

Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir ákvörðun matvælaráðherra um bann við hvalveiðum vera ólögmæta og hún fari gegn meðalhófsreglu. Samtökin líti ákvörðunina alvarlegum augum og hún vænti þess að málinu sé ekki lokið.
Efasemdir hafa vaknað um lögmæti ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að stöðva hvalveiðar. Þannig hefur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur efast um réttmæti hennar og sagt að hún standist mögulega ekki kröfur um meðalhófsreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur lýst samskonar efasemdum.
Paul Watson og samtök hans vilja kaupa hvalveiðiskip Hvals hf. og segja að það gæti orðið til hagsbóta fyrir báða aðila.
Dýraverndunarsamtökin Hard to Port og Whale and Dolphin Conservation hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þau kalla eftir því að stjórnvöld á Íslandi afturkalli heimild Hvals hf. til hvalveiða og komi í veg fyrir að bátar fyrirtækisins leggi úr höfn á morgun.
Landhelgisgæslan er meðvituð um ferðir skipsins John Paul Dejoria og kunnugt um þær yfirlýsingar sem áhöfn þess hefur gefið í fjölmiðlum, segir í skriflegu svari Gæslunnar við fyrirspurn fréttastofu.
Fagráð um velferð dýra hefur komist að þeirri niðurstöðu að sú veiðiaðferð sem beitt er við veiðar á stórhvelum samræmist ekki ákvæðum laga nr. 55/2013 um velferð dýra. Ekki sé hægt að uppfylla þau skilyrði sem nauðsynleg eru til að tryggja velferð dýra við aflífun.
Útgerðarfélagið Brim hf. hefur undirritað samning um 33 milljarða króna sambankalán til að endurfjármagna eldra lán.
Sveitarstjóri Strandabyggðar segir lokun rækjuvinnslunnar Hólmadrangs á Hólmavík högg af stærri gerðinni. Tuttugu starfsmönnum verður sagt upp.
Snæfell, sem er dótturfélag Samherja, hefur ákveðið að stöðva rækjuvinnslu Hólmadrangs á Hólmavík um næstu mánaðarmót. Tuttugu starfsmönnum verður sagt upp.
Fyrstu fjóra mánuði ársins drápust rúmlega 1,1 milljón eldislaxa í sjókvíum við Ísland. Það er um það bil 19-föld stærð villta íslenska laxastofnsins.
Ísfélagið, sameinað fyrirtæki Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma á Siglufirði, er verðmetið á liðlega 80 milljarða króna samkvæmt tillögu að heimild til endurkaupa sem verður lögð fram á hluthafafundi félagsins í vikunni. Hluthafar Ramma munu fara með tæplega þriðjungshlut í Ísfélaginu.
Ný ástandskýrsla Hafrannsóknarstofnunar var kynnt á föstudag. Fyrir utan dagsetninguna efst í hægra horninu er því miður ekkert nýtt að frétta í skýrslunni.
Í sjókvíum Arnarlax, dótturfélags norska sjókvíaeldisrisans SalMar, hefur undanfarnar fjórar vikur verið 22-sinnum meira af lús á eldislöxunum en móðurfélagið kemst upp með að láta viðgangast í sjókvíum við Noreg.
Hafrannsóknastof kynnti í morgun úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Aflamark fyrir á þriðja tug stofna er lagt til á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu. Meðal ráðlegginga er einnar prósentu hækkun á þorski og mikil hækkun á ýsu.
Fyrstu slátrun á laxi í landeldisstöð Landeldis hf. er lokið með slátrun tæplega fimmtíu þúsund laxa.
Íslenska ríkið hefur boðað áfrýjun í makrílmálinu, máli Vinnslustöðvarinnar og Hugins gegn íslenska ríkinu, en dómur féll í héraðsdómi í fyrradag. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir ríkið ekki hafa hafnað sátt í málinu.
Undanfarin ár hefur fjárfesting Reynis Traustasonar og lífsviðurværi sonar hans birt endalausar falsfréttir um Samherja og forstjóra félagsins. Nú þegar sitthvað er að koma í ljós um starfsaðferðir þar á bæ dustar Reynir rykið af lífseigasta bullinu um Gugguna á Ísafirði.
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segist í sjálfu sér vera ánægður með nýfallinn dóm en ríkið hefur verið dæmt til að greiða Vinnslustöðinni auk Hugins bætur vegna úthlutunar aflaheimilda á makríl á árunum 2011 til 2018. Það sé hins vegar ekkert gleðiefni að stjórnmálamenn hafi þverskallast við að fara að lögum.
Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða sjávarútvegsfyrirtækinu Vinnslustöðinni rúman milljarð króna í bætur vegna úthlutunar aflaheimilda á makríl á árunum 2011 og 2018. Vinnslustöðin og Huginn stefndu ríkinu en Vinnslustöðin keypti svo Huginn árið 2021 á meðan málsókninni stóð.
Sæll Kári Stefánsson og takk kærlega fyrir þitt hressilega innlegg í hátíðarhöld Sjómannadagsins. Þú hefur löngum haft lag á því að taka til máls með þeim hætti að fólk leggi við hlustir. Þess vegna var ádrepan þín í Grindavík ekki bara skemmtileg heldur góð brýning.
Matvælaráðuneytið og eftir atvikum Fiskistofa hafa ekki brugðist með viðunandi hætti við úrbótatillögum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2018 varðandi eftirlit stofnunarinnar með vigtun sjávarafla, brottkasti og samþjöppun aflaheimilda.
Nærsveitungi okkar kom með sporðaköstum og krafti og hreinlega sagði Seyðfirðingum að sjókvíaeldi kæmi í fjörðinn í september 2023. Honum var ekkert sérlega vel tekið, en hann kvaðst funda oftar og upplýsa okkur og taka samtalið við samfélagið og vinna með því.
Sjómenn verða að krefjast aðgangs að gögnum um íslenskan sjávarútveg og taka þátt í endurreisn hans. Þetta sagði Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar í ræðu sinni á sjómannadaginn í dag. Dapurlegt sé að sjómannastéttin hafi glatað þeim stað sem hún ætti að hafa í hjarta þjóðarinnar.
Bátasmiðir voru í dag að leggja lokahönd á fyrsta áttæringinn sem smíðaður hefur verið á Íslandi í meira en öld. Máttarviðir bátsins eru afrakstur íslenskrar skógræktar.
Færeyska heimastjórnin ætlar að takmarka aðgang rússneskra skipa að höfnum á eyjunum og banna viðgerðir á þeim nema í neyðartilfellum. Þá ætlar hún að ákveða það fyrir haustið hvort að umdeildur fiskveiðisamningur við Rússa verði framlengdur.
Umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins, LIFE, hefur veitt íslenska samstarfsverkefninu Terraforming LIFE styrk upp á tæpan milljarð króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum verkefnisins.
Eins og kunnugt er gaf matvælaráðherra út þá yfirlýsingu í upphafi ferils síns sem ráðherra sjávarútvegsins, að hún vildi með skipun stærstu nefndar sögunnar undir merki “Auðlindin okkar” stuðla að meiri samfélagslegri sátt um alla umgjörð sjávarútvegsins.
Ein af farsælustu ákvörðunum síðari ára til að efla sjávarbyggðir landsins var tilkoma strandveiða. Það voru mikilvæg og farsæl tímamót 25. júní 2009 þegar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra VG, Jón Bjarnason, undirritaði fyrstu reglugerðina um strandveiðar.
Strandveiðitímabilið hófst 2. maí sl. í fimmtánda sinn frá því strandveiðum var komið á í núverandi mynd. Einungis 10.000 tonn af þorski eru í strandveiðipottinum á veiðitímabilinu sem stendur í 48 daga frá maí til ágúst. Líklegt er að veiðum verði hætt fyrr og veiðidagar verði færri 48 vegna skorts á aflaheimildum. hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks nemur tæpum fimm prósentum.
Fyrirhugaður auðlindaskattur á laxeldi í Noregi lækkar úr 35 prósentum niður í 25 prósent, samkvæmt samkomulagi sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa náð við tvo smáflokka í því skyni að tryggja meirihlutastuðning við málið í Stórþinginu. Upphafleg tillaga gerði ráð fyrir að skatturinn yrði 40 prósent af hreinum hagnaði.