Barnabarn Shankly vill fjarlæga styttuna af honum fyrir utan Anfield Barnabarn Bill Shankly vill að styttan af Bill sjálfum verði fjarlægð fyrir utan Anfield eftir nýjustu ákvörðun félagsins. Fótbolti 20. apríl 2021 18:02
Ríkisstjórn Bretlands mun skoða alla möguleika til að koma í veg fyrir ofurdeild Evrópu Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir að ríkisstjórn landsins skoði allar mögulegar leiðir til að koma í veg fyrir stofnun ofurdeildar Evrópu í knattspyrnu. Ef fara þarf með málið fyrir dómstóla þá verður það gert. Fótbolti 20. apríl 2021 12:36
Morrissey reiður út í Simpsons: „Hvar eru lögin sem vernda mig?“ Breski söngvarinn Morrissey sakar aðstandendur bandarísku teiknimyndaþáttanna um Simpson-fjölskylduna um „hatur“ í sinn garð eftir að gert var grín að honum í nýjum þætti. Handritshöfundur þáttarins hefur þó sagt að persónan sem fór fyrir brjóstið á söngvaranum sé ekki eingöngu byggð á honum. Bíó og sjónvarp 20. apríl 2021 11:37
Rauða spjaldið: Vilhjálmur og Boris beita sér gegn Ofurdeildinni Vilhjálmur Bretaprins er meðal þeirra sem hafa tjáð sig um nýja Ofurdeild í knattspyrnu en hann sagði á Twitter að nú riði á að standa vörð um knattspyrnusamfélagið og þau gildi sem það stæði fyrir; samkeppni og sanngirni. Fótbolti 20. apríl 2021 09:04
Leiðtogi Sinn Féin biðst afsökunar á morðinu á Mountbatten lávarði Mary Lou McDonald, leiðtogi Sinn Féin, hefur beðist afsökunar á dauða Mountbatten lávarðs, frænda hertogans af Edinborg. Mountbatten var myrtur af Írska lýðveldishernum (IRA) árið 1979. Erlent 19. apríl 2021 06:47
Tólf knattspyrnufélög hafa staðfest að þau ætli sér að stofna ofurdeild Evrópu Orðrómar dagsins reyndust sannir. Í kvöld var staðfest að tólf lið séu svokallaðir „stofnmeðlimir“ í því sem á að verða ofurdeild Evrópu í knattspyrnu. Fótbolti 18. apríl 2021 23:04
Fyrsta sinn í rúman áratug sem Celtic endar tímabilið án titils Rangers sló erkifjendur sína í Celtic út úr skoska bikarnum í knattspyrnu fyrr í dag. Það þýðir að Celtic endar tímabilið án titils en það hefur ekki gerst síðan árið 2010. Fótbolti 18. apríl 2021 23:00
Drottningin sat ein næst altarinu við jarðarförina Filippus prins, maki Elísabetar Bretadrottningar, var borinn til grafar í dag en athöfnin fór fram í kapellu St. Georgs við Windsorkastala. Fjöldi þeirra sem sóttu jarðarförina var takmarkaður við þrjátíu vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Erlent 17. apríl 2021 16:06
Filippus prins borinn til grafar Filippus prins, maki Elísabetar Bretadrottningar, var borinn til grafar í dag. Fjöldi þeirra sem sóttu jarðarförina var takmarkaður við þrjátíu vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar en sýnt var frá athöfninni í beinni útsendingu. Erlent 17. apríl 2021 11:41
Fjöldi fólks fylgdist með komu fallbyssukerranna Fjöldi fólks fylgdist með því þegar þegar hin konunglega viðhafnarsveit breska hersins kom ríðandi með þrjár fallbyssukerrur í eftirdragi að Windsor-kastala í dag til undirbúnings útfarar Filippusar prins á morgun. Erlent 16. apríl 2021 22:12
Drottningin deilir áður óséðri mynd Elísabet Bretadrottning óskaði eftir því að birta mynd af sér og eiginmanni sínum á aðgangi konungsfjölskyldunnar sem aldrei hefur verið birt áður. Myndin var tekin í Skotlandi árið 2003. Lífið 16. apríl 2021 22:09
Helen McCrory látin Breska leikkonan Helen McCrory er látin 52 ára að aldri. Frá þessu greindi eiginmaður hennar Damian Lewis á Twitter-síðu sinni í dag. McCrory lést eftir baráttu við krabbamein. Erlent 16. apríl 2021 17:18
Drottningin situr ein við útförina Þrjátíu verða viðstödd útför Filippusar prins sem fer fram í kapellu St. Georgs við Windsor-kastala næstkomandi laugardag. Elísabet Bretadrottning, eiginkona Filippusar, mun sitja ein við útförina. Erlent 15. apríl 2021 17:49
Drottningin mætt aftur til starfa Elísabet Bretadrottning sneri aftur til starfa sinna fjórum dögum eftir að Filippus eiginmaður hennar lést. Hinn 94 ára gamla drottning sótti viðburð í gær þar sem æðsti starfsmaður konungsfjölskyldunnar fór á eftirlaun og þar að auki heimsótti hún í dag siglingaklúbb ásamt dóttur sinni. Erlent 14. apríl 2021 15:40
Stærstu kanínu heims rænt í Englandi Lögreglan í Vestur-Mersíu í Englandi leitar nú að stærstu kanínu heims, sem rænt var um helgina. Kanína, sem heitir Daríus, var tekin úr garði eigenda hennar í Worcesterskíri. Erlent 13. apríl 2021 13:00
Þéttsetinn djammbekkur í kjölfar afléttinga Það var mikið um fögnuð og glaum á Englandi í gær þegar veitingastöðum og öldurhúsum var aftur heimilt að taka á móti kúnnum og bera í þá mat og drykk utandyra. Erlent 13. apríl 2021 07:11
Harry kominn til Bretlands og mun dvelja í sóttkví fram að útför Harry Bretaprins er sagður vera kominn til Englands til að sækja útför afa síns. Filippus prins lést 9. apríl síðastliðinn en útför hans mun fara fram í kapellu St. Georgs við Windsor-kastala laugardaginn 17. apríl. Erlent 12. apríl 2021 07:39
Bretar fá að heimsækja krár að nýju Búðir, hárgreiðslustofur, líkamsræktarstöðvar og krár munu opna dyr sínar fyrir gestum í Englandi á morgun. Þetta tilkynnti Boris Johnson, forsætisráðherra, í gær. Hann sagði um stórt skref í átt að „frelsi undan oki takmarkana vegna faraldursins“ að ræða. Erlent 11. apríl 2021 23:12
Saknar pabba síns og þakkar fyrir kveðjurnar Karl Bretaprins ávarpaði í dag bresku þjóðina vegna fráfalls föður hans, Filippusar prins, sem lést í gærmorgun 99 ára að aldri. Hann segir viðbrögðin hreyfa við fjölskyldunni sem sé þakklát öllum þeim sem minnist prinsins. Erlent 10. apríl 2021 17:33
Telja að gagnrýnandi Pútín hafi verið kyrktur Nikolai Glushkov, rússneskur athafnamaður og gagnrýnandi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, er talinn hafa verið kyrktur í London í mars árið 2018. Að mati dánardómstjóra í Bretlandi eru vísbendingar um að morðingi Glushkov hafi reynt að láta dauða hans líta út fyrir að hafa verið sjálfsvíg. Erlent 10. apríl 2021 08:08
Drottningarmaður í tæp sjötíu ár Filippus Bretaprins lést í morgun, 99 ára að aldri. Margir syrgja prinsinn, sem var giftur Elísabetu drottningu í 73 ár. Erlent 9. apríl 2021 20:00
„Pabbi, við ætlum ekki að stoppa því mamma stoppaði aldrei“ Hinn 42 ára gamli Shreeraj Laturia, sem missti eiginkonu sína og ungbarn í bílslysi við Núpsvötn, segir að langhlaup hafi hjálpað honum mikið við að vinna úr sorginni sem fylgdi þessum mikla missi. Innlent 9. apríl 2021 17:41
Filippus prins er látinn Filippus prins, eiginmaður Elísabetar Bretadrottningar er látinn. Hann lést í morgun í Windsor-kastala að því er segir í tilkynningu frá bresku konungshöllinni. Hann varð 99 ára. Erlent 9. apríl 2021 11:09
Óeirðirnar á Norður-Írlandi halda áfram enn eina nóttina Til átaka kom á milli ungmenna og lögreglu í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Köstuðu ungmennin steinum og flugeldum að lögreglumönnum sem svöruðu með háþrýstivatnsbyssum. Óeirðir hafa brotist út daglega frá því um páskana. Erlent 9. apríl 2021 10:43
15 prósent Breta nota gæludýranöfn sem aðgangsorð Milljónir Breta nota nöfn gæludýra sem aðgangsorð ef marka má nýja könnun National Cyber Security Centre (NCSC). Könnunin leiddi í ljós að um 15 prósent nota gæludýranöfn sem leyniorð, 14 prósent nafn fjölskyldumeðlims og 13 prósent einhverja markverða dagsetningu. Erlent 9. apríl 2021 09:19
Fjórir af milljón gætu fengið blóðtappa: Missti bróður sinn en hvetur fólk samt til að þiggja bólusetningu Systir manns sem lést eftir að hafa fengið sjaldgæfan blóðtappa í heila í kjölfar bólusetningar með bóluefninu frá AstraZeneca, segir hann hafa verið ótrúlega óheppinn og hvetur fólk til að þiggja bólusetningu. Erlent 9. apríl 2021 06:50
Útlit fyrir hjarðónæmi í Bretlandi á mánudag Allt bendir til þess að hjarðónæmi við kórónuveirunni náist í Bretlandi á mánudag. Spár gera nú ráð fyrir því að 73,4 prósent Breta verði komnir með mótefni við veirunni, annað hvort vegna fyrra smits eða bólusetningar. Erlent 8. apríl 2021 21:07
Fimmtíu lögregluþjónar hafa særst á Norður-Írlandi Minnst fimmtíu lögregluþjónar hafa særst í átökum í róstum á Norður-Írlandi síðustu sex nætur. Kveikt var í strætisvagni í nótt. Erlent 8. apríl 2021 20:01
Hvatt til stillingar eftir fjórðu nótt óeirða á Norður-Írlandi Óeirðarseggir kveiktu í rútu sem þeir stálu og köstuðu bensínsprengjum að lögreglumönnum í Belfast í nótt. Þetta var fjórða nóttin í röð sem til óeirða kemur í borginni. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi óeirðirnar og hvatti til stillingar. Erlent 8. apríl 2021 08:14
Var læstur úti í eigin sendiráði og varði nóttinni í bílnum Sendiherra Mjanmar í London þurfti að eyða nóttinni í bíl sínum eftir að honum var neitað um inngöngu í sendiráðið þar sem hann alla jafna ræður ríkjum. Erlent 8. apríl 2021 06:51