

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Leikmaður Arsenal fjárfestir í vegan fótboltaliði
Knattspyrnumaðurinn Hector Bellerin er ekki hættur að spila en hann er farinn að fjárfesta í fótboltanum.

Ensku ungstirnin á forsíðum enskra fjölmiðla: „Heimskur og heimskari“
Það kom ekki mikið á óvart að ungstirnin Phil Foden og Masen Greenwood hafi verið á forsíðum margra enska fjölmiðla eftir skandalinn sem komst upp í gær.

„Ef við hefðum vitað betur, þá hefðum við aldrei farið“
Lára Clausen, sem fór ásamt Nadíu Sif Líndal, í heimsókn á hótelherbergi ensku knattspyrnulandsliðsmannanna Phil Foden og Mason Greenwood í gærkvöldi, birti í kvöld röð myndbanda á Instagram-síðu sinni þar sem hún gengst við því að hafa tekið upp samskipti sín og Nadíu við leikmennina.

Foden biður alla nema Íslendinga afsökunar
Enski landsliðsmaðurinn Phil Foden hefur sent frá sér afsökunarbeiðni eftir að hafa brotið reglur um sóttkví á Íslandi með því að hitta tvær íslenskar konur á hóteli enska landsliðsins.

Enn eykst samkeppnin hjá Gylfa | James aftur til Ancelotti
Kólumbíski miðjumaðurinn James Rodriguez er orðinn leikmaður Everton en félagið festi kaup á þessum 29 ára gamla leikmanni fyrir 20 milljónir punda, frá Spánarmeisturum Real Madrid.

Nadía Sif tjáir sig: „Ég lak engu til fjölmiðla“
Nadía Sif Líndal, önnur kvennanna sem heimsótti ensku landsliðsmennina Phil Foden og Mason Greenwood á Hótel Sögu í gær segist ekki hafa lekið myndefni frá samskiptum sínum við þá til fjölmiðla.

Segjast ekki hafa vitað að Foden og Greenwood hafi verið í sóttkví
Tvær íslenskar konur sem hittu ensku landsliðsmennina Mason Greenwood og Phil Foden á Hóteli Sögu í gær segjast ekki hafa gert sér grein fyrir því að þeir hafi verið í sóttkví.

Pabbi Mason Mount sendi þýskum fjölmiðlum tóninn
Faðir Mason Mount leikmanns Chelsea er ekki sáttur með fréttaflutning þýskra fjölmiðla varðandi félagaskipti Kai Havertz og son hans.

Greenwood og Foden greiða 250 þúsund krónur í sekt
Mason Greenwood og Phil Foden, leikmenn enska landsliðsins, hafa lítinn áhuga á að dvelja á Íslandi stundinni lengur og má reikna með því að innan klukkustundar hafi þeir greitt 250 þúsund króna sekt fyrir brot á sóttkví.

Berst við Gylfa um mínútur í vetur og Ancelotti hrósar honum í hástert
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, er himinlifandi með að félagið hafi náð krækja í miðjumanninn Allan sem kemur til félagsins frá Napoli.

Sjáðu enska liðið yfirgefa Hótel Sögu
Enska landsliðið yfirgaf Hótel Sögu áðan og hélt til Keflavíkur þaðan sem það flýgur til Kaupmannahafnar.

Rannsókn á máli Greenwood og Foden langt komin
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á heimsókn íslenskra kvenna til enskra landsliðsmanna á Hótel Sögu um helgina er langt komin.

Man. City og Man. United um strákana sína: „Vonbrigði“ og „algjörlega óviðeigandi“
Manchester City og Manchester United hafa nú sent frá sér yfirlýsingar vegna hegðunar leikmanna þeirra hér á Íslandi.

Southgate segir að Greenwood og Foden hafi verið barnalegir: „Mjög alvarlegt“
Landsliðsþjálfari Englands fór yfir brot Masons Greenwood og Phils Foden á sóttvarnarreglum þegar þær buðu tveimur íslenskum stelpum upp á hótel enska landsliðsins.

Ensku ungstirnin úr leik eftir heimsóknina á hótelið
Mason Greenwood og Phil Foden hafa verið reknir úr enska landsliðshópnum. Þetta staðfesta enskir fjölmiðlar nú í hádeginu.

Ungstirni Englands fengu íslenskar stelpur upp á herbergi
Mason Greenwood og Phil Foden, leikmenn enska landsliðsins, brutu sóttvarnarreglur þegar þeir fengu íslenskar stelpur upp á hótel til sín.

Tveir leikmenn City með kórónuveiruna
Tveir leikmenn Manchester City eru komnir í einangrun eftir að hafa greinst með kórónuveiruna.

Arsenal byrjar á stórsigri | Man Utd og Chelsea skildu jöfn
Úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á Englandi fór almennilega af stað í dag. Arsenal byrjaði tímabilið á stórsigri gegn Reading. Þá skildu Manchester United og Chelsea jöfn.

Van de Beek mun slá met í fyrsta leik sínum með Man Utd
Þegar van de Beek stígur inn á völlinn í fyrsta skipti í rauðri treyju United verður hann þrettándi Hollendingurinn til að spila fyrir liðið og mun þá Holland eiga met yfir flesta erlenda leikmenn sem leikið hafa fyrir Man Utd.

Auknar líkur á að Man Utd fái Raúl Jimenez
Manchester United hefur í allt sumar verið orðað við mexíkóska framherjann Raúl Jimenez, sem hefur farið á kostum með Wolves undanfarin tvö tímabil.

Hvernig verður byrjunarlið Chelsea í vetur?
Eftir að hafa verið í félagsskiptabanni síðasta sumar hefur enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea farið hamförum á félagsskiptamarkaðinum í ár. Alls hefur liðið keypt fimm leikmenn og er orðað við fleiri.

18 ára Portúgali orðinn dýrasti leikmaðurinn í sögu Úlfanna
Wolves sló félagsmet í dag þegar liðið gerði 18 ára gamla portúgalska framherjann Fabio Silva að dýrasti leikmanni í sögu félagsins.

Klopp tilbúinn að selja tíu leikmenn Liverpool
Talið er að Englandsmeistarar Liverpool séu tilbúnir að selja alls tíu leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar þann 5. október næstkomandi.

Gylfi Þór fær aukna samkeppni | Everton staðfestir komu Allan
Enska knattspyrnufélagið Everton staðfesti í dag komu miðjumannsins Allan frá Napoli.

Man City vill Koulibaly en neitar að tala beint við Napoli
Manchester City vill festa kaup á Kalidou Koulibaly, miðverði Napoli, en City neitar þó að tala beint við ítalska félagið.

Havertz orðinn leikmaður Chelsea | Dýrasti leikmaður Chelsea frá upphafi
Loksins, loksins er þýska ungstirnið Kai Havertz orðinn leikmaður Chelsea. Gæti kaupverð hans farið upp í 90 milljónir punda þegar fram líða stundir.

Nýliðarnir sjö sem gætu leikið sinn fyrsta landsleik á Laugardalsvellinum
Íslenski landsliðshópurinn er töluvert leikreyndari en sá enski. Til að mynda eru sjö nýliðar í enska hópnum en bara einn í þeim íslenska.

Eini enski landsliðsmaðurinn til að skora hjá Íslandi í Laugardalnum spilaði ekki fleiri landsleiki
Paul Goddard skoraði mark enska landsliðsins þegar það spilaði síðast á Laugardalsvelli í leik sem KSÍ fékk enska landsliðið til að skrá sem A-landsleik.

Hikar ekki við að nota Greenwood og Foden á morgun
Gareth Southgate gæti notað hina ungu og efnilegu Mason Greenwood og Phil Foden gegn Íslandi á morgun.

Dorsett laus úr sóttkví: Heyrði af því að enska landsliðið vilji komast í Bláa lónið
Sky Sports maðurinn Rob Dorsett hefur sagt frá raunum sínum í sóttkví á Íslandi á samfélagsmiðlum en hann ræddi líka við Henry Birgir Gunnarsson um ævintýri sín í Reykjavík.