Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Kjartan Kjartansson skrifar 23. september 2026 13:32 Breskur landamæravörður kannar vegabréf á Gatwick-flugvelli. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/Getty Lögregluyfirvöld á Íslandi tóku þátt í fjölþjóðlegri rannsókn á evrópskum glæpahring sem smyglaði fólki frá meginlandi Evrópu til Bretlands. Sex voru handteknir í aðgerðum Evrópulögreglunnar í gær.
Smyglhringurinn er sagður hafa haft bækistöðvar í nokkrum Evrópusambandsríkjum. Hann hafi sérhæft sig í skjalafalsi, peningaþvætti og skipulögðu smygli á fólki. Smyglararnir notuðu fölsuð skjöl til þess að koma fólki Lögreglulið frá sautján ríkjum tóku þátt í rannsókninni. Íslenska lögreglan er sögð hafa rannsakað mismunandi smyglleiðir samtakanna á frumstigum rannsóknarinnar ásamt lögreglu í Belgíu, Finnlandi, Þýskalandi, Írlandi, Svíþjóð og Hollandi. Evrópulögreglan segir að smyglleiðirnar hafi legið í gegnum sautján lönd. Flestir þeirra sem var smyglað komu inn í Evrópusambandið á löglegu vegabréfi og í mörgum tilfellum með gilda ferðamannaáritun innan Schengen-svæðisins. Þegar fólkið var komið inn á Schengen-svæðið er það sagt hafa eyðilagt og fargað skilríkjum sínum og framvísað í staðinn fölsuðum skilríkjum smyglhringsins. Þannig hafi fólkið farið huldu höfði og ferðast innan Evrópu. Þvættuðu ávinning í gegnum snjallsímabúðir Sex voru handteknir í samhæfðum aðgerðum lögreglu í Austurríki, á Ítalíu, Spáni og í Bretlandi í gær. Húsleit var gerð á tíu stöðum og hald var lagt á tækjabúnað og skjöl, meðal annars skilríki og töluvert magn reiðufjár. Afganskir og pakistanskir ríkisborgarar eru sagðir hafa stýrt deild samtakanna í Vínarborg. Þeir eru taldir hafa falsað skilríki. Á Spáni er önnur deild talin hafa dreift rúmlega þúsund fölsuðum skilríkjum. Þau hafi borist með sendlum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum til Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku og Karíbahafsins. Þá eru samtökin sögð hafa notað snjallsímaverslanir til þess að þvætta ávinning af brotastarfseminni. Tekjurnar af starfseminni eru taldar hafa numið um tveimur milljónum evra, jafnvirði um 277 milljóna íslenskra króna.
Lögreglumál Bretland Evrópusambandið Erlend sakamál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira