Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Árni Sæberg skrifar 23. september 2026 12:21 Sex voru leiddir fyrir dómara vegna málsins í gær. Vísir/Viktor Framkvæmdastjóri hjá bílaumboðinu BL er einn þeirra sem handteknir voru í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu vegna gruns um fíkniefnabrot í gær.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á annan tug manna í umfangsmiklum aðgerðum í gær. Sex voru leiddir fyrir dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur í gærkvöldi og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Mennirnir sex eru allir íslenskir. Vísir fjallaði í morgun um það að einn hinna handteknu væri framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki í Reykjavík, sem hefði verið handtekinn í vinnunni í gær en snúið aftur til vinnu síðdegis. Erna Gísladóttir, forstjóri bílaumboðsins BL, hefur nú sent fjölmiðlum yfirlýsingu þar sem kemur fram að um starfsmann umboðsins sé að ræða. Hann hafi verið settur í tímabundið leyfi fré störfum. „Vegna aðgerða lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fram fóru í gærmorgun, þriðjudag, þar sem fjöldi manns var handtekinn, þar á meðal einn starfsmaður hjá okkur, vill fyrirtækið taka skýrt fram að það, sem slíkt, á enga aðkomu að málinu og býr ekki yfir meiri vitneskju um málavöxtu en þeirri sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum. Umræddur starfsmaður hefur verið leystur undan vinnuskyldu tímabundið, eða þar til mál skýrast frekar til að unnt sé að taka frekari ákvarðanir. Fyrirtækið mun veita lögreglunni alla þá aðstoð sem okkur er unnt að veita og hún kann að fara fram á, en mun ekki tjá sig frekar að svo stöddu,“ segir í yfirlýsingunni.
Fíkniefnabrot Bílar Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira