

Nýjustu fréttir, fróðleikur og skemmtileg myndbönd sem tengjast bílum.
Löður rekur 15 bílaþvottastöðvar á Íslandi og á hverju ári fara um 250 þúsund bílar í gegnum þvott á stöðvum fyrirtækisins. Í bílaþvotti þarf að nota sápur og önnur hreinsiefni ásamt því að nota mikið af vatni.
Nýr Kia Niro verður frumsýndur um allt land í dag, laugardag frá 12-16. Þetta er þriðja kynslóð Niro sem hefur verið einn allra vinsælasti bílinn frá Kia á Íslandi og um allan heim undanfarin ár. Kia Niro mætir nú til leiks með nýtt útlit og enn rafmagnaðri en áður.
Hröð þróun hefur verið í þjónustu tengdri rafbílum á síðustu misserum. Sú þróun mun halda áfram hvað sem líður afnámi tolla og upptöku kílómetragjalds og vegtolla.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir ekki standa til að hætta að styðja við kaup á rafbílum. Markmiðin um orkuskipti til að ná markmiðum í loftslagsmálum séu afar mikilvæg.
Í raunveruleikaþættinum LXS á Stöð 2 í gær fóru nokkrar stelpur yfir það hvernig venjulegur dagur er í lífi þeirra.
Tesla hefur nú hafið tilraunaverkefni sem felur í sér að opna á nokkrar Supercharger hraðhleðslustöðvar fyrir notendur og eigendur rafbíla af öðrum tegundum en Tesla. Tesla eigendur geta haldið áfram að nota þessar stöðvar eins og þeir hafa alltaf gert og Tesla mun fylgjast náið með nýtingu á hverri stöð.
BL hefur tekið í notkun nýtt málningarkerfi frá þýska lakkframleiðandanum Glasurit sem framleiðir bílalökk fyrir marga helstu lúxusbílaframleiðendur heims. Uppsetning og innleiðing kerfisins er liður í því að uppfylla ströngustu gæðastaðla Jaguar Land Rover, BMW og Mini á þessu sviði, en áður hafði fyrirtækið tekið í notkun sérstakt réttingaverkstæði fyrir bíla smíðaða úr áli frá sömu framleiðendum. Nýja kerfið inniheldur meðal annars háþróaðan litaskanna sem greinir mjög nákvæmlega liti.
Meðalverð á rafbílum gæti hækkað um tæpar tvær milljónir þegar þær ívilnanir sem hafa verið veittar vegna rafbílakaupa renna sitt skeið.
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, gagnrýnir áform stjórnvalda um að hækka vörugjöld á bifreiðum. Hann segir að reikna megi að verð á rafbílum hækki um 600.000 krónur til milljónar á bifreið á næsta ári.
Breytingar verða gerðar á vörugjaldi við innflutning ökutækja samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem kynnt var fjölmiðlum í dag. Þá verða einnig gerðar breytingar á bifreiðagjaldi en tekjur ríkissjóðs vegna þessara flokka hefur dregist saman síðustu ár.
Nissan hefur kynnt fjórðu kynslóð af jepplingnum X-Trail, sem kynntur verður hjá BL í desember. X-Trail státar af háþróuðu fjórhjóladrifi. Bíllinn er búinn bensínvél sem hleður orku beint inn á rafhlöðu bílsins þaðan sem 94 kW rafmótorinn notar hana.
Borið hefur á því að Volkswagen ID. bifreiðar hafi verið fluttar til Evrópu án aðkomu viðurkenndra umboðsaðila Volkswagen og gangi þar kaupum og sölum. Umræddum Volkswagen ID. bifreiðum fylgir ekki alþjóðleg verksmiðjuábyrgð þrátt fyrir villandi fullyrðingar viðkomandi söluaðila. Að auki geta viðurkenndir sölu- og þjónustuaðilar í Evrópu ekki sinnt þjónustu og viðhaldi, þar með töldum ábyrgðaviðgerðum og öryggisinnköllunum.
Volkswagen Rúgbrauð er sennilega einn frægasti bíll mannkynssögunnar. Bjallan og Rúgbrauðið ásamt Toyota Hilux og Ford Mustang. Nokkrar goðsagnir sem allar eiga sinn sess í sögunni. Nýjasti bíll Volkswagen, ID. Buzz er tilraun Volkswagen til að rafvæða hið goðsagnakennda Rúgbrauð.
Kaliforníuríki er að reyna að gera allt sem í þess valdi stendur til að minnka umferð og útblástur frá umferð. Nú er búið að setja lög sem heimila ríkinu að greiða íbúum þess 1000 dollara fyrir að eiga ekki bíl.
Þeim fjölgar og fjölgar alltaf bílunum á safninu á Ystafelli í Köldukinn hjá Sverri Ingólfssyni, sem ræður þar ríkjum. Safnið er sprungið og ætlar Sverrir, sem er í hjólastól, að fara að byggja nýjar byggingar til að stækka safnið og koma fleiri bílum þar inn.
Bensínlítrinn er kominn undir 300 krónur hjá Costco og virðast önnur félög einnig lækka sín verð um þessar mundir. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda segir þetta löngu tímabært þar sem Ísland sé með hæsta bensínverð í Evrópu. Þó undirliggjandi verðlækkanir séu til staðar sé mikil óvissa fram undan og viðbúið að eldsneytisverð verði enn hátt.
Það reyndist þrautin þyngri fyrir íslenska sérfræðinga Arctic Trucks að bjarga Ford F-150 jeppa sem fór niður um ísinn í Norður-Íshafi í könnunarleiðangri fyrir umfangsmikið ferðalag svissneskra samtaka sem ætla sér að keyra á báða póla jarðar. Covid-19, innrás Rússa í Úkraínu og flökkusögur um að gríðarlegt magn eldsneytis hafi farið niður með bílnum auðvelduðu ekki verkið. Björgunin tókst hins vegar vonum framar.
Alls voru nýskráðar 1649 bifreiðar í nýliðnum ágúst mánuði. Þar af voru 236 Toyota bifreiðar. 187 Kia bifreiðar og 128 Suzuki bifreiðar. Dacia var í fjórða sæti með 128 bíla, þar af 124 Duster bifreiðar sem gerir Duster vinsælustu undirdegundina. Tölurnar byggja á upplýsingum frá Samgöngustofu.
Sænski bílaframleiðandinn Polestar kynnti Polestar 6 LA Concept bílinn í ágúst og opnaði svo í framhaldinu fyrir pantanir á bílnum. Einungis 500 eintök verða framleidd og þau eru nú uppurin.
Sveinn Friðrik Sveinsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Arctic Trucks International ehf.
Búið er að ná Ford F-150 jeppa sem að fór í gegnum ísbreiðuna á Norður-Íshafinu í miðjum jeppaleiðangri í mars síðastliðnum á þurrt land. Íslenska fyrirtækið Arctic Trucks kom bæði að jeppaleiðangrinum í mars sem og björgunaraðgerðum núna í ágúst.
Fox News hefur í gegnum tíðina fjallað ítrekað um að loftslagsbreytingar séu farsi, búinn til af fjölmiðlum. Eða þá að þær eru komnar til af náttúrulegum ástæðum en ekki af mannavöldum. Fox News gagnrýndi á dögunum Harry bretaprins fyrir að láta bensínhák sinn ganga í lausagangi í lengri tíma. Bíllinn sem um ræðir er Audi e-Tron, rafbíll.
Rafmagnsjeppinn R1S frá Rivian er loksins kominn í hendur almennra kaupenda. Hingað til hafa allar afhendingar verið til starfsfólks Rivian. Fyrsta afhendingin var í síðustu viku.
Kia hefur hafið kynningu á rafbílalínu sinni, EV á EV6 með góðum árangri. Næsti bíll í línunni er EV9 sem er ætlað að vera alvöru jeppi samkvæmt Kia. Hann á að geta vaðið djúpt og klifrað upp brattar hæðir og yfir höfuð, vera jeppi sem er knúinn áfram á rafmagni.
Dodge og Alfa Romeo eru systurfélög sama móðurfélags, Stellantis. Dodge kynnti nýlega jepplinginn Hornet sem hefur náð talsverðum vinsældum. Dodge segir að 14.000 forpantanir hafi borist sama dag og bíllinn var kynntur. Bíllinn er tengiltvinnbíll.
Það hefur verið hávær umræða í gangi um breytta gjaldtöku í samgöngum. Annarsvegar hefur umræðan snúist um veggjöld á stærri verkefnum tengt jarðgöngum og brúarsmíði. Hinsvegar hefur umræðan snúist um ójafnvægi í núgildandi gjaldtöku þar sem nýorkubílar eru undanskyldir enda gjaldið tekið í gegnum sölu á bensíni og dísil. Hér verður ekki rætt um möguleg gangna- og brúargjöld enda myndu bifreiðar greiða slík gjöld að jöfnu óháð orkugjafa.
Ameríski bílaframleiðandinn Dodge hefur í gegnum tíðina framleitt bíla sem flestir ganga fyrir stórum V8 vélum sem framleiða hávaða. Nú eru straumhvörf yfirvofandi og Dodge ætlar að rafvæða framboð sitt. Dodge ætlar þó að halda fast í einkenni sín, gírskiptingar og hávær útblásturshljóð verða meðal þess sem rafvædd framtíð ber í skauti sér ef marka má nýjan hugmyndabíl frá Dodge.
Kia er að prófa nýjar djarfar leiðir í þróun rafbíla. Á næsta ári ætlar Kia að kynna 576 hestafla GT frammistöðu útgáfu af EV6 sem á að standa í helstu sportbílum samtímans.
FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandið hefur staðfest nýjar vélareglur fyrir Formúlu 1 sem munu taka gildi árið 2026. Staðfesting á reglunum ætti að gera bílaframleiðendunum Audi og Porsche kleift að staðfesta þátttöku sína í Formúlu 1.
Yfirmaður M-deildar BMW, Frank van Meel segir að framtíðar bílar M deildarinnar verið rafbílar með kunnulega aksturseiginleika, sem eru aðal einkenni M bílanna.