Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Bjarki Sigurðsson skrifar 20. september 2026 14:29 Ásdís Kristjánsdóttir og Orri Hlöðversson, oddvitar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Kópavogi. Ásdís er bæjarstjóri og Orri varaformaður bæjarráðs. Vísir/Vilhelm Bæjarráð Kópavogs skorar á ríki og sveitarfélög að takmarka gjaldskrárhækkanir gagnvart barnafjölskyldum. Bæjarstjórinn segir það vonbrigði að ríkið hækki allar gjaldskrár um 5,2 prósent. Við náum ekki tökum á verðbólgunni ef ríkið keyrir upp sínar gjaldskrár langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans.
Í apríl 2026 tilkynnti Kópavogsbær að takmarkanir yrðu settar á gjaldskrárhækkanir gagnvart barnafjölskyldum. Gjaldskrárnar myndu ekki hækka meira en 2,5 prósent til að verja ráðstöfunartekjur barnafjölskylda, draga úr verðbólguþrýstingi og styðja við forsendur kjarasamninga. Vilja fá aðra í lið með sér Á fundi bæjarráðs á fimmtudag bókaði ráðið að haldi forsendur kjarasamninga og ríki og önnur sveitarfélög lýsi sig reiðubúin til sambærilegra aðgerða verði tryggt að áfram verði 2,5 prósenta þak á hækkanir gjaldskráa fyrir barnafólk. „Ástæðan fyrir því að við erum að stíga fram er vegna þess að við, eins og allir, höfum auðvitað verulegar áhyggjur af því hvernig verðbólgan hefur verið að þróast og vextir að hækka. Og það er auðvitað í hagsmunum okkar allra að við náum 2,5 prósenta verðbólgunni,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, í samtali við fréttastofu. Vonbrigði að sjá dræmar viðtökur Eftir að hafa sett þakið á hækkanirnar í apríl gerðu Fjarðabyggð og Árborg slíkt hið sama. Ásdís segir það vonbrigði að ekki fleiri sveitarfélög hafi tekið skrefið. „Það eru svo auðvitað að mínu mati gríðarleg vonbrigði að sjá það í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar að það er verið að gera ráð fyrir því að gjaldskrárhækkanir ríkisins muni hækka um 5,2 prósent. Þetta er rúmlega tvöföld hækkun á við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Ég held að það sjái það allir og það blasir við að við náum ekki tökum á verðbólgunni ef að ríkið ætlar hér að keyra upp sínar gjaldskrár langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans,“ segir Ásdís. Gjaldskrárnar snúi mest að leik- og grunnskólum. Það sé erfitt fyrir heimilin að ná endum saman í þessari þrálátu verðbólgu og það sé mikilvægt að verja ráðstöfunartekjur heimilanna. „Ég vona svo sannarlega að þau muni bakka með þessar hækkanir og koma með okkur í þessa vegferð,“ segir Ásdís.
Kópavogur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Börn og uppeldi Fjölskyldumál Skóla- og menntamál Grunnskólar Leikskólar Sveitarstjórnarmál Rekstur hins opinbera Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira