvaða tækifæri geti verið að finna í breyttu landslagi í alþjóðamálum. Hún vilji ekki stinga hausnum í sandinn en það kæmi aldrei til greina að halda áfram án varanlegra yfirráðs á okkar auðlindum. Hún segir það skýrt af hálfu ríkisstjórnarinnar. Inga segist þannig í dag á móti því að ganga í Evrópusambandið en hún sé ekki það mikil „þvermóðskukelling“ að hún geti ekki skipt um skoðun fáist góður samningur í samningaviðræðum. Inga segir það liggja fyrir að innan flokksins séu skiptar skoðanir en í það minnsta þrír þingmenn flokksins ætla að segja nei. Þau Jónína Björk Óskarsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Sigurjón Þórðarson. Fjallað var um afstöðu ólíkra þingmanna í frétt á Vísi í síðustu viku en ráðherrar Flokks fólksins höfðu þá ekki svarað fyrirspurn Vísis um málið. „Þetta kemur allt í ljós á morgun,“ segir hún og að ríkisstjórnin standi þétt saman. Fréttin hefur verið uppfærð.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Flokkur fólksins Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira