Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Kjartan Kjartansson skrifar 30. september 2026 11:01 Garrí Kasparov, rússneski stórmeistarinn í skák, yfirgaf Rússland fyrir margt löngu og hefur verið harðlega gagnrýninn í garð rússneskra stjórnvalda. Rússar buðu manni sem þeir fengu til þess að fylgjast með honum fé til þess að myrða hann í sumar. Vísir/EPA Stórmeistarinn Garrí Kasparov er á meðal nokkurra rússneskra andófsmanna sem stjórnvöld í Kreml hugðust ráða af dögum í sumar. Bandarísk stjórnvöld ákærðu nýlega fimm leyniþjónustumenn í Rússlandi fyrir að leggja á ráðin um launmorð og skemmdarverk.
Spænska blaðið El Mundo hefur eftir heimildarmönnum sínum að rússneska leyniþjónustan hafi lagt á ráðin um að myrða Kasparov og Ivan Tjutrin, sem saman stofnuðu samræðuvettvang fyrir rússneska stjórnarandstæðinga í útlegð, og Ilja Ponomarev, fyrrverandi þingmann. Bandarísk yfirvöld vöruðu Kasparov, sem býr vestanhafs, við því að hann væri skotmark rússnesku leyniþjónustunnar í sumar. Spænska blaðið hefur þetta eftir heimildarmanni tengdum stórmeistaranum. Kasparov hafi í kjölfarið fengið öryggisvernd í fyrsta skipti frá því að hann fluttist til Bandaríkjanna árið 2013. Ilja Ponomarev, fyrrverandi þingmaður af rússneska þinginu. Hann hefur tekið virkan þátt í baráttu gegn innrás Rússa í Úkraínu undanfarin ár.Vísir/EPA Þá segir blaðið að venesúelskum karlmanni sem býr í Bandaríkjunum hafi verið greitt fyrir að fylgjast með Ponomarev og boðið fé til þess að ráða hann af dögum. Heimildarmaður tengdur fyrrverandi þingmanninum staðfesti þetta. Ponomarev var eini þingmaðurinn á rússneska þinginu sem greiddi atkvæði gegn innlimun Krímskaga. Hann greiddi heldur ekki atkvæði með lögum gegn „samkynhneigðum áróðri“. Nota spænskumælandi menn sem eiga greiða leið um Evrópu Saksóknarar í Bandaríkjunum ákærðu nýlega fimm manns sem þeir gruna um að hafa skipulagt svonefndar fjölþáttaógnir í Evrópu og launmorð í Bandaríkjunum og Litáen. Hópurinn gengur undir nafninu RIS. Hópurinn er sagður hafa verið starfandi frá árinu 2024 að minnsta kosti. Hann hafi meðal annars greitt innlendum glæpamönnum fyrir að fremja skemmdarverk í Evrópuríkjum. Tveir RIS-liðanna eru Kúbverjar og sá þriðji frá Venesúela. El Mundo segir að Rússar hafi í nokkurn tíma notað spænskumælandi fólk til þess að fremja spellvirki í Evrópu. Ástæðan sé sú að margir þeirra hafi dvalarleyfi á Spáni og geti flakkað á milli Evrópu og Rússlands án vegabréfsáritunar. Kommúnistastjórnin á Kúbu hefur þvegið hendur sínar af Kúbverjunum tveimur og fullyrðir að hún hafi ekki komið nálægt skipulagningu morðtilræðanna. Skemmdarverk, launmorð og ógnanir Stjórnvöld í Kreml hafa valdið usla í Evrópu með svonefndri fjölþáttaógn: ýmis konar skemmdarverkum, ógnunum og afskiptum. Á sama tíma hafa þau gengið hart fram gegn hvers kyns andófi, bæði heima fyrir og erlendis. Útsendari Vladímírs Pútín Rússlandsforseta myrti fyrrverandi uppreisnarmann frá Téténíu í þýskum almenningsgarði um hábjartan dag árið 2020. Pútín tók fagnandi á móti morðingjanum þegar honum var sleppt í umfangsmiklum fangaskiptum árið 2024. Rússneskir leyniþjónustumenn réðu Alexander Litvinenko, fyrrverandi leyniþjónustumann sem deildi hart á Pútín, í Bretlandi árið 2006. Þeir reyndu að leika sama leik með Sergei Skripal, annan fyrrverandi leyniþjónustumann, í Salisbury á Englandi árið 2018 en án árangurs. Bresk kona lét þó lífið vegna skeytingarleysis rússnesku leyniþjónustumannanna með taugaeitrið sem þeir skildu eftir á víðavangi. Þá var Maxim Kuzminov, liðhlaupi úr rússneska hernum, myrtur í Alicante á Spáni árið 2024. Hann var skotinn að minnsta kosti sex sinnum og keyrt yfir hann.
Rússland Erlend sakamál Bandaríkin Skák Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira