Handbolti

Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag

Andri Broddason skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæsti leikmaður Magdeburg í dag.
Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæsti leikmaður Magdeburg í dag. Getty/Jürgen Fromme

Magdeburg hafði betur gegn Gummersbach í Íslendingaslagnum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Gísli Þorgeir Kristjánsson var næstmarkahæsti leikmaður Magdeburg.

Fyrsta umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta er hafin og var alvöru Íslendingaslagur í fyrstu umferð. Gummersbach tók á móti Magdeburg og spila margir Íslendingar í báðum liðum. Einnig er Guðjón Valur Sigurðsson að þjálfa Gummersbach en hann er nýbúinn að framlengja við félagið.

Magdeburg byrjaði leikinn aðeins betur en liðið náði aldrei að stinga Gummersbach af. Nokkur mörk voru milli liðanna þangað til Elliði Snær Viðarsson, leikmaður Gummersbach, jafnaði metin rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.

Við það hrakk Magdeburg í gír og skoraði síðustu þrjú mörk hálfleiksins og var Magdeburg með fjögurra marka forystu í hálfleik, 18-14.

Í seinni hálfleik hélt leikurinn áfram að vera jafn og munaði aldrei meira en fjórum mörkum á liðunum. Gummersbach náði þó aldrei Magdeburg og endaði leikurinn á 33-31 sigri Magdeburg.

Miro Schluroff, leikmaður Gummersbach, var markahæsti leikmaður leiksins með ellefu mörk. Matthias Musche var markahæsti leikmaður Magdeburg með níu mörk.

Elliði Snær Viðarsson var með sjö mörk fyrir Gummersbach og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði jafn mörg mörk og Elliði fyrir Magdeburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×