Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. september 2026 16:18 Halla Tómasdóttir forseti Íslands hvatti landsmenn til þess að velja samtalið, virðinguna og hvert annað í ræðu sinni á setningu Alþingis í dag. Anton Brink Nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla og missir sem minni á hvað skipti mestu máli var meðal þess sem var forseta Íslands hugleikið í ávarpi sínu við þingsetningu í dag. Halla Tómasdóttir setti 158. löggjafarþing í dag. „
Við höfum vegið og metið kosti og galla ólíkra leiða og tekið afstöðu. Þannig á það að vera í lýðræðissamfélagi. Þótt mjótt hafi verið á munum er niðurstaðan skýr og hana ber að virða. Um leið skulum við sýna skilning á þeim vonbrigðum og sterku tilfinningum sem niðurstaðan vekur hjá mörgum,“ sagði Halla Tómasdóttir í upphafi ávarps síns eftir að hún bauð þingmenn velkomna. Lýðræðið byggi á því að valdið liggi hjá þjóðinni og að almenningur fái tækifæri til að taka afstöðu til stórra og umdeildra mála. Það sé merki um styrk lýðræðisins, ekki veikleika. Áður hafi Íslendingar tekist á um stór mál en þeim hafi tekist að horfa fram á veginn eins og tilefni sé til nú. „Nú er spurningin ekki lengur hvernig við greiddum atkvæði, heldur hvernig samfélag við veljum að skapa saman,“ sagði Halla. Ávarpið í heild sinni má hlusta á í spilaranum hér að neðan. Skrifum svarið sjálf Lýðræðislegt samfélag verði ekki til af sjálfu sér. „Við mótum það á hverjum degi, með því hvernig við tölum saman, hvernig við hlustum og hvernig við berum virðingu fyrir þeim sem sjá framtíðina með öðrum augum en við sjálf.“ Þjóðaratkvæðagreiðsla svari þeirri spurningu sem var lögð fyrir þjóðina. „En hún svarar ekki spurningunni um hvernig samfélag við viljum vera þegar niðurstaðan liggur fyrir. Það svar skrifum við sjálf. Með orðunum sem við veljum. Með virðingunni sem við sýnum. Með því að hlusta á hvert annað.“ Vottaði öllum þeim sem syrgja sína samúð Í ræðu sinni minntist Halla minntist þriggja ungmenna sem létust í bílslysi á Krísuvíkurvegi í síðustu viku og vottaði fjölskyldu, vinum og öllum þeim sem syrgja innilegrar samúðar. „Slíkur missir snertir okkur öll og minnir okkur með sársaukafullum hætti á það sem skiptir mestu máli,“ sagði Halla. Mikilvægt sé að taka utan um börnin og unga fólkið, hlusta á þau og styðja. „Því ekkert segir meira um styrk samfélags en hvernig börnunum okkar og unga fólkinu líður. Hvernig við tökum utan um hvert annað segir líka mikið um það samfélag sem við viljum vera,“ sagði Halla. Næst beindi hún máli sínu að þingmönnum en þeirra bíði stór og mikilvæg verkefni. Á Alþingi sé rými til þess að sýna að hægt sé að vera ósammála af virðingu og að auðmýkt og sannfæring geti farið saman. „Þið getið ákveðið hvernig þið mætið þeim: Með skýrri sannfæringu og opnum hug. Með hugrekki til að hlusta. Og með auðmýkt. Ég vona að þegar börn okkar og barnabörn líta til baka á þennan tíma muni þau ekki fyrst horfa til þeirra mála sem skiptu okkur í fylkingar, heldur kveikja í þeim von um veröld betri,“ sagði Halla Tómasdóttir forseti Íslands á þingsetningu í dag.
Alþingi Forseti Íslands Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þrír létust í banaslysi á Krýsuvíkurvegi Halla Tómasdóttir Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira