Bandaríkjamenn slá fund með Rússum út af borðinu Hvíta húsið hefur gefið það út að Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggist ekki funda með Vladimír Pútín Rússlandsforseta vegna stöðunnar sem skapast hefur í Úkraínu. Bandaríkjamenn útiloka fund með Rússum nú eftir að Pútín fyrirskipaði innrás í Úkraínu. Erlent 23. febrúar 2022 07:43
Biden kynnir viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi Joe Biden Bandaríkjaforseti segir innrás Rússlands inn í Úkraínu hafa hafist í gær þegar Vladímír Pútín viðurkenndi sjálfstæði tveggja héraða innan Úkraínu og fyrirskipaði að hermenn yrðu fluttir þangað til þess að sinna „friðargæslu.“ Erlent 22. febrúar 2022 20:43
Vestræn ríki loka á rússneska banka og frysta eignir rússneskra auðmanna Vestræn ríki hafa nú þegar gripið til refsiaðgerða gegn Rússum eftir viðurkenningu þeirra á sjálfstæði tveggja héraða í austurhluta Úkraínu og komu rússneskra hersveita þangað. Putin krefst þess að restin af Úkraínu verði hlutlaust ríki utan hernaðarbandalaga. Erlent 22. febrúar 2022 19:20
Utanríkisráðherra um Úkraínu: „Það er ekki nóg að sýna samstöðu í orði eða tístum“ Utanríkisráðherra segir hljóðið í varnarmálaráðherrum Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og Bretlands vera afar þungt. Hún hefur fundað með ráðherrunum síðustu daga vegna stöðunnar í Úkraínu en í gær viðurkenndu Rússar sjálfstæði tveggja héraða innan Úkraínu og sendu herlið inn í landið. Innlent 22. febrúar 2022 19:02
Talið víst að úrslitaleikurinn verði færður frá Rússlandi Nær öruggt er að úrslitaleikurinn í Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla verði færður frá Rússlandi eftir innrás Rússa í Úkraínu. Fótbolti 22. febrúar 2022 17:30
„Þetta er okkar heimili og land og við erum tilbúin“ Evrópusambandið hefur ákveðið að beita Rússa refsiaðgerðum vegna hernaðaraðgerða landsins í austurhluta Úkraínu. Sjálfstæðissinnar í austurhlutanum eru byrjaðir að kveða almenna borgara í herinn til að berjast við samlanda sína að sögn konu frá landinu sem býr hér. Erlent 22. febrúar 2022 14:01
Olíuverð hækkar hratt og hefur ekki verið hærra frá 2014 Olíuverð hafði í morgun ekki verið hærra frá 2014 samhliða mjög svo aukinni spennu í Austur-Evrópu. Spennan við Úkraínu náði nýjum hæðum í gærkvöldi þegar Vladimír Pútín, forseti Rússlands, viðurkenndi sjálfstæði tveggja héraða í Úkraínu þar sem aðskilnaðarsinnar, studdir af Rússlandi, ráða ríkjum. Viðskipti erlent 22. febrúar 2022 09:40
Hráolíuverð ekki verið hærra í sjö ár Olíuverð hefur farið hækkandi síðustu daga og vikur. Tunna af Brent-hráolíu kostar nú 97,44 Bandaríkjadali og hefur ekki verið dýrari í sjö ár. Viðskipti erlent 22. febrúar 2022 08:04
Vaktin: Innrás Rússlands í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, bað í dag um, og fékk fljótt, formlegt leyfi til að beita hernum utan landamæra ríkisins. Það var degi eftir að hann sendi hermenn inn í austurhluta Úkraínu þar sem aðskilnaðarsinnar sem eru hliðhollir Rússlandi og studdir af Rússum, ráða ríkjum. Erlent 22. febrúar 2022 06:39
Öryggiráðið fundar um stöðuna: Sendir herlið inn í Úkraínu og ber fyrir sig friðargæslu Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur fyrirskipað að herlið fari inn í Luhansk og Donetsk. Hann segir því ætlað að sinna friðargæslu. Þegar eru um 190 þúsund rússneskir hermenn við landamæri Úkraínu. Nýjustu fréttir birtast í vaktinni hér að neðan. Erlent 21. febrúar 2022 21:48
Pútín viðurkennir sjálfstæði Luhansk og Donetsk Rússlandsforseti hefur undirritað tilskipun um viðurkenningu Rússlands á sjálfstæði héraðanna Luhansk og Donetsk í austurhluta Úkraínu. Hann sagði í ávarpi í kvöld að Úkraína ætti sér enga sögu um að vera raunveruleg þjóð. Erlent 21. febrúar 2022 19:02
Bíða eftir afdrifaríku svari Pútíns á meðan spennan magnast við landamæri Úkraínu Vladimir Pútin, forseti Rússlands, íhugar nú hvort hann muni svara ákalli um að viðurkenna sjálfstæði tveggja héraða í austanverðri Úkraínu. Þessu lýsti hann yfir á fundi með öryggisráði sínu í dag. Erlent 21. febrúar 2022 16:39
Ekki öll von úti um diplómatíska lausn í deilunni Talsmaður Rússlandsforseta segir tilkynningar um leiðtogafund forseta Bandaríkjanna og Rússlands um ástandið í Úkraínu ótímabærar. Utanríkisráðherra segir að ástandið sé þegar orðið grafalvarlegt í Úkraínu. Erlent 21. febrúar 2022 14:03
Engin niðurnegld áform um leiðtogafund að sögn Rússa Rússnesk yfirvöld segja að sem stendur séu engin niðurnegld áform um að Vladimír Pútín Rússlandsforseti og kollegi hans frá Bandaríkjunum, Joe Biden, hittist á leiðtogafundi til að ræða spennuna á landamærum Rússlands og Úkraínu. Erlent 21. febrúar 2022 11:57
Biden fellst á leiðtogafund með Pútín Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur í stórum dráttum fallist á leiðtogafund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta til að ræða ástandið í Úkraínu. Erlent 21. febrúar 2022 06:57
Rússar hættir við að hætta heræfingum í Hvíta-Rússlandi Rússar hafa hætt við að kalla hermenn sína í Hvíta-Rússlandi aftur heim til Rússlands og þess í stað fært þá nær norðanverðum landamærum Úkraínu. Spennan á svæðinu magnast sífellt og nú búast flestir við innrás Rússa inn í landið á næstu dögum. Erlent 20. febrúar 2022 19:35
Segir Pútín hyggja á mesta stríð Evrópu frá 1945 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sé að undirbúa mesta stríð Evrópu frá 1945. Þar að auki sé útlit fyrir að þær áætlanir séu þegar komnar af stað. Erlent 20. febrúar 2022 10:12
Innrás Rússa inn í Úkraínu gæti verið yfirvofandi Innrás Rússa inn í Úkraínu gæti verið yfirvofandi á næstu dögum og hefði hörmulegar afleiðingar, að mati leiðtoga sem sótt hafa öryggisráðstefnu í Munchen í dag. Íslenskur sérfræðingur segir ómögulegt að segja til um hvað Pútín ætli sér. Erlent 19. febrúar 2022 20:50
Hvetja Íslendinga í Úkraínu til að láta vita af sér Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur íslenska ríkisborgara sem eru í Úkraínu til að láta vita af sér. Ráðuneytið vekur athygli á því að vegna óvissunnar á svæðinu hafa nokkur flugfélög ákveðið að hætta að fljúga til og frá landinu eftir helgi. Innlent 19. febrúar 2022 16:55
Aðskilnaðarsinnar setja á almenna herkvaðningu Leiðtogar aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu, sem studdir eru af Rússlandi, hafa lýst yfir allsherjar herkvaðningu í Donetsk og Luhansk. Í gær tilkynntu þeir að almennir borgarar yrðu fluttir úr héruðunum og til Rússlands. Erlent 19. febrúar 2022 10:32
Sannfærður um að Pútín hafi ákveðið að ráðast inn í Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín þegar hafa ákveðið að gera frekari innrás í Úkraínu, meðal annars inn í höfuðborgina Kænugarð. Erlent 18. febrúar 2022 23:08
Blinken segir Vesturlönd standa saman hvað sem Putin geri Stjórnvöld í Rússlandi hvetja rússneskumælandi Úkraínumenn til að flýja austurhéruð landsins yfir til Rússlands og heita þeim stuðningi. Sendiherra Rússlands er vonsvikinn yfir því sem hann kallar einhliða stuðning forseta Íslands og utanríkisráðherra við málstað Úkraínu. Erlent 18. febrúar 2022 19:20
Leiðtogar aðskilnaðarsinna skipa borgurum að flýja til Rússlands Denisi Pushilin, leiðtogi aðskilnaðarsinna Donetsk í austurhluta Úkraínu, tilkynnti í dag að almennir borgarar héraðsins yrðu fluttir til Rússlands. Leiðtogar Lunhansk, hins héraðsins þar sem aðskilnaðarsinnar sem studdir eru af Rússum stjórna, hafa einnig tilkynnt að flytja eigi íbúa á brott. Erlent 18. febrúar 2022 15:35
Rússar æfa notkun kjarnorkuvopna Ráðamenn í Rússlandi tilkynntu í morgun að halda ætti umfangsmikla kjarnorkuvopnaæfingu þar í landi um helgina. Æfingarnar hefjast á morgun en samkvæmt yfirlýsingu frá Varnarmálaráðuneyti Rússlands munu þær meðal annars fela í sér að skjóta eldflaugum sem geta borið kjarnorkuvopn á loft. Erlent 18. febrúar 2022 12:03
Segja Rússa nær því að gera innrás í Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir enn líklegt að Rússar ætli sér að ráðast á Úkraínu og að það gæti gerst á næstu dögum. Þá segja Rússar að þeir neyðist til að bregðast við, verði kröfum þeirra ekki svarað, kröfum sem hefur þegar verið hafnað. Erlent 17. febrúar 2022 16:30
Saka hvora aðra um að brjóta gegn vopnahléi Stjórnarher Úkraínu segir aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins hafa skotið sprengjum að leikskóla. Aðskilnaðarsinnarnir, sem eru studdir af Rússlandi, segja stjórnarherinn hafa skotið sprengjum á þá fyrst. Erlent 17. febrúar 2022 12:05
Segja engin merki um að Rússar séu að draga sig til baka Háttsettur bandarískur embættismaður segir að fullyrðingar Rússa um að þeir hafi fækkað í herliði sínu við landamærin að Úkraínu séu rangar. Erlent 17. febrúar 2022 07:25
Sigurvegari úkraínsku söngvakeppninnar fer ekki í Eurovision Úkraínska ríkisútvarpið UA:PBC hefur hætt við að senda hina 28 ára gömlu Alinu Pash í Eurovision fyrir hönd Úkraínu. Söngkonan ferðaðist til Krímsskaga fyrir tæpum sjö árum síðan og ríkisútvarpið hafði ferðalagið sérstaklega til skoðunar. Lífið 16. febrúar 2022 19:58
Sjá ekki að Rússar fækki hermönnum Forsvarsmenn Atlantshafsbandalagsins segjast ekki sjá ummerki þess að Rússar séu að draga úr viðbúnaði við landamæri Úkraínu. Ráðamenn í Rússlandi segjast vera að fækka hermönnum á svæðinu en þeim yfirlýsingum hefur verið tekið með tortryggni. Erlent 16. febrúar 2022 12:59
Glugginn til innrásar muni líklega lokast í þessari viku Prófessor við Háskóla Íslands segir enn mikla óvissu um stöðu Rússlands og Úkraínu þrátt fyrir nýjustu yfirlýsingar Rússa. Glugginn til innrásar muni að öllum líkindum lokast í þessari viku en Rússar muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tapa ekki stöðu sinni. Erlent 16. febrúar 2022 07:00