Skoðun

For­sætis­ráð­herra endurskrifar söguna og snýr stað­reyndum á hvolf

Pétur Óskarsson skrifar

Það er algjörlega ómögulegt fyrir okkur í ferðaþjónustunni að sitja þegjandi undir ummælum Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og söguskýringum hennar í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Það má hafa skilning á því að stjórnarliða skortir raunveruleg og gild rök fyrir því að leggja enn og aftur nýja skatta á ferðaþjónustuna. En það er hins vegar ekki góður bragur á því að reyna að að skrifa söguna upp á nýtt og snúa staðreyndum á hvolf til þess að rökstyðja eigin fyrirætlanir.

Ríkið studdi og fékk ríflega til baka

Að ríkið hafi stutt ferðaþjónustuna í heimsfaraldrinum er ekki sjálfstæður rökstuðningur fyrir nýrri skattlagningu árið 2027. Stuðningurinn í Covid var hluti af víðtækum efnahagsaðgerðum vegna fordæmalauss áfalls og stóð öllum fyrirtækjum til boða. Megin tilgangurinn var að reyna að halda ráðningarsambandi fyrirtækja og starfsfólks og halda fólki við störf frekar en að senda það á atvinnuleysisbætur. Hitt markmiðið var að nýta lærdóminn úr efnahagshruninu 2008 og halda fyrirtækjum landsins á lífi til þess að viðspyrnan tæki ekki langan tíma eftir áfallið. Þessi aðgerð heppnaðist frábærlega og ríkið fékk allt sem það lagði í þetta til baka og gott betur. Þetta gerðist á undra skömmum tíma.

Ólíku saman að jafna

Það stenst heldur enga skoðun að hugmyndum um innheimtu innviðagjalda hafi verið frestað um 15 ár. Á því tímabili hefur verið lagður á aragrúi af allskyns gjaldtöku og sköttum um allt land og ríkið hefur þar verið lang stórtækast. Má þar nefna marghækkaðan gistináttaskatt, innviðagjöld, bílastæðagjöld í þjóðgörðum og ýmsum öðrum þjónustugjöldum. Umhverfið í dag er allt annað en þegar náttúrupassi var fyrst til umræðu.

Rétt skal vera rétt

Þá er það einfaldlega rangt að þær hugmyndir sem nú liggja á borðinu, og hljóða upp á 10,7 milljarða króna skattahækkanir, eða um helming af afkomu ferðaþjónustunnar, hafi verið unnar í raunverulegu samráði við atvinnugreinina. Það voru samtöl um náttúru- og innviðagjaldið, en endanleg útærsla birtist atvinnugreininni ekki fyrr en atvinnuvegaráðherra lagði fram frumvarpsdrögin. Aðrar fyrirhugaðar breytingar á álögum sem snerta ferðaþjónustuna, beint eða óbeint, voru ekki unnar í neinu samráði við greinina. Stjórnvöld virðast ætla að draga kraftinn og seigluna úr ferðaþjónustunni með þessum aðgerðum sem SAF hafa lagst gegn og mótmælt með kröftugum hætti.

Klár móðgun við Suðurland og ferðaþjónustuna

Sú fullyrðing að Suðurland hafi fengið ótrúleg tækifæri og nú þurfi að taka það niður er hrein og klár móðgun við ferðaþjónustuaðila á Suðurlandi sem hafa með dugnaði og þrautseigju byggt upp ferðaþjónustu sem hefur skilað bæði landshlutanum og landsmönnum öllum ómældri hagsæld.

Forsætisráðherra lét hins vegar ógert að svara þeirri spurningu sem beint var að henni áður en hún fór í pontu Alþingis. Spurt var hvort að stjórnvöld hafi metið heildaráhrif fyrirhugaðra álaga á atvinnulíf, störf og fjárfestingar? Margt bendir til að ávinningurinn fyrir ríkissjóð af þessum hugmyndum verði, þegar upp er staðið lítill sem enginn, vegna þeirra heildaráhrifa sem þessi álagning hefur á ferðamenn og fyrirtæki.

Óásættanlegur rökstuðningur

Það er einfaldleg óásættanlegt fyrir landsmenn að horfa upp á forsætisráðherra svara gagnrýni á nýja skattlagningu árið 2027 með því að vísa til aðstæðna árið 2020 og hugmynda frá því fyrir 15 árum.

Við þurfum stjórnmálamenn sem hafa hugrekki til að starfa í núinu og horfa til framtíðar. Stjórnmálamenn sem leggja staðreyndir og heildarhagsmuni þjóðarinnar til grundvallar ákvörðunum sínum. Ekki stjórnmálamenn sem reyna að endurskrifa söguna til að réttlæta nýja skattlagningu.

Höfundur er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar




Skoðun

Sjá meira


×