Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Freyja Þórisdóttir skrifar 27. september 2026 21:39 Á myndinni má sjá Aleksandar Vucic, forseta Serbíu, undirrita afsögn sína sem forseti lýðveldisins. AP Aleksandar Vucic forseti Serbíu hefur sagt af sér en mótmæli hafa dunið á honum og ríkisstjórninni síðustu árin. Hann hafði setið sem forseti frá árinu 2014 og voru sjö mánuðir eftir af fimm ára kjörtímabilinu sem hófst árið 2017 þegar hann tilkynnti afsögn sína.
Mótmæli ungs fólks og vaxandi óánægja almennings vegna aukinnar spillingar í stjórnkerfinu hafa einkennt síðasta árið í valdatíð Vucic. Hann hafði fyrr í haust boðað til skyndikosninga þann 25. október næstkomandi í von um að það myndi draga úr spennu og fá kjósendur til að segja hug sinn. Haft er eftir Vucic í erlendum miðlum á borð við breska ríkisútvarpið að stjórn hans hefði varðveitt frið og stöðugleika á níu ára valdatíð sinni. Hann hafði þegar tilkynnt um fyrirætlanir sínar um að segja af sér í júní og taldar eru miklar líkur á því að hann bjóði sig nú fram sem forsætisráðherraefni í komandi þingkosningum. Ana Branbic, forsætisráðherra Serbíu, tók við af Vucic sem starfandi forseti Serbíu þar til nýr forseti hefur verið kosinn. Vucic má ekki bjóða sig fram aftur sem forseti þar sem samkvæmt stjórnarskrá Serbíu má forseti ekki sitja lengur en tvö kjörtímabil. Mótmælaalda upphófst í Serbíu í kjölfar þess að sextán manns létust þegar steinsteypt skyggni á járnbrautarstöð hrundi í borginni Novi Sad í nóvember árið 2024. Mótmælendur hafa meðal annars krafist þess að einhver axli ábyrgð á harmleiknum, er fram kemur í frétt Al Jazeera um málið. Mótmælendur töldu að slysið endurspeglaði meira en áratug af stjórnartíð flokks Vučić, sem talaði mikið fyrir endurbættri stöð, en endurbæturnar áttu að vera tákn um framfarir í Serbíu. Samkvæmt stjórnarskrá Serbíu verður að halda forsetakosningar eigi síðar en þremur mánuðum eftir afsögn hans og því má reikna með því að Serbar muni flykkjast á kjörstað tvisvar til fyrir árslok, fyrst í lok október og svo að öllum líkindum í desember.
Serbía Tengdar fréttir Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Ítrekað er ráðist að fjölmiðlafólki í Serbíu með ofbeldi. Ritstjóri á nær einu frjálsu sjónvarpsfréttastöð landsins biðlar til Evrópuríkja um að fordæma aðför ráðamanna að fjölmiðlafrelsi. Forseti Serbíu freisti þess að ná stjórn á miðlinum. 26. október 2025 20:02 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira
Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Ítrekað er ráðist að fjölmiðlafólki í Serbíu með ofbeldi. Ritstjóri á nær einu frjálsu sjónvarpsfréttastöð landsins biðlar til Evrópuríkja um að fordæma aðför ráðamanna að fjölmiðlafrelsi. Forseti Serbíu freisti þess að ná stjórn á miðlinum. 26. október 2025 20:02