Handbolti

Bæði leik­mönnum og á­horf­endum í höllinni gert að víkja í miðjum leik

Andri Broddason skrifar
Einar Bragi Aðalsteinsson var búinn að skora tíu mörk fyrir Kristianstad áður en brunakerfið fór í gang í höllinni.
Einar Bragi Aðalsteinsson var búinn að skora tíu mörk fyrir Kristianstad áður en brunakerfið fór í gang í höllinni. Vísir

Fresta þurfti leik Kristanstad og COG í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta eftir að brunavarnakerfi fór í gang í höllinni í Kristanstad. GOG voru með yfirhöndina þegar brunakerfið fór í gang og héldu því þegar leikurinn hófst skömmu síðar og unnu 37-25.

Átta mínútur voru eftir af leiknum þegar brunabjallan byrjaði að hringja og þurftu allir áhorfendur og leikmenn að víkja úr íþróttahöllinni í Kristianstad. GOG var með yfirhöndina í leiknum og var staðan 32-25 fyrir gestunum frá Danmörku þegar þurfti að stöðva leikinn.

Ekki er búið að gefa upp hvers vegna brunakerfið fór í gang eða hvenær leikurinn mun fara aftur af stað en mögulega verður leikurinn kláraður á öðrum degi.

Þrátt fyrir að Kristanstad var að tapa leiknum þá var Einar Bragi Aðalsteinsson búinn að eiga frábæran leik fyrir liðið. Hann var búinn að skora tíu mörk fyrir sænska liðið og var því með einn þriðjung af mörkum liðsins. Andri Erlingsson náði einnig að koma sér á blað í seinni hálfleiknum en leikmenn beggja liða þurfa að halda sér klárum ef leikurinn getur farið aftur af stað.

Uppfært: Eftir stutta pásu gat leikurinn hafist aftur og náði GOG að vinna leikinn 37-32.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×