Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Andri Broddason skrifar 30. september 2026 18:01 Diljá Ýr Zomers skoraði í öruggum sigri Brann sem tryggði liðinu í 16-liða úrslit Evrópubikars kvenna. vísir/Getty Diljá Ýr Zomers var á skotskónum í kvöld þegar Brann tryggði sig áfram í Evrópubikar kvenna í fótbolta. Liðið vann leik kvöldsins 4-0 og viðureignina samtals 6-0. Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir, leikmenn Vålerenga, unnu Feyenoord á heimavelli 2-1 en töpuðu viðureigninni samtals 3-5. Rosenborg náði að vinna viðureignina gegn Slovan Liberec á 5-4.
Brann spilaði í kvöld á heimavelli gegn finnska liðinu HJK Helsinki og var liðið í góðri stöðu fyrir leikinn þar sem Brann vann fyrri leik liðanna 2-0. Liðið ætlaði þó að sækja sigur á heimavelli og strax á tíundu mínútu náði Lauren Davidson að koma Brann í forystuna. Liðið ætlaði ekki að taka neinar áhættur í að missa forystuna niður og endaði þetta mark á að vera eina mark fyrri hálfleiksins. Snemma í seinni hálfleik náði Díljá Ýr Zomers að tvöfalda forystu Brann í leiknum og var þá liðið komið langleiðina með því að komast áfram. View this post on Instagram A post shared by Brann Kvinner (@brannkvinner) Liðið var þó ekki hætt að skora og náði Anna Aahjem að skora tvö mörk til viðbótar og endaði leikurinn með 4-0 sigri. Brann er því komið áfram og mun koma í ljós á föstudaginn hvaða liði það mætir í 16-liða úrslitum. Góður sigur dugði ekki Ljóst var að Arna og Fanney Inga ættu erfiðan leik fyrir höndum þar sem fyrri leikurinn fór 4-1 fyrir Feyenoord. Liðið náði þó forystu leiksins á 73. mínútu með marki frá Selmu Pettersen en þá var nýbúið að taka Örnu af velli. Vålerenga virtist ætla að vinna seinni leikinn en Fleur Jansje Margaretha Stoit jafnaði metin á 87. mínútu og virtist leikurinn enda með jafntefli. Ronja Arnesen náði þó að tryggja sigurinn fyrir Vålerenga með marki í uppbótartíma. Þrátt fyrir það eru Íslendingarnir í Vålerenga úr leik eftir að hafa tapað viðureigninni samtals 3-5. Dramatískur endir á viðureigninni Selma Sól Magnúsdóttir og félagar í Rosenborg komust áfram með dramatískum sigri á Slovan Liberec á sama tíma. Fyrri leikur liðanna fór 3-1 fyrir Liberec en Rosenborg var sterkt á heimavelli og náði að vinna 4-1 sigur og þar með viðureignina 5-4. Sigurmark viðureignarinnar kom á 84. mínútu og því var spenna alveg fram að síðustu sekúndu. Selma Sól sat á bekknum allan leikinn en hún kom inn á völlinn þegar tíu mínútur voru eftir í fyrri viðureigninni.
Evrópubikar kvenna í fótbolta Íslendingar erlendis Fótbolti Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Fleiri fréttir Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Sjá meira