Skóla- og menntamál

Skóla- og menntamál

Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.

Fréttamynd

Stóreflum náms­efnis­gerð í ís­lenska skóla­kerfinu

Framlag til námsefnisgerðar hefur verið óviðunandi undanfarin ár. Í fjölmörgum námsgreinum í grunn- og framhaldsskóla er verið að notast við úrelt námsefni frá síðustu öld. Kennarar þurfa því að eyða miklum tíma í námsefnisgerð sem tekur tíma frá undirbúningi kennslu og öðrum störfum innan skólanna sem getur einnig leitt til mjög ólíkrar kennslu á milli skóla.

Skoðun
Fréttamynd

Hundrað milljarða lof­orð Dags

Dagur B. Eggertsson er kannski hættur að lofa borgarbúum leikskólaplássum fyrir 12 mánaða börn. Hann hefur nú fundið innistæðulausum loforðum sínum farveg á vettvangi Alþingis. Hann lofar því núna, bæði í ræðu og riti, að gangi Ísland í Evrópusambandið muni vextir á heimili landsins lækka um 100 milljarða á ári.

Skoðun
Fréttamynd

Ára­tuga fjár­svelti náms­gagna bitni á skóla­starfi á öllum stigum

Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna kallar eftir því að fjármagn verði aukið til framleiðslu námsgagna án tafar, að miðlæg námsgagnaveita verði sett á stofn og að staðan á námsgögnum verði kortlögð. Skólastarf eigi verulega undir högg að sækja á öllum skólastigum vegna skorts á námsgögnum. Íslensk börn standi ekki jafnfætis börnum á Norðurlöndum og alþjóðlegar mælingar á námsárangri staðfesti það.

Innlent
Fréttamynd

Al­ræmdur faðir stígur fram

Barnið mitt er í Vesturbæjarskóla. Við foreldrarnir lögðum fram þá ósk til skólastjórnenda að fá undanþágu fyrir barnið okkar frá kynfræðslu skólans sem er í samvinnu við Samtökin 78.

Skoðun
Fréttamynd

Árni skóla­meistari heldur em­bættinu

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Árna Ólason í embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Hann hefur sinnt embættinu undanfarin tíu ár en hann heyrði af því í útvarpinu nýverið að til stæði að auglýsa embættið

Innlent
Fréttamynd

Skipuð rektor MH fyrst kvenna

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð. Helga er fyrsta konan til að vera skipuð rektor MH. Helga hefur starfað við skólann í yfir 30 ár sem kennari, konrektor og nú síðast sem settur rektor.

Innlent
Fréttamynd

Þúsund ís­lensk ung­menni leggja undir sig Krít

Útlit er fyrir að rúmlega eitt þúsund íslenskir framhaldsskólanemar verði á grísku eynni Krít í byrjun júní. Stórt verkefni er að koma öllum til og frá eynni og þarf að nýta leiguflug til að ferja mannskapinn.

Innlent
Fréttamynd

Nem­endur í Seljaskóla graffa 56 metra lista­verk við skólann

Nemendur við Seljaskóla í Breiðholti hafa í allan vetur unnið að því að undirbúa nýtt 56 metra vegglistaverk á vegg við skólann. Nemendur hafa svo, með aðstoð foreldra, skólans og ýmissa íbúa, málað vegginn í vikunni og stefna á að ljúka verkinu á morgun á sumarhátíð skólans. 

Lífið
Fréttamynd

Hækka leigu stúdenta

Leigugrunnur íbúða og herbergja á Stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta mun hækka um 5,25 prósent frá og með 1. september næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

27 milljónir á mann (14.500 milljarðar)

Árangur barna í grunnskóla ræður miklu um þau tækifæri sem þau fá síðar á lífsleiðinni. PISA er alþjóðleg mæling á færni 15 ára nemenda sem er notuð til samanburðar á skólakerfum.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­þróun í tón­listar­námi á há­skóla­stigi á Ís­landi

Það eru spennandi tímar framundan í Tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Undanfarin misseri hefur staðið yfir endurskipulagning á bakkalárnámi deildarinnar. Ljóst var orðið að breytinga var þörf ef námið ætti að þróast til framtíðar í takt við þarfir nemenda og þá þróun sem á sér stað í tónlistarnámi á háskólastigi. Þar var sérstaklega horft til erlendra háskóla sem teljast leiðandi. Ráðist var í aðgerðir sem miða að því að skapa hnitmiðað og nútímalegt nám, með auknum möguleikum fyrir nemendur til að móta eigin námsferil, án þess þó að missa sjónar á kjarnanum í því námi sem þeir velja sér.

Skoðun
Fréttamynd

Sam­ræmd próf: Fyrir hvern?

Reglulega heyrist ákall um að taka aftur upp samræmd próf eins og þau voru: lokapróf til lokaeinkunnar í 10. bekk. Ég hef mínar efasemdir. Ég er ekki sannfærður um að þau séu nemendum fyrir bestu.

Skoðun
Fréttamynd

Frá­bær fjöl eða fúin?

Um þessar mundir eru þau sem ljúka framhaldsskóla að huga að næsta skrefi í lífinu. Kannski ætla einhverjir að koma til okkar á Menntavísindasvið í kennaranám. Eða hvað?

Skoðun
Fréttamynd

„Auð­vitað, við erum lang­besti flokkurinn“

Það er ekki bara kosið á morgun því nemendur í Dalskóla héldu kosningar í dag þar sem kosið var um stefnuskrár flokka sem nemendur höfðu stofnað. Meðal stefnumála var að hafa frítt í strætó auk kröfu um að nemendum væri kennt á lífið sem tekur við að skólagöngu lokinni.

Innlent
Fréttamynd

„Sam­fylkingin í Reykja­vík er kvenna­gildra“

Oddvitar í Reykjavík tókust á um leikskólamálin í kappræðum Sýnar á miðvikudaginn. Frambjóðendur voru fyrst beðnir um að svara því hvort Reykjavík stæði sig vel í leikskólamálum sem allir þeirra svöruðu neitandi.

Innlent
Fréttamynd

Skóla­starf til fyrir­myndar

Málefni leik-, grunn- og framhaldsskóla eru okkur í D-lista og annarra lýðræðissinna í Rangárþingi eystra hugleikin. Með öflugu, framsæknu og faglegu starfi á öllum skólastigum leggjum við sterkan grunn að framtíð barnanna okkar. Þar er auðvitað lykilatriði að huga vel að starfsumhverfi kennarra og annarra starfsmanna til að auðvelda þeim að takast á við það verkefni að kenna og leiðbeina þeim sem erfa munu landið.

Skoðun
Fréttamynd

Arn­dís Anna til Bifrastar

Háskólinn á Bifröst hefur ráðið Arndísi Önnu K. Gunnarsdóttur, fyrrverandi alþingismann, til starfa sem lektor við lagadeild háskólans.

Innlent
Fréttamynd

„Mean girls“-stemning í munn­legu prófi við HÍ

„Það eina sem ég get gert núna er bara að vara fólk við því að velja sér þennan áfanga af því að þetta er galið,“ segir Kristrún Svein­björns­dóttir sem ásamt 26 sam­nem­endum kærði munn­legt próf í upp­eldis- og menntunar­fræði við Háskóla Ís­lands vegna „mjög svo niður­lægjandi fram­komu kennara og próf­dómara“.

Innlent
Fréttamynd

Gjöld fyrir frí­stund rokið upp

Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Erum við að normalisera kulnun barna?

Það er djúpstæð mótsögn fólgin í því að samfélagið hefur loksins byrjað að viðurkenna áhrif langvarandi streitu, kulnunar og ofálags á fullorðið fólk, á sama tíma og við gerum sífellt meiri kröfur til barna um stöðuga frammistöðu, aukið námsálag og vinnu langt umfram það sem taugaþroski þeirra raunverulega ræður við.

Skoðun
Fréttamynd

Skýja­borgir skólaforystunnar

Ég átti nú alveg von á því að grein mín, Menntaforystan er að plata þig, myndi fá einhverja athygli en þau miklu og jákvæðu viðbrögð sem hún fékk, innan sem utan menntasamfélagsins, komu sannarlega á óvart. Þetta tel ég sýna hversu mikil þörf er á því að við tökum þessa umræðu, bæði um það sem má betur fara í skólakerfinu og hvernig menntaforystan hefur brugðist.

Skoðun
Fréttamynd

Sjö vilja em­bætti skóla­meistara FB

Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, er á meðal sjö umsækjenda um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Listi yfir umsækjendur hefur verið birtur á vefsíðu Stjórnarráðsins.

Innlent