Fótbolti

Utan vallar: Sögu­fræg vin­átta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar

Aron Guðmundsson skrifar
Mynd úr fyrri leik Íslands og Eistlands og svo mynd frá Íslandstorgi í Tallinn
Mynd úr fyrri leik Íslands og Eistlands og svo mynd frá Íslandstorgi í Tallinn Vísir

Eist­land og Ís­land mætast í mikilvægum leik í Þjóða­deild Evrópu í Tallinn í kvöld. Saga þjóðanna tveggja á sér rík tengsl og út frá stöðu alþjóðamála í dag er hægt að líta aftur í tímann og sjá hvaða áhrif smáríki gat haft í hinu stóra sam­hengi. Tvær þjóðir sem meta full­veldi og sjálf­stæði mikils, ógnin úr austri vofir yfir Eistum.

Aron Guð­munds­son skrifar frá Tallinn

Ís­land er mikils metið hér í Eist­landi og það af góðum og gildum ástæðum. Árið 1991 tók Ís­land, undir for­ystu þáverandi utan­ríkis­ráðherra landsins Jóns Bald­vins Hannibals­sonar, það stóra skref að viður­kenna endur­heimt sjálf­stæðis Eist­lands frá Sovétríkjunum sem og sjálf­stæði Lett­lands og Litáen.

„Árið 1991 gegndi Ís­land stærra hlut­verki en ís­brjótur í því að breyta heiminum. Ís­lendingar minntu allan heiminn á gildi sem höfðu glatast,“ sagði for­seti Eist­lands frá árinu 1992-2001 í ríkis­heimsókn sinni til Ís­lands árið 1999. Orð sem rituð eru á platta við Ís­lands­torg í Tallinn.

Platti á Íslandstorgi með ummælum fyrrverandi forseta Eistlands, Lennart MeriVísir/Aron

Á torginu má sjá um­mæli höfð eftir for­ystu­fólki ríkjanna tveggja þá og nú. Ís­lenskar gróður­tegundir má finna á torginu og er stað­setning torgsins um margt merki­leg, beint fyrir framan utan­ríkis­ráðu­neyti Eist­lands.

Þótt ég sé íþrótta­frétta­maður er áhuga­vert og í raun og veru alveg mein­hollt að hugsa um stærra sam­hengi hlutanna, sam­bönd til­tekinna ríkja, til að mynda þegar fram undan eru kapp­leikir þeirra á milli, hvort sem þú viljir tengja þá við leikinn sjálfan sem fram undan er eða bara alls ekki. Nýleg dæmi, til að mynda frá leikjum lærisveina Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu við Ísrael hafa sýnt að stundum virðist ógerlegt að skilja að pólitík og stöðu alþjóðamála frá íþróttaviðburðum.

Torgið stendur við utanríkisráðuneyti EistlandsVísir/Aron

Staða alþjóðamála í dag þykir ugg­væn­leg. Mikið hefur verið rætt og ritað um full­veldi þjóðar og sjálf­stæði heima á Ís­landi og það er ekki síður til um­ræðu hér í Eist­landi. Ógnin úr austri er enn til staðar. Hér ríkja áhyggjur af stöðu mála.

Fréttir bárust af því bara í gær að Eistar væru farnir að færa aukinn hluta af her­liði sínu að landa­mærunum við Rúss­land í austri. Sjálf­stæðinu sem barist var fyrir stafar ógn af árásar­girni Rússa sem hafa sýnt það áður að landa­mæri annarra ríkja eru þeim lítils virði.

Frétt hjá the Financial Times í gær þar sem fjallað er um að Eistar færi herlið sitt nú nær landamærum Eistlands við Rússland.Skjáskot

Á sama tíma hefur þeirri spurningu oft og tíðum verið velt upp hvaða áhrif smáríki geti haft á gang mála í alþjóða­sam­félaginu, hefur rödd þeirra ein­hvern styrk til þess að breyta gangi mála? Eistar telja svo vera og fundu ljós­lifandi fyrir því árið 1991.

„Það koma stundir þegar hug­rekki smárra ríkja knýr dyra á sam­visku hinna stærri og opnar dyr sem lengi hefur verið beðið eftir að opnist. Ís­land hjálpaði Eist­landi og eist­nesku þjóðinni að endur­heimta ríki sitt,“ sagði Toomas Hendrik Il­ves, for­seti Eist­lands árin 2006-2016. Orð sem einnig eru rituð á platta við Ís­lands­torg.

Í umræðu um vægi og möguleg áhrif smáríkja er vert að hafa þetta í huga.Vísir/Aron

Ljóst er að vináttu­bönd Ís­lands og Eist­lands verða seint slitin og gagn­kvæm virðing ríkir utan vallar en ekki síður innan vallar. Þessar tvær vinaþjóðir hafa báðar byrjað vel í Þjóða­deildinni og er leikur kvöldsins barátta um toppsæti riðilsins. Sigur yrði gífur­lega mikilvægur fyrir bæði lið.

For­seti Eist­lands verður heiðurs­gestur á leik kvöldsins. Kannski til marks um þá virðingu sem ríkir en vináttu­böndin verða lögð til hliðar í rúmar níutíu mínútur í kvöld.

Leikur Eist­lands og Ís­lands hefst klukkan korter í sjö í kvöld og verður sýndur í beinni út­sendingu og opinni dag­skrá á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×