Forseti Serbíu hyggst segja af sér Aleksandar Vucic, forseti Serbíu, hyggst segja af sér embætti „innan nokkurra vikna“ og í kjölfarið boða til kosninga. Mikil mótmæli hafa verið í landinu síðustu vikurnar. Erlent 27.6.2026 19:26
Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti í löndum Balkanskaga er ekki fyrir viðkvæma en meira að segja þeir hörðustu hætta keppni þegar flugeldum er skotið inn á völlinn. Handbolti 28.5.2026 09:00
„Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Lögmenn hafa farið fram á það fyrir alþjóðadómstólnum í Haag að stríðsglæpamaðurinn Ratko Mladić verði látinn laus á grundvelli þess að hann sé við dauðans dyr. Hann fékk minniháttar slag í síðasta mánuði og heilsu hans hrakar hratt. Erlent 1.5.2026 21:33
Ævinlega þakkláti flóttamaðurinn Á þessum degi 04 ágúst, fyrir nákvæmlega þrjátíu árum varð ég flóttamaður. Ég var ein af þeim 200.000 Serbum sem voru hraktir á brott (eða drepnir) frá svæðunum sem króatíski herinn tók yfir og Serbar voru minnihluti í, og ég lifði það af. Skoðun 5. ágúst 2025 08:30
Hitamet slegið á Spáni um helgina Hitamet var slegið á Spáni í gær þegar hiti mældist 46 gráður í bænum El Granado. Útlit er fyrir að mánuðurinn verði sá heitasti í sögu Spánar samkvæmt veðurstofu landsins. Fjallað er um málið á vef BBC en hitabylgja gengur nú yfir í Evrópu. Víða hafa stjórnvöld gefið út viðvaranir vegna hita. Erlent 29. júní 2025 21:34
Sjá ekki fyrir sér framtíð í heimalandi sínu Serbar á Íslandi halda samstöðumótmælafund á Austurvelli í dag. Stúdentar í Serbíu hafa mótmælt ríkisstjórn Aleksandar Vučić í fleiri mánuði. Serbneskur námsmaður á Íslandi segist vilja sýna þeim stuðning sem berjast fyrir betri Serbíu. Innlent 15. mars 2025 11:08
Forsætisráðherra Serbíu segir af sér í kjölfar mótmæla Miloš Vučević, forsætisráðherra Serbíu, hefur sagt af sér í kjölfar mótmæla stúdenta og bænda sem stöðvuðu umferð við Autokomanda-gatnamót í Belgrad í gær. Erlent 28. janúar 2025 11:00
Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Borgaryfirvöld í serbnesku höfuðborginni Belgrad hafa ákveðið að gera notkun almenningssamgangna í borginni gjaldfrjálsa frá og með áramótum. Er þetta liður í því að reyna að létta á umferð í borginni og draga úr töfum. Erlent 19. desember 2024 07:53
Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Þjóðarleiðtogar heimsins og aðrir leiðtogar eru byrjaðir að kasta kveðjum á Donald Trump og hrósa honum fyrir væntanlegan sigur hans í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Þeirra á meðal eru Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, og Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands. Erlent 6. nóvember 2024 08:46
Létust þegar skyggni hrundi ofan á þau í Serbíu Átta manns eru látnir eftir að steypuskyggni á járnbrautarstöð í næststærstu borg Serbíu í dag. Tveir til viðbótar eru slasaðir, þar á meðal karlmaður sem þurfti að aflima, og fleiri voru fastir undir brakinu. Erlent 1. nóvember 2024 15:56
Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Lögreglan í Serbíu handtók í gær leigumorðingja sem myrti mann í Belgrad fyrir skipulögð glæpasamtök árið 2021. Leigumorðinginn er sagður hafa dulbúið sig sem gamlan mann til þess að nálgast fórnarlambið. Erlent 16. október 2024 09:05
Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Stuðningsmenn serbneska liðsins Partizan Belgrad voru allt annað en sáttir með sitt lið sem laut í lægra haldi, 4-0, gegn erkifjendum sínum í Rauðu stjörnunni í gærkvöldi. Þjálfari liðsins hlaut höfuðáverka eftir leik og þá létu þeir óánægju sína bitna á búningsklefa liðsins. Fótbolti 24. september 2024 11:01
Hóta því að hætta keppni á EM Serbar eru mjög ósáttir með söngva stuðningsmanna Króatíu og Albaníu á leik þjóðanna á Evrópumótinu í knattspyrnu í gær. Fótbolti 20. júní 2024 07:38
Mótmælendur reyndu að brjótast inn í ráðhús Belgrad Lögreglumenn í Belgrad, höfuðborg Serbíu, beittu í gær táragasi á mótmælendur sem mótmælt hafa ríkisstjórninni eftir að niðurstöður þingkosninga voru birtar í síðustu viku. Stjórnarandstöðufólk segir að um kosningasvik sé að ræða. Erlent 25. desember 2023 13:33
Flokkur forsetans með stórsigur í þingkosningum Flokkur Aleksandar Vucic Serbíuforseta virðist hafa unnið stórsigur í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær. Forsetinn segir stefna í að flokkurinn nái að tryggja sér hreinan meirihluta. Erlent 18. desember 2023 08:00
Slítur þingi og boðar til nýrra kosninga Aleksandar Vucic, forseti Serbíu, hefur slitið þingi og boðað til nýrra kosninga sem halda á þann 17. desember. Með þessu er Vucic sagður vilja tryggja yfirráð sín en mikill spenna ríkir í kringum Serbíu í tengslum við málefni Kósovó. Erlent 1. nóvember 2023 14:58
Krefjast þess að serbneski herinn hörfi frá landamærum Kósóvósk stjórnvöld hafa krafist þess serbneski herinn hörfi tafarlaust frá landamærum ríkjanna. Töluverð ólga hefur skapast milli ríkjanna á síðustu vikum. Innlent 1. október 2023 22:49
Fjórir látnir eftir umsátur í Kósovó Fjórir eru látnir eftir að hópur vopnaðra manna girti sig af í klaustri í Kósovó, nærri landamærunum að Serbíu, í dag. Umsátursástand myndaðist og kom til fjölda skotbardaga milli mannanna og kósovósks lögregluliðs. Erlent 24. september 2023 23:46
Brast í grát á magnaðri heimkomuhátíð Serbneska tennisgoðsögnin Novak Djokovic, varð djúpt snortinn á heimkomuhátið í Serbíu eftir sigur hans á Opna bandaríska meistaramótinu á dögunum. Þessi magnaði íþróttamaður brast í grát er 50 þúsund Serbar fögnuðu honum. Sport 13. september 2023 16:31
Svefnlausir Serbar að springa úr stolti yfir Jokic sínum Serbar eru gríðarlega stoltir af Nikola Jokic eftir að hann leiddi Denver Nuggets til síns fyrsta NBA-meistaratitils. Körfubolti 14. júní 2023 09:00
NATO sendir fleiri hermenn til Kósovó vegna óróa Um sjö hundruð hermenn á vegum Atlantshafsbandalagsins verða sendir til Kósovó og önnur liðsveit sett í viðbragðsstöðu vegna vaxandi óróa þar á undanförnum dögum. Tugir NATO-hermanna og heimamanna særðust í átökum í norðanverðu Kósovó á öðrum degi hvítasunnu. Erlent 31. maí 2023 15:56
Tugir friðargæsluliða særðust í átökum í Kósovó Um þrjátíu friðargæsluliðar á vegum Atlantshafsbandalagsins særðust í hörðum átökum við Serba í norðanverðu Kósovó í gær. Átökin blossuðu upp þegar hópur manna af serbneskum uppruna reyndi að koma í veg fyrir að nýlega kjörnir fulltrúar af albönskum uppruna kæmust á skrifstofur sínar. Erlent 30. maí 2023 09:10
Forsetinn segir af sér sem flokksformaður vegna ólgu Aleksandar Vucic, forseti Serbíu, hefur sagt af sér formennsku Framfaraflokksins í skugga mikilla mótmæla. Varnarmálaráðherrann Milos Vucevic tekur við formennskunni að ósk Vucic. Erlent 27. maí 2023 15:00
Serbneskur ráðherra hættir í kjölfar fjöldamorðanna Ráðherra menntamála í Serbíu, Branko Ruzic, tilkynnti í dag um afsögn sína. Afsögnin kemur í kjölfar tveggja fjöldamorða sem hafa skekið serbnesku þjóðina, en í þeim létust alls sautján manns. Ruzic er fyrsti ráðherrann eða embættismaðurinn til að segja af sér í kjölfar árásanna. Erlent 7. maí 2023 20:54