„Leiðréttingin“ var snilldar áróðursbragð Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi fjármálaráðherra með meiru gerir upp hrunið og sér meðal annars ýmsa meinbugi við hina svokölluðu „Leiðréttingu“. Innlent 1. nóvember 2023 10:12
Aðgangur að námi hefur áhrif á búsetufrelsi Skólastarf hefur haft áhrif á þróun samfélaga um aldir og mun gera það um ókomin ár eins og endurspeglast í menntastefnu til 2030, en þar segir „Menntun er lykill að tækifærum framtíðar og eitt helsta hreyfiafl samfélaga og velsældar mannkyns.“ Þannig má álykta að samkeppnishæfni þjóða byggi á menntun og sama á við um samkeppnishæfni landshluta. Skoðun 1. nóvember 2023 10:01
Öld breytinga Við lifum á öld mikilla breytinga. Það loftslag sem við og forfeður okkar hafa upplifað er að ganga í gegnum örar breytingar sem ógna framtíð barna okkar. Tæknibyltingin er að gjörbreyta menntun og vinnumarkaði. Aukið nám- og atvinnufrelsi milli landa hefur leitt til þess að við búum í fjölmenningarsamfélagi þar sem fjórðungur þjóðarinnar er af erlendu bergi brotinn. Skoðun 1. nóvember 2023 10:01
„Hvert land verður að bera ábyrgð á atkvæði sínu“ Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, segir aldrei hafa komið til greina að sitja hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun Jórdaníu um vopnahlé á Gasa á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hann segir hverja Norðurlandaþjóð verða að taka ákvörðun fyrir sig. Þjóðirnar séu þegar á heildina er litið sammála. Erlent 31. október 2023 15:05
Um þrjú hundruð börn bíða heyrnarmælingar Ófremdaráastand ríkir hjá heyrnarskertum og heilbrigðiskerfið hafa sofið á verðinum að sögn forstjóra Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands. Tvö þúsund manns bíða nú þjónustu og þar af eru tæplega þrjú hundruð börn Innlent 31. október 2023 14:29
Aðstoðarmaður Ásmundar í tímabundið leyfi Sóley Ragnarsdóttir, aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar mennta- og barnamálaráðherra, fer í tímabundið leyfi frá störfum frá fyrsta nóvember. Leyfinu mun ljúka þann 30. apríl á næsta ári. Innlent 31. október 2023 13:52
Best að Bjarni og Katrín tali beint saman um tíma og klukkur Innviðaráðherra segir engan ágreining innan ríkisstjórnarinnar um afstöðu Íslands til átakanna á Gasa. Það sé hins vegar skynsamlegra í slíkum málum að heyra beint í hvort öðru. Utanríkisráðuneytið segist hafa látið forsætisráðuneytið vita fyrr af afstöðu Íslands í málinu en komið hefur fram í svörum forsætisráðherra. Innlent 31. október 2023 12:24
Freistar þess að koma breytingum á lögreglulögum í gegn Guðrún Hafsteinsdóttir, sem tók við sem dómsmálaráðherra af Jóni Gunnarssyni í sumarbyrjun, hefur birt drög að frumvarpi um breytingar á lögreglulögum í samráðsgátt til umsagnar en Jóni tókst ekki að koma þeim breytingum sem hann vildi gera á lögunum í gegn á síðasta þingi. Með breytingunum á lögreglan að fá auknar heimildir til að afla upplýsinga og viðhafa eftirlit. Innlent 31. október 2023 11:32
Valdníðsla framkvæmdavaldsins! Hver er raunveruleg staða eldra fólks á Íslandi í dag? 11 þúsund þeirra skrapa botninn og eru í neðstu þremur tekjutíundunum, þar af 6 þúsund í sárri fátækt. Hvað hefur verið gert til að taka utan um þennan þjóðfélagshóp? Nánast ekki neitt. Skoðun 31. október 2023 09:30
Í sveita síns andlits Bændur og samtök þeirra hafa að undanförnu dregið upp skýra mynd af óviðunandi afkomu stéttarinnar og erfiðleikum sem að steðja. Ástæðurnar eru nokkrar en einna helst er vikið að háu vaxtastigi og verðhækkunum á aðföngum. Skoðun 31. október 2023 08:30
Bjarni Guðnason er látinn Bjarni Guðnason, fyrrverandi alþingmaður og prófessor, er látinn. Hann lést síðastliðinn föstudag, 95 ára að aldri. Innlent 31. október 2023 08:06
Afbrotavarnir í þágu öruggs samfélags Skýrar vísbendingar hafa komið fram á síðustu árum um að umfang og eðli skipulagðrar brotastarfsemi hafi tekið verulegum breytingum hér á landi til hins verra. Hópar innlendra jafnt sem erlendra aðila hafa það að atvinnu að fremja fjölda afbrota með skipulegum hætti, þar á meðal alvarleg ofbeldisbrot, þjófnað, fjársvik, fíkniefnabrot og peningaþvætti. Skoðun 31. október 2023 07:32
Utanríkisráðuneytið birtir tímalínuna Utanríkisráðuneytið hefur birt nákvæma tímalínu yfir samskipti ráðuneyta og aðdraganda atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, þar sem greidd voru atkvæði um tillögu Jórdaníu um vopnahlé á Gasa. Forsætisráðuneytið fékk upplýsingar einum og hálfum klukkutíma eftir að afstaða utanríkisráðherra lá fyrir. Innlent 30. október 2023 19:52
Farsakennd atburðarás um atkvæðagreiðslu Forsætisráðherra barst tölvupóstur um ákvörðun um hjásetu Íslands í atkvæðagreiðslu um vopnahlé á Gasa, nokkrum mínútum áður en hún fór fram hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún segir að ekkert samráð hafi verið haft við sig. Utanríkisráðherra telur ferlið hefðbundið. Stjórnarandstaðan segir málið nærri fordæmalaust. Innlent 30. október 2023 19:01
Katrín fékk tölvupóst ellefu mínútum fyrir atkvæðagreiðsluna Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra barst tölvupóstur ellefu mínútum áður en atkvæðagreiðsla hófst hjá Sameinuðu þjóðunum um ástandið á Gaza-svæðinu. Hún segist ekki hafa séð póstinn fyrr en eftir að atkvæðagreiðsla hófst og ekki hafi verið óskað sérstaklega eftir afstöðu hennar til málsins. Innlent 30. október 2023 15:55
Bjarni segir ráðuneyti Katrínar hafa átt að vita allt um málið Mikill urgur er vegna þess hvernig atkvæði Íslands á vettvangi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna á föstudaginn var ráðstafað. Þar kaus Ísland að sitja hjá eins og lýð má ljóst vera. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra tala sitt á hvað um samráð. Innlent 30. október 2023 12:44
Ef þingflokksformaðurinn tæki niður frjálshyggjugleraugun Þó ekki væri nema bara af og til. Þá myndi blasa við honum að hugmyndir um að selja áfengi alls staðar allan sólarhringinn með heimsendingaþjónustu og tilheyrandi áfengisáróðri (auglýsingum) er ekki góð hugmynd. Skoðun 30. október 2023 11:30
Gyðingar hafi nú tekið að sér hlutverk böðulsins Sigurður Skúlason leikari hefur ritað pistil á Vísi sem hefur slegið í gegn. Þar gerir hann átökin fyrir botni miðjarðarhafs að umfjöllunarefni og kemst að þeirri niðurstöðu að hatur elur af sér hatur; ofbeldi fæðir af sér ofbeldi. Innlent 30. október 2023 11:22
Gríðarleg reiði í garð Katrínar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á í vök að verjast eftir atkvæðagreiðslu á vettvangi Allherjarþings Sameinuðu þjóðanna á föstudaginn. Innlent 30. október 2023 10:46
Bein útsending: „Reynslunni ríkari“ – málþing um skólamál Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþingi um skólamál í dag þar sem fjallað er um reynsluna að yfirfærslu grunnskóla frá ríkisins til sveitarfélaga. Málþingið hefst klukkan 9:30 og verður hægt að fylgjast með í spilara að neðan. Innlent 30. október 2023 09:00
Vilja að Kjósarhreppur verði ekki lengur kenndur við Mosfellsbæ Sjö þingmenn úr þremur flokkum hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar sem miðar að því að sveitarfélagið fái nýtt póstnúmer og verði ekki lengur kenndur við Mosfellsbæ. Íbúar í Kjósarhreppi hafa lengi kvartað yfir póstnúmerinu 276 Mosfellsbær og sagt það um árabil hafa valdið ruglingi. Innlent 30. október 2023 08:36
„Hvalir framleiða ekki súrefni“ Hafrannsóknarstofnun hefur skilað inn umsögn um frumvarp um bann við hvalveiðum þar sem stofnunin tekur ekki formlega afstöðu með eða á móti en gagnrýnir harðlega staðhæfingar í greinargerð með frumvarpinu. Innlent 30. október 2023 07:07
Leggur til fimm milljóna hámark í frumvarpi um sanngirnisbætur Lagt er til að fimm milljóna króna þak verði á sanngirnisbótum í frumvarpi sem forsætisráðherra stefnir á að leggja fyrir þingið í næstu viku. Hún segir verulegan fjölda geta leitað til nefndarinnar. Innlent 29. október 2023 23:17
Katrín ekki höfð með í ráðum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var ekki höfð með í ráðum þegar tekin var ákvörðun um að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu Jórdaníu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Hún segir að afstaða þingflokks VG sé skýr. Innlent 29. október 2023 21:12
„Ömurlegt að fylgjast með alþjóðasamfélaginu bregðast Ísraelsmönnum“ Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar, segir ömurlegt að fylgjast með alþjóðasamfélaginu bregðast Ísraelsmönnum. Hún segir hjáseta Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í samræmi við stefnur stjórnvalda. Fordæma eigi hryðjuverk Hamas en merki séu um að Ísraelar gangi of langt. Innlent 29. október 2023 21:01
Sérhæfð sjúkraþyrla og akstursleiðir skólabíla á Suðurlandi Sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi leggja mikla áherslu á að sérhæfðri sjúkraþyrlu verði komið fyrir á Suðurlandi og verði hluti af starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Þá skora sveitarstjórnarmenn á innviðaráðherra að allar akstursleiðir skólabíla verði bundnar slitlagi innan þriggja ára til að tryggja öryggi leik- og grunnskólabarna. Innlent 29. október 2023 13:30
Píratar kalla eftir afstöðu Alþingis Þingmenn Pírata ætla sé að leggja fram tillögu á Alþingi um að utanríkisráðherra eigi að kalla eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum á Gasaströndinni. Samkvæmt tillögunni á ríkisstjórnin einnig að fordæma árásir Ísraelshers á óbreytta borgara og borgaralega innviði Palestínu. Innlent 29. október 2023 07:57
Sameiningin samþykkt Sameining sveitarfélaganna Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar hefur verið samþykkt í báðum sveitarfélögum. Talningu lauk í kvöld og úrslit voru kynnt á ellefta tímanum. Innlent 28. október 2023 22:33
„Þref um texta og orðalag“ lítilvægt miðað aðstæður Formaður þingflokks VG furðar sig á því að fulltrúar Íslands í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun um vopnahlé á Gasa í gær. Innlent 28. október 2023 21:30
Heilbrigðisráðherra hrósar sjúkraflutningum á Suðurlandi Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi hafa farið í um þrjú þúsund útköll það sem af er árinu en tuttugu og fimm sjúkraflutningamenn ganga vaktir allan sólarhringinn á starfsstöðinni á Selfossi. Heilbrigðisráðherra sá ástæðu til að hrósa sjúkraflutningamönnum á Suðurlandi sérstaklega fyrir góð störf á fjölmennum opnum fundi. Innlent 28. október 2023 13:00