Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Samúel Karl Ólason skrifar 20. október 2026 07:58 Tölvuteiknuð mynd af því hvernig OASIS gæti litið út. ESA-XR Lab Á næstu árum er búist við því að geimferðum til tunglsins muni fjölga talsvert. Margar þjóðir og geimvísindastofnanir beina nú augunum þangað og stendur jafnvel til að koma upp varanlegri viðveru á yfirborði tunglsins. Til þess þarf að byggja upp innviði sem auðvelda tunglferðirnar.
Geimvísindastofnun Evrópu (ESA) vinnur að þróun sérstakrar þjónustustöðvar fyrir tunglið, sem ætlað er að styðja við framtíðarverkefni á yfirborði þess. Hún ber nafnið OASIS og á að auðvelda samskipti við jörðina og aðra á tunglinu, auk þess sem hún á að knýja hitakerfi annarra tunglfara og innviða, til að sporna gegn tjóni sökum mikilla hitabreytinga. Í tilkynningu á vef ESA segir að OASIS gæti gert vísindamönnum kleift að gera út tunglför mun lengur en annars. Vin í auðninni Eitt það erfiðasta við tunglferðir er að fá tæki og tól til að lifa nóttina þar af. Á tunglinu stendur nótt yfir í tæpa fimmtán daga og fylgir því gífurlega mikill kuldi sem getur hæglega skemmt óvarinn tækjabúnað. Þá er litlal sólarorku að fá á þessum tíma og því þarf öflugar rafhlöður til að keyra hitabúnað geimfara sem ætlað er að verja rafmagnsbúnað sem er sérkstaklega viðkvæmur fyrir kuldanum. OASIS er ætlað að leysa þetta vandamál. Á tungldaginn, þegar nægt sólarljós er að fá, á OASIS að safna orku gegnum sólarsellur og geyma í rafhlöðum. Tunglför geta svo verið látin tengjast þjónustustöðinni á kvöldin, ef svo má segja. Þannig eiga þau að geta fengið orku til að keyra hitabúnað og á einnig að vera hægt að tryggja áframhaldandi samskipti vísindamanna á jörðu niðri við tunglför. Geimfarinn Harrison Schmitt á yfirborði tunglsins. Þangað fór hann með Apollo 17 árið 1972 en geimfararnir skildu vísindabúnað eftir sem var tengdur einskonar þjónustustöðvum svo gagnaflutningur héldi áfram eftir að þeir sneru aftur til jarðarinnar.NASA Með þessum hætti á að vera hægt að gera út tunglför lengur en einn tungldag, sem hefur oftar en ekki verið raunin hingað til. Þá er einnig hægt að sleppa við það að senda lendinarför til tunglsins með þungum rafhlöðum og samskiptabúnaði. Þróun OASIS byggir á Apollo-áætluninni en á sínum tíma skildu geimfarar vísindabúnað eftir á yfirborði tunglsins, tengdan við sérstakar þjónustustöðvar sem tryggðu að búnaðurinn sendi upplýsingar til jarðarinnar eftir að tunglfararnir sneru aftur þangað. Þróað í Þýskalandi OASIS er ætlað að geta sent frá sér 75 vött að degi til og 15 vött á nóttinni og á að geta tekið á móti gögnum frá tunglförum, geymt þau og sent til jarðarinnar. Til stendur að flytja þjónustustöðina til tunglsins með Argonaut-lendingarfari og skjóta því út í geim með Ariane 6 eldflaug. Hvenær þessi þjónustustöð á að vera tilbúin til notkunnar liggur ekki fyrir en þróun hennar er á höndum starfsmanna OHB í Þýskalandi.
Tunglið Geimurinn Vísindi Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Fleiri fréttir Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Sjá meira