Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir, Rannveig Björk Þorkelsdóttir og Ingibjörg Ágústsdóttir skrifa 5. október 2026 07:02 Flest okkar muna eflaust eftir einhverjum ákveðnum kennara frá skólagöngunni. Þeim sem fann aðra leið til að útskýra þegar við skildum ekki, tók spurningarnar okkar alvarlega eða hvatti okkur til að halda áfram þegar við vorum við það að gefast upp. Það er auðvelt að hugsa um kennslu sem miðlun þekkingar: kennarinn veit eitthvað, nemandinn veit það ekki enn og svo færist þekkingin á milli. Í raun er þetta sjaldnast svo einfalt, allra síst í háskóla. Við sem kennum við háskóla sjáum reglulega rök sem virðast sannfærandi en standast ekki nánari skoðun. Heimildin segir annað en haldið er fram. Gögnin gefa minna tilefni til fullyrðingar en textinn gefur í skyn. Stundum er svarið meira að segja mjög vel orðað, sem getur gert það enn erfiðara að koma auga á vandann. Þá þarf að spyrja: Hvernig veistu það? Þetta er líka grundvallarspurning í rannsóknum. Hvaða gögn styðja niðurstöðuna? Er önnur skýring möguleg? Hversu örugg getum við verið? Og stundum sú óþægilegasta: Hvað ef við höfðum einfaldlega rangt fyrir okkur? Háskólanám snýst því ekki bara um að tileinka sér það sem þegar er vitað. Nemendur þurfa líka að kynnast því hvernig þekking verður til, hvernig gagna er aflað, hvernig tilgátur eru settar fram og prófaðar og hvers vegna það gerist að stundum þarf að endurmeta það sem áður var talið rétt. Þegar svarið er ekki til Prófessorar kenna á fræðasviðum sem þeir rannsaka sjálfir. Það sem gerist í rannsóknum ratar því inn í kennsluna. Ný niðurstaða getur breytt því sem kennt var fyrir fáeinum mánuðum, spurning úr kennslustofunni getur orðið kveikjan að nýju rannsóknarverkefni og stundum kemur nemandi með athugasemd sem fær kennarann sjálfan til að hugsa málið upp á nýtt. Stundum er svarið einfaldlega: Við vitum það ekki enn. Það er í sjálfu sér mikilvæg lexía. Sérfræðingur getur ekki alltaf vitað allt. Það sem er mikilvægt er að geta greint á milli þess sem er vitað, þess sem við teljum líklegt og þess sem við höfum einfaldlega ekki nægar upplýsingar um. Það reynir jafnvel meira á þessa hæfni nú þegar hægt er að fá sannfærandi svar við nánast hverju sem er á örskotsstundu. Leitarvélar og gervigreind geta verið frábær verkfæri en þau leysa okkur ekki undan því að hugsa. Það er auðvelt að finna svar en getur verið erfiðara að vita hvort það er gott eða sannleikanum samkvæmt. Einmitt hér gegna háskólar grundvallarhlutverki því gagnrýnin hugsun er mikilvægari núna en nokkurn tímann fyrr, ekki síst til að standa vörð um lýðræði og upplýsta umræðu. Þekking sem samfélagið byggist á Háskólarnir mennta fólkið sem við treystum á og má finna á ótal stöðum í samfélaginu: Kennara, lækna, verkfræðinga, sálfræðinga, félagsráðgjafa, rithöfunda, menningarrýna, fjölmiðlafólk, stefnumótendur, vísindafólk og sérfræðinga á sviðum sem flest okkar hugsa sjaldan um fyrr en eitthvað bregst. Samfélagið þarf fólk sem kann að meta gögn, þekkir mörk eigin þekkingar og getur tekið afstöðu til nýrra upplýsinga þegar aðstæður breytast. Aðgengi að háskólanámi snýst ekki bara um tækifæri einstaklingsins heldur líka um hvaða þekkingar og hæfni samfélagið fær að njóta síðar. Það sama gildir um rannsóknirnar. Þær geta stundum virst fjarri daglegu lífi, sérstaklega þegar viðfangsefnið er sérhæft og niðurstaðan langt frá því að vera tilbúin í fréttatilkynningu. En þannig verður þekking oftast til; hægt, í litlum skrefum, með mistökum, leiðréttingum og nýjum spurningum. Svo koma stundum augnablik þar sem rannsókn sem virtist mjög sérhæfð reynist skyndilega skipta miklu máli. Tækni á borð við snertiskjái, þráðlaus samskipti og örflögur byggðist til dæmis á áratuga rannsóknum áður en snjallsíminn varð til. Á öðrum sviðum hefur endurskoðun eldri þekkingar ekki síður skipt máli: lengi vel mótuðust til dæmis rannsóknir og greiningar á hjartasjúkdómum um of af dæmigerðum einkennum karla, sem olli hættu á því að hjartavandamál kvenna voru vangreind. Aukin þekking á þessum mun hefur síðan stuðlað að betri greiningu og meðferð. Kennarinn sem gaf sér tíma Góð háskólakennsla tekur tíma. Hún krefst samtals við nemendur, undirbúnings og vandaðrar endurgjafar. Hún krefst þess líka að kennarar hafi svigrúm til rannsókna og geti fylgst með þróun fræðasviðs síns. Annars er hætta á að tengslin milli þess sem kennt er og þeirrar þekkingar sem er að verða til rofni smám saman. Kannski er það líka ástæðan fyrir því að við munum enn eftir ákveðnum kennurum löngu síðar. Þeir gerðu meira en bara að kenna okkur allar staðreyndirnar sem við þurftum að læra, heldur hjálpuðu okkur að uppgötva þær sjálf. Þeir áttu sinn þátt í að gera okkur að þeim manneskjum sem við erum í dag og þeim starfsferli sem við völdum okkur. Í dag, 5. október, er alþjóðlegur dagur kennara. Við sendum okkar bestu þakkir til þeirra sem kenndu okkur, samstarfsfólks okkar sem heldur áfram að leggja sig fram um góða kennslu og ekki síst nemenda okkar en spurningarnar þeirra eru oft á tíðum mikilvægari en svörin sem við höfum. Höfundar eru prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands og formaður Félags prófessora við ríkisháskóla, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og prófessor við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Gervigreind Háskólar Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun