Elon Musk svarar víðfrægri gagnrýni á Tesla Elon Musk mætti til viðtals hjá Sandy Munro, verkfræðing sem fékk mikla athygli fyrir að líkja smíðagæðum Tesla Model 3 við Kia á tíunda áratug síðustu aldar. Myndband af viðtalinu má finna í fréttinni. Bílar 5. febrúar 2021 07:00
Tesla innkallar 135 þúsund bifreiðar vegna galla Rafbílaframleiðandinn Tesla hyggst innkalla 135 þúsund Model S og Model X bifreiðar sem seldar voru í Bandaríkjunum vegna galla sem getur leitt til þess að snertiskjáir um borð í þeim hætta að virka. Bílar 3. febrúar 2021 14:30
Toyota byrjar árið á toppnum Toyota var með flestar nýskráningar nýrra bíla á Íslandi í nýliðnum janúar. En 113 nýjar Toyota bifreiðar voru nýskráðar. Kia var í öðru sæti með 63 og Mitsubishi var í þriðja sæti með 54 nýskráningar. Bílar 3. febrúar 2021 07:00
Bílgreinasambandið og SVÞ í öflugt samstarf Bílgreinasambandið og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu hófu á dögunum öflugt samstarf með undirritun samstarfsyfirlýsingar. Markmiðið er að efla þjónustu við félagsmenn í samskiptum við stjórnvöld, í lögfræðilegum álitamálum og í fræðslu- og menntunarmálum ásamt því að styrkja rekstur beggja samtaka. Bílar 1. febrúar 2021 07:01
Kappakstur á RIG í beinni á Stöð 2 e-sport Klukkan 16:00 í dag hefst stafrænt kappakstursmót sem hluti af Reykjavík International Games íþróttahátíðinni #RIG21. Keppnin fer fram í gegnum netið og notast er við hermikappaksturs forritið iRacing. Margir af fremstu akstursíþróttamönnum landsins taka þátt, þar á meðal ríkjandi Íslandsmeistari í Rallakstri 2020 Gunnar Karl Jóhannesson, og fyrrum formúlu 3 ökumaðurinn Kristján Einar Kristjánsson. Gert er ráð fyrir þátttöku nokkurra erlendra ökumanna. Bílar 30. janúar 2021 15:31
Nissan E-NV200 - Lipurðin situr eftir E-NV200 er hreinn raf-sendibíll sem hægt er að útfæra sem tveggja-, fimm- og sjö manna bíl. Prófaður var bíll í tveggja sæta útfærslu, fagurrauður að lit. Bílar 30. janúar 2021 07:00
Hyundai birtir fyrstu myndir af sportlegum Tucson N Line Á dögunum kynnti Hyundai á Íslandi nýjan og gjörbreyttan Tucson; fjórðu kynslóð þessa vinsæla sportjepplings, sem er mest seldi bíll framleiðandans á Evrópumarkaði. Nýi bíllinn er mikið breyttur í útliti bæði að utan og innan. Auk þess sem öryggis- og þægindabúnaður hefur verið uppfærður. Í vor kynnir Hyundai Motor svo formlega sportlega N Line útgáfu Tucson á 19“ felgum og birti framleiðandinn fyrstu tvær myndirnar af bílnum í síðustu viku. Bílar 29. janúar 2021 07:01
Blóðhundurinn er til sölu Landhraðametsbíllinn Blóðhundurinn er til sölu. Ian Warhurst, maðurinn sem bjargaði verkefninu fyrir tveimur árum hefur tilkynnt að hann sé að leita að nýjum eigendum eða styrktaraðilum. Warhurst tókst ásamt teyminu sem vinnur í kringum bílinn að koma honum yfir 1000 km/klst. múrinn. Bílar 27. janúar 2021 07:00
Kia eykur markaðshlutdeild sína í Evrópu Kia hefur náð hæstu markaðshlutdeild sem bílaframleiðandinn hefur nokkru sinni náð í Evrópu. Alls seldust 416.715 Kia bílar í Evrópu árið 2020 og hefur markaðshlutdeild Kia hækkað úr 3,2 í 3,5% í álfunni. Hlutdeild rafmagnsbíla Kia fór upp um 197% og tengiltvinnbílarbíla (Plug-in Hybrid) upp um +112%. Sala á rafbílum og tengiltvinnbílum er nú um 25% af sölu Kia bíla í Evrópu. Sala á rafbílum Kia fór 100 þúsund eintök á einu ári í fyrsta skipti í Evrópu. Bílar 25. janúar 2021 07:01
Bílaleiga Akureyrar með 20 Hyundai Kona EV til leigu Bílaleigan Akureyrar - Höldur ehf., hefur tekið við tuttugu bílum af gerðinni Hyundai Kona EV sem bílaleigan fékk afhenta nýlega hjá Hyundai á Íslandi við Kauptún í Garðabæ. Um er að ræða Premium útgáfu þessa 100% rafbíls sem búinn er ríkulegum öryggis- og þægindabúnaði ásamt stærri og langdrægari rafhlöðunni, 64 kWh, sem skilar 204 hestöflum og allt að 449 km drægni á rafhlöðunni. Bílar 23. janúar 2021 07:00
Nýr Mercedes-Benz EQA rafbíll frumsýndur Nýr Mercedes-Benz EQA rafbíll var heimsfrumsýndur í dag en bíllinn var frumsýndur á öllum mörkuðum í gegnum stafræna miðla. Mercedes-Benz sýndi hugmyndaútgáfu bílsins í Frankfurt árið 2017. Bílar 22. janúar 2021 07:00
Toyota smíðar sjálfkeyrandi drift bíl með Stanford Toyota hefur í samstarfi við Stanford Háskóla þróð og smíðað sjálfkeyrandi, driftandi Toyota Supra bifreið. Myndband af bílnum fylgir fréttinni. Bílar 20. janúar 2021 07:01
Af hverju er Orka náttúrunnar í orkuskiptum? Orka náttúrunnar (ON) framleiðir og selur rafmagn á landsvísu. Framtíðarsýn fyrirtækisins er sú að auka lífsgæði og skapa verðmæti á sjálfbæran hátt og vera leiðandi afl í nýsköpun og þróun endurnýjanlegrar orku, en rafmagn er innlend endurnýjanleg orka. Skoðun 19. janúar 2021 15:25
Olís opnar hraðhleðslustöð á Reyðarfirði Olís hefur opnað nýja hraðhleðslustöð fyrir rafbíla á þjónustustöð félagsins á Reyðarfirði. Hraðhleðslustöðvar Olís eru þar með orðnar fjórar; í Álfheimum í Reykjavík, á Höfn í Hornafirði, Siglufirði og Reyðarfirði. Bílar 18. janúar 2021 07:00
Hyundai i10 besti borgarbíllinn 2021 að mati What Car Breski bílavefurinn What Car? hefur útnefnt nýjan Hyundai i10 besta borgarbíl ársins 2021. Þetta var tilkynnt á árlegri verðlaunahátíð What car? sem fram fór á netinu fyrr í vikunni, þar sem i10 var lofaður fyrir hagkvæmni í rekstri, góðan tæknibúnað og ekki síst þægindi þar sem i10 þykir meðal annars einkar hljóðlátur. Bílar 16. janúar 2021 07:00
Segir leitt að missa 4×4 og hafnar ásökunum um harðlínustefnu „Okkur finnst mjög leiðinlegt að missa 4×4. Það eru mjög mörg mál sem við eigum sameiginleg og hagsmunir sem við eigum sameiginlega.“ Þetta segir Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, um ákvörðun Ferðaklúbbsins 4×4 að segja sig úr Landvernd. Hún hafnar ásökunum klubbsins um að Landvernd hafi rekið stefnu undanfarin ár sem hafi verið öfgakennd og markast af harðlínu. Innlent 15. janúar 2021 14:24
Segja sig úr Landvernd vegna „öfga“ og „harðlínu“ Ferðaklúbburinn 4×4 hefur sagt sig úr Landvernd sem klúbburinn sakar um að hafa rekið stefnu undanfarin ár sem hafi verið öfgakennd, markast af harðlínu og farið langt út fyrir svið náttúruverndar. Innlent 15. janúar 2021 07:28
Kia Sorento besti stóri sportjeppinn hjá What Car Nýr Kia Sorento hefur nú bætt enn einni rósinni í hnappagatið með því að vinna til verðlaunanna Besti stóri sportjeppi ársins 2021 hjá breska bílatímaritinu What Car? Bílar 15. janúar 2021 07:01
Héraðsdómur féllst ekki á að kona hafi ætlað að kaupa hjólhýsi með Land Rovernum Kona var í gær dæmd í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða hátt í 5,3 milljóna króna sekt fyrir að hafa gefið upp rangt kaupverð á Land Rover Defender 90 Ts Xs bifreið sem hún flutti inn til Íslands. Viðskipti innlent 14. janúar 2021 12:49
Rafsendibíllinn Peugeot e-Expert, sendibíll ársins 2021 Peugeot e-Expert 100% hreinn rafsendibíll er væntanlegur til landsins í mars og mun Brimborg bjóða hann með ríkulegum staðalbúnaði, 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Bílar 13. janúar 2021 07:00
2021 og hraðari orkuskipti Á nýju ári er alltaf gott að líta fram á veginn og skoða hvað megi leggja auknar áherslur á. Ofarlega á mínum lista eru þriðju orkuskiptin. Knýja þarf fram orkuskipti í samgöngum, til að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum miðað við Parísarsamninginn og ný og efld markmið Íslands um minni losun og aukna kolefnisbindingu. Skoðun 12. janúar 2021 07:30
Sjö efstu bílarnir í vali á bíl ársins í Evrópu Tilnefningar til verðlaunanna Bíll ársins í Evrópu árið 2021 eru komnar í hús. Alls voru 29 bílar sem komu til greina en dómnefnd hefur skilað endanlegum tilnefningum og eru sjö bílar sem koma til greina. Bílar 11. janúar 2021 07:01
Markaðshlutdeild Mercedes-Benz tvöfaldaðist á Íslandi Mercedes-Benz er söluhæsta lúxusbílamerkið á Íslandi enn eitt árið og jók söluna verulega á síðasta ári miðað við árið á undan. Alls voru nýskráðir 324 Mercedes-Benz bílar á árinu 2020. Markaðshlutdeild Mercedes-Benz hér á landi tvöfaldaðist á milli ára, fór úr 1,7% árið 2019 í 3,5% árið 2020 á sama tíma og sala nýrra fólksbíla dróst saman um 20,1% á síðasta ári. Bílar 9. janúar 2021 07:00
Tesla Model 3 mest seldi bílinn á Íslandi Tesla Model 3 var mest seldi bíllinn á Íslandi á síðasta ári en 858 slíkir rafbílar voru nýskráðir árið 2020. Næst á eftir kom tengiltvinnbíllinn Mitsubishi Outlander en 773 slík eintök voru nýskráð hér á landi, samkvæmt tölum frá Samgöngustofu. Viðskipti innlent 8. janúar 2021 13:36
Kia kynnir nýtt merki Kia kynnti í dag nýtt vörumerki bílaframleiðandans. Nýja merkið er tákn framsýnar og á að vera hvetjandi fyrir vörur og þjónustu fyrirtækisins í huga viðskiptavina þess. Með kynningu á nýja merkinu á sér um leið stað ákveðin umbreyting hjá Kia á vörumerkinu og skipulagningu innan fyrirtækisins. Bílar 8. janúar 2021 07:01
Kona innkölluð vegna villu BL Hyundai, sem starfrækir verslun í Kauptúni í Garðabæ, mun þurfa að innkalla 49 bifreiðar af tegundinni Hyundai KONA EV. Um er að ræða bifreiðar af árgerð 2018-2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendastofu. Neytendur 7. janúar 2021 14:11
Rafmagn í fyrsta skipti vinsælasti orkugjafinn Samtals voru nýskráðir 2356 rafbílar á síðasta ári. Bensín bílar voru 2139 og 1805 dísil bílar. Til samanburðar voru nýskráðir 917 nýir rafbílar árið 2019. það er því aukning um 157% á milli ára. Tesla Model 3 er lang mest selda undirtegund rafbíla með 856 bíla nýskráða. Bílar 6. janúar 2021 07:01
Dreymir um öflugt hermikappaksturs samfélag Vöxtur raf-íþrótta hefur verið sérstaklega mikill í kórónaveirufaladrinum. Hermikappakstur er þar engin undantekning. Hinrik Hoe Haraldsson, eigandi og framkvæmdastjóri GT Akademíunnar hefur gríðarlegan metnað fyrir því að byggja upp hermikappaksturs samfélagi. Bílar 4. janúar 2021 07:01
Mitsubishi mest nýskráða tegundin í desember Flestar nýskráningar í desember voru Mitsubishi bifreiðar, 96 samtals. Næst flestar voru bifreiðar af gerð Toyota, 82 talsins og Kia var í þriðja sæti með 80 nýskráningar. Þessar tölur miða við tölfræði af vef samgögnustofu fyrir nýskráningar nýrra og notaðra ökutækja. Bílar 2. janúar 2021 07:01
Ferrari áætlar að framleiða tvo raf-jepplinga Ítalski sportbílaframleiðandinn Ferrari hefur lengi staðið fyrir hreinræktaða sportbíla. Ferrari hefur í hyggju að framleiða tvo raf-jepplinga. Bílar 31. desember 2020 07:00