„Kannski full truntulegur á köflum“ Gráglettinn kveðjupistill Brynjars Níelssonar fyrrverandi þingmanns er nú á miklu flugi á Facebook. Innlent 26. september 2021 16:56
„Við munum alltaf standa upp aftur“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir niðurstöðu kosninganna óvæntustu kosningaúrslit sem hann hefur upplifað. Innlent 26. september 2021 16:25
„Stjórnarandstaðan skíttapaði einfaldlega“ Samfylkingarfólk veltir fyrir sér hvað hafi eiginlega gerst í kosningunum? Óhætt er að segja að vinstri menn vita vart hvaðan á þá stendur veðrið en þeir gengu vonglaðir til kosninga eftir að skoðanakannanir höfðu gefið fyrirheit um betri tíð með blóm í haga. Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir stjórnarandstöðuna einfaldlega hafa skíttapað kosningabaráttunni. Innlent 26. september 2021 14:40
Sú yngsta inn og Brynjar út: „Ég hef bara aldrei séð hana áður“ Þau Lenya Rún Taha Karim og Sigmar Guðmundsson voru öllu ánægðari með niðurstöðu kosninganna í nótt en Brynjar Níelsson. Brynjar hafði skipti við Lenyu sem þingmaður í Reykjavík en kennir henni ekki um. Enda hafi hann aldrei séð hana áður. Innlent 26. september 2021 12:22
Gunnar Smári sagður hafa rekið glæsilega kosningabaráttu fyrir Ingu Sæland Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar telur ekki ólíklegt að Flokkur fólksins hafi notið góðs af kosningabaráttu Sósíalistaflokksins. Innlent 26. september 2021 11:43
Ríkisstjórnin heldur og situr líklega áfram: „Eðlilegast að við setjumst niður saman“ Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins, sem er sigurvegari kosninganna, segist maður orða sinna. Og hann hafi sagt að ef stjórnin héldi væri eðlilegast að þau sem að henni standi tali saman. Flest bendir nú til að ríkisstjórnarsamstarfið haldi. Innlent 26. september 2021 11:00
Inga Sæland gat ekki sofið fyrir brosi Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir sigur síns flokks ekki hafa komið sér á óvart. Innlent 26. september 2021 10:31
Konur í fyrsta sinn í meirihluta á þingi í Evrópu Konur eru nú í fyrsta sinn í sögunni í meirihluta á Alþingi Íslendinga. 33 konur voru kjörnar á þing í gær og 30 karlmaður. Í kosningunum 2017 voru 24 konur kjörnar á þing. Þetta er í fyrsta skipti í sögu Evrópu sem konur eru fleiri en karlar á lýðræðiskjörnu þingi. Svíar höfðu áður komist næst því með 47 prósenta hlut kvenna. Innlent 26. september 2021 10:19
Konur í meirihluta á Alþingi í fyrsta sinn? Eins og sakir standa eru fleiri konur en karlar inni á þingi. Ef kynjahlutföllin haldast óbreytt verður þetta í fyrsta sinn sem konur eru í meirihluta á Alþingi. Innlent 26. september 2021 01:59
Eiríkur Bergmann: Flokkur fólksins „á rífandi siglingu“ Miðað við fyrstu tölur er Flokkur fólksins að bæta verulega við sig. Eiríkur Bergmann segir flokkkinn á „rífandi siglingu“ og Ingu Sæland stefna í að verða eina af stærstu stjörnum stjórnmálanna. Innlent 25. september 2021 23:26
Ásmundur Einar dró trukk á eftir sér fyrir breskan sjónvarpsþátt Í dag voru tökur úti á Granda fyrir þættina Rob and Romesh Vs. Þeir Rob Becket og Romesh Ranganathan voru þar að leysa ýmsar þrautir og þeim til aðstoðar var kraftajötuninn Magnús Ver. Lífið 24. september 2021 16:02
„Hvers lags eiginlega froðuflóð er að flæða hér um allar koppagrundir?“ Viðbúið var að skiptar skoðanir væru milli leiðtoga stjórnmálaflokkanna um það hvort jöfnuður væri ríkjandi hér á landi, í kappræðunum á Stöð 2 í kvöld. Innlent 24. september 2021 00:17
Engar skýrar línur frá leiðtogunum um stjórnarmyndun Engar skýrar línur komu fram varðandi ríkisstjórnarmyndun eftir kosningar í leiðtogakappræðunum á Stöð 2 í kvöld. Innlent 23. september 2021 22:58
Sérstaklega löng kosninganótt fram undan Landsmenn þurfa líklega að bíða langt fram á morgun eftir endanlegum niðurstöðum kosninganna um helgina. Slæm veðurspá og sögulegur fjöldi utankjörfundaratkvæða setja strik í reikninginn. Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu. Innlent 23. september 2021 22:31
Heilmikil dramatík í aðdraganda síðustu kosninga Gengið verður til Alþingiskosninga laugardaginn 25. september. Í framhaldinu munu flokkarnir þreifa hver á öðrum varðandi myndun ríkisstjórnar. Það er sannarlega ekki alltaf auðvelt og var það sannarlega ekki fyrir fjórum árum. Innlent 23. september 2021 20:05
Ný Maskínukönnun: Hvorki ríkisstjórnin né Reykjavíkurmódelið ná meirihluta Ef úrslit kosninganna á laugardag verða eins og í könnun Maskínu fyrir fréttastofuna væri Sjálfstæðisflokkurinn að fá sögulega útreið með 20,6 prósent atkvæða. Flokkur forsætisráðherrans, Katrínar Jakobsdóttur, væri líka að tapa verulegu fylgi frá síðustu kosningum með 11,5 prósent. Könnun Maskínu var gerð 15.-22. september og tóku tæplega sex þúsund afstöðu. Innlent 23. september 2021 19:00
Óregla og áfengi á heimilinu og gekk í sjö grunnskóla á átta árum Ásmundur Einar Daðason er fyrsti félags- og barnamálaráðherra Íslands, enda sá sem átti hugmyndina að stöðunni. Mikið af vinnu hans er drifið áfram af eigin reynslu af flókinni æsku, en sem barn gekk Ásmundur í sjö grunnskóla á átta árum, í tveimur löndum. Lífið 23. september 2021 11:16
Katrín fagnar fullyrðingu Ratcliffe og skýtur á stjórnarandstöðuna Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fagnar því á Facebook að breski auðkýfingurinn Jim Ratclifee ætli ekki að kaupa fleiri jarðir hér á landi. Það sé til marks um að stefna hennar í jarðarmálum hafi skilað árangri. Þar hafi markmiðið verði að koma í veg fyrir of mikla samþjöppun lands á fárra hendur. Innlent 22. september 2021 13:39
Umhverfisráðherra segir þingmenn Sjálfstæðisflokks vinna gegn náttúruvernd Umhverfisráðherra hafnar alfarið ásökunum þingmanna Sjálfstæðisflokksins um siðleysi og lögbrot í tengslum við fjölda friðlýsinga á lokaspretti kjörtímabilsins. Hann segir þingmenninga vera að sýna sitt raunverulega andlit og vinna gegn náttúruvernd. Innlent 22. september 2021 12:13
Líf og fjör í kosninga- og skemmtiþætti Stöðvar 2 á laugardagskvöld Í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 á laugardag fara strákarnir í Æði á kostum, Björn Bragi tekur frambjóðendur í þrælskemmtilegt Kviss, Magnús Hlynur og aðrir fréttamenn verða úti um hvippinn og hvappinn og makar frambjóðenda sitja fyrir svörum. Lífið 22. september 2021 10:12
Örlagarík frammistaða Ingu Sæland kvöldið fyrir kosningar Skoðanakannanir fyrir alþingiskosningar 2016 og 2017 vanmátu Sjálfstæðisflokkinn og Flokk fólksins - en fylgi Pírata og Samfylkingarinnar reyndist ofmetið. Þetta sýnir samanburður doktorsnema í félagstölfræði. Miklar fylgisbreytingar geti orðið síðustu viku kosningabaráttunnar - frammistaða í sjónvarpi kvöldið fyrir kosningar geti jafnvel skipt sköpum. Innlent 21. september 2021 12:00
Á skilorði vegna mótmæla við Alþingishúsið Mótmælandi sem var handtekinn eftir mótmæli No Borders við Alþingishúsið í mars árið 2019 er kominn á skilorð fyrir að hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að færa sig frá aðalinngangi Alþingis við umrædd mótmæli. Mótmælandinn var sýknaður af því að hafa hindrað störf lögreglu á vettvangi. Innlent 21. september 2021 11:01
Simmi Vill valdi fimm einstaklinga sem hann treystir til að stjórna landinu Sigmar Vilhjálmsson er gestur í nýjasta þættinum af Blökastinu og fengu strákarnir hann til þess að ræða pólitík þar sem hann hefur farið mikinn í þeim efnum upp á síðkastið. Lífið 21. september 2021 08:45
Reykjavíkurmódelið gæti myndað ríkisstjórn Flokkarnir sem nú mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur gætu myndað fjögurra floka ríkisstjórn að loknum kosningum samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Núverandi stjórnarmeirihluti er kolfallinn samkvæmt könnuninni. Innlent 14. september 2021 19:21
Hættur að styðja ríkisstjórnina ef það væri ekki svona stutt í kosningar Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ósáttur með að umhverfisráðherra friðlýsi svæði hægri vinstri á meðan þing er í fríi. Við aðrar kringumstæður væri hann hættur stuðningi við ríkisstjórnina. Innlent 14. september 2021 16:30
Inga Sæland, Guðmundur Ingi og Hanna Katrín tókust á í Pallborðinu Fulltúar Vinstri grænna, Viðreisnar og Flokks fólksins mættu í beina útsendingu hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í Pallborðinu á Vísi í dag. Þetta er fjórða og síðasta pallborðsumræðan með fulltrúum flokka sem bjóða fram til Alþingis í næstu viku. Innlent 14. september 2021 13:13
Ríkisstjórnin kolfallin samkvæmt könnun Maskínu Ríkisstjórnin er kolfallin samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Bylgjuna, Stöð 2 og Vísi og fengju stjórnarflokkarnir samanlagt aðeins tuttugu og níu þingmenn. Innlent 14. september 2021 12:14
Inga keypti íbúðina af leigufélagi öryrkja Hússjóður Öryrkjabandalagsins seldi Ingu Sæland, formanni og þingmanni Flokks fólksins, íbúð sem hún hefur leigt undanfarin ár í febrúar. Á þriðja hundrað manns bíða enn eftir að leigja íbúð af sjóðnum en ekki hefur verið tekið við nýjum umsóknum í um þrjú ár. Innlent 14. september 2021 11:37
Fatahönnuður Íslands vandar um við Guðmund Andra og segir ekki ganga að vera druslulegur á þinginu Guðmundur Andri Thorsson, sem nú berst fyrir pólitísku lífi sínu í öðru sæti Samfylkingar í Kraganum, greindi frá raunum sínum í prófkjörsbaráttu, sem varða klæðaburð. Fatahönnuður Íslands, sjálf Dóra Einars, er ekki þeirrar gerðar að vera meðvirk og segir þingmanninum að hysja upp um sig buxurnar. Lífið 14. september 2021 10:22
Allir framboðslistar endanlega staðfestir á morgun Tíu flokkar bjóða fram í öllum kjördæmum fyrir komandi kosningar og Ábyrg framtíð býður að auki fram í tveimur kjördæmum. Frestur til að skila inn framboðslistum rann út á hádegi í dag. Innlent 10. september 2021 19:21