Valgeir og félagar á toppinn eftir dramatískan sigur Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar hans í Häcken unnu dramatískan 4-2 sigur er liðið tók á móti Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 15. júlí 2023 17:54
Declan Rice formlega orðinn leikmaður Arsenal Declan Rice er nú loks formlega orðinn leikmaður Arsenal, en hann skrifaði undir samning við liðið nú rétt í morgun. Samningurinn er til ársins 2028 með möguleika á framlengingu. Fótbolti 15. júlí 2023 13:31
West Ham kveður Declan Rice með tilfinningaþrungnu myndbandi West Ham staðfesti formlega í morgun að fyrirliði liðsins, Declan Rice, hefði yfirgefið liðið. Hann fékk höfðinglegar kveðjur á samfélagsmiðlum liðsins með tilfinningaþrungnu myndbandi. Fótbolti 15. júlí 2023 12:01
Van der Sar kominn heim til Hollands en áfram á gjörgæslu Edwin Van der Sar, fyrrverandi markvörður Manchester United og hollenska landsliðsins, var í gærkvöldi fluttur með sjúkraflugi frá Króatíu heim til Hollands. Hann hefur verið á gjörgæslu síðan 7. júlí vegna blæðinga inn á heila. Fótbolti 15. júlí 2023 11:30
Fabinho ekki með Liverpool til Þýskalands | Stórt tilboð frá Al-Ittihad á borðinu Liverpool héldu í morgun í æfingaferð til Þýskalands með 32 manna hóp en Fabinho er ekki á meðal þeirra leikmanna. Á borði félagsins er 40 milljón punda tilboð frá Al-Ittihad en Fabinho hefur þegar samþykkt launatilboðið frá Sádunum. Fótbolti 15. júlí 2023 11:00
Frumsýningu á Kenilworth Road í ensku úrvalsdeildinni seinkað Fyrsta heimaleik Luton Town í sögunni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla hefur verið verið frestað þar sem heimavöllur liðsins verður ekki klár í tæka tíð fyrir leik liðsins gegn Burnley. Fótbolti 15. júlí 2023 06:01
Ágúst Eðvald ósáttur við að fá gult spjald fyrir dýfu Ágúst Eðvald skoraði eina mark leiksins á 2. mínútu þegar Breiðablik vann nauman sigur gegn Fram í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Ágúst Eðvald segir góða byrjun hafa lagt grunninn að sigrinum. Fótbolti 15. júlí 2023 00:04
Jón Þórir: „Með þessari vinnusemi vinnum við hvaða lið sem er“ Jón Sveinsson, þjálfari Fram, var eðlilega ósáttur með niðurstöðuna þegar lið hans tapaði fyrir Breiðabliki, 0-1, í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Jón sagðist þó heilt yfir ánægður með frammistöðu síns liðs. Fótbolti 14. júlí 2023 23:56
Óskar Hrafn: „Erum að horfa á kommóðu og í henni eru margar skúffur“ Breiðablik fór með eins marks sigur af hólmi gegn Fram fyrr í kvöld. Blikarnir komust yfir á 2. mínútu, urðu manni fleiri á 48. mínútu og virtust ætla að sigla sigrinum örugglega heim en voru tæpir að missa leikinn í jafntefli á lokamínútum. Fótbolti 14. júlí 2023 23:52
Orri Steinn á skotskónum fyrir FC Köbenhavn Orri Steinn Óskarsson skoraði seinna mark FC Köbenhavn þegar liðið laut í lægra haldi fyrir tékkneska liðinu Viktoria Plzen, 3-2, í æfingaleik í fótbolta karla í dag. Fótbolti 14. júlí 2023 23:01
PSG blandar sér í baráttuna um Kane Franska félagið PSG hyggst bjóða í Harry Kane, framherja Tottenham Hotspur og enska karlalandsliðsins í fótbolta, en Kane hefur undanfarna daga verið sterklega orðaður við Bayern München. Fótbolti 14. júlí 2023 22:02
„Ég læri af þessum mistökum“ Berglin Rós Ágústsdóttir skoraði eina mark Íslands er liðið mátti þola 2-1 tap gegn Finnlandi í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Hún segist hafa séð margt jákvætt í leik íslenska liðsins sem hægt sé að taka með sér í næsta leik. Fótbolti 14. júlí 2023 20:29
Umfjöllun: Ísland - Finnland 1-2 | Tap í fyrsta heimaleik ársins Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 2-1 tap er liðið tók á móti Finnum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Berglind Rós Ágústsdóttir skoraði mark Íslands eftir að Eveliina Summanen og Jutta Rantala höfðu komið Finnum tveimur mörkum yfir. Fótbolti 14. júlí 2023 19:57
Rúnar Þór og Alex Þór spiluðu í sigri Rúnar Þór Sigurgeirsson og Alex Þór Hauksson léku báðir með Öster þegar liðið bar sigur úr býtum, 2-1, í leik sínum við Skövde AIK í sænsku B-deildinni í fótbolta karla í kvöld. Fótbolti 14. júlí 2023 18:58
Leik hætt vegna of mikillar hörku Það var ekki mikil vinátta á milli leikmanna Írlands og Kólumbíu í vináttulandsleik liðanna í fótbolta kvenna sem fram fór í dag. Leiknum sem var liður í undirbúningi þessara liða fyrir heimeistaramótið sem hefst í Ástralíu og Nýja-Sjálandi eftir sex daga. Fótbolti 14. júlí 2023 18:34
Klopp lánar miðvörð til gamla félagsins síns Hollenski varnarmaðurinn Sepp van den Berg fær ekki tækifærið hjá Liverpool á komandi tímabili því félagið hefur lánað hann enn einu sinni. Fótbolti 14. júlí 2023 16:30
Sif og Söndru þakkað fyrir á Laugardalsvellinum í kvöld Tvær öflugar knattspyrnukonur sem hafa gefið íslenska kvennafótboltanum mikið í gegnum árin verða heiðraðar í kvöld. Fótbolti 14. júlí 2023 16:13
Manchester United og Barcelona sektuð vegna brota á fjárhagsreglum UEFA Manchester United og Barcelona fengu í morgun sekt frá evrópska knattspyrnusambandinu. Félögin brutu gegn hinum margfrægu fjárhagsreglum sambandsins á síðasta ári. Enski boltinn 14. júlí 2023 15:46
PSG opnar dyrnar að nýju og glæsilegu æfingasvæði Leikmenn PSG mættu á sína fyrstu æfingu á nýju og glæsilegu æfingasvæði á mánudag. Þar er að finna sautján fótboltavelli og svæðið kostaði 300 milljón evrur að byggja. Fótbolti 14. júlí 2023 14:30
Enginn þekkti Messi í búðinni Argentínska knattspyrnugoðið Lionel Messi þekkir fátt annað en að vera umkringdur af aðdáendum um leið og hann stígur út fyrir dyr. Fótbolti 14. júlí 2023 14:01
KA-menn enn taplausir á heimavelli í Evrópukeppni eftir 33 ár KA-menn spiluðu sinn fyrsta Evrópuleik fyrir rúmum þrjátíu árum. Þeir hafa enn ekki tapað Evrópuleik á Íslandi. Fótbolti 14. júlí 2023 13:01
„Fannst frábært að vera atvinnukona og spila út um allan heim“ Anna Björk Kristjánsdóttir er kominn heim í landsliðsverkefni en hún er einnig á tímamótum. Anna Björk er nefnilega að flytja heim frá Ítalíu og ætlar að klára tímabilið með Val í Bestu deildinni. Fótbolti 14. júlí 2023 12:01
„Mjög spennandi leikir framundan hjá Val“ Ein efnilegasta knattspyrnukona landsins gekk til liðs við Íslandsmeistara Vals á dögunum frá sænska liðinu Kristianstad. Hún segir tímann úti hafa verið fínan og stefnir aftur á atvinnumennsku. Fótbolti 14. júlí 2023 10:30
Sjáðu N1-mótið á Akureyri: „Maður getur ekki alltaf unnið“ N1-mótið á Akureyri fór fram um síðustu helgi. Mótið hefur fyrir löngu skapað sér sess sem eitt stærsta sumarmótið á hverju ári og tóku um 2000 drengir þátt á mótinu í ár. Stefán Árni Pálsson mætti á mótið og fór yfir allt það helsta í nýjasta þætti Sumarmótanna á Stöð 2 Sport. Fótbolti 14. júlí 2023 10:01
Levy átti fund með framkvæmdastjóra Bayern vegna Kane Daniel Levy, eigandi Tottenham Hotspurs, hitti framkvæmdastjóra Bayern Munchen í gær til að ræða möguleg félagaskipti Harry Kane til þýska liðsins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Levy hittir forráðamenn Bayern á fundi. Enski boltinn 14. júlí 2023 09:30
FIFA gefur miða á HM kvenna í fótbolta vegna slakrar miðasölu Heimsmeistaramót kvenna í fótbolta fer fram í tveimur löndum að þessu sinni eða Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Það er mikill munur á áhuga á mótinu eftir því hvort leikirnir fara fram í Ástralíu eða í Nýja-Sjálandi. Fótbolti 14. júlí 2023 09:01
„Ótrúlega mikill heiður að hafa fengið að spila hundrað leiki fyrir landið sitt“ „Ég er mjög spennt fyrir þessum leik og vonandi verður fullur völlur, frábær stemning og góður fótbolti,“ sagði Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu fyrir leik liðsins gegn Finnlandi sem fram fer í kvöld. Fótbolti 14. júlí 2023 07:02
„Tekur því verkefni sem kemur og gerir það eins vel og maður getur“ Selma Sól Magnúsdóttir, leikmaður Rosenborg og íslenska landsliðsins, er spennt fyrir komandi verkefni með landsliðinu þar sem íslensku stelpurnar taka á móti Finnum annað kvöld og heimsækja svo Austurríki næstkomandi þriðjudag. Fótbolti 13. júlí 2023 23:31
Reynsluboltinn Young genginn í raðir Everton Hinn 38 ára gamli Ashley Young er genginn í raðir Everton á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Aston Villa rann út fyrr í sumar. Fótbolti 13. júlí 2023 23:00
Umfjöllun og viðtöl: HK - KR 1-1 | Þrumufleygur Atla tryggði HK-ingum stig HK og KR skiptu stigunum á milli sín er liðin mættust í 14. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 1-1 í leik þar sem Kristján Flóki Finnbogason kom gestunum í KR í forystu áður en Atli Arnarson jafnaði metin stuttu fyrir leikslok. Fótbolti 13. júlí 2023 22:03
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn