Ríkisstjórnin svínaði á eftirlaunafólki fimm ár í röð Í 62. gr. almannatryggingalaga stendur skýrum stöfum að greiðslur almannatrygginga skuli „taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.“ Skoðun 27. september 2023 17:01
Lýsir vonbrigðum og algerri andstöðu við aðgerðir ráðherra Samband íslenskra sveitarfélaga lýsir vonbrigðum og algerri andstöðu við aðgerðum félags- og vinnumarkaðsráðherra, varðandi aðstoð við útlendinga sem fengið hafa endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hér á landi. Innlent 27. september 2023 16:30
Segir lögin hafa verið alveg skýr um afdrif þjónustulausra hælisleitenda Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur samið við Rauða krossinn um að útlendingar, sem fengið hafa endanlega synjun um alþjóðlega vernd hér á landi og eiga ekki rétt á aðstoð, geti fengið gistingu og fæði í samræmi við það sem tíðkast í gistiskýlum fyrir heimilislausa. Ráðherra segist ánægður að engir í þessum hópi þurfi nú að sofa úti. Innlent 27. september 2023 12:01
Bandarískur sjóðastýringarrisi vill fjárfesta í Carbfix fyrir milljarða Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt að undirgangast tiltekna skilmála vegna tilboðs bandaríska sjóðastýringarfélagsins Stonepeak, einn stærsti innviðafjárfestir heims, um möguleg kaup á nýjum hlutum í fyrirtækinu Carbfix. Erlendir fjárfestar gætu lagt félaginu, sem hefur hannað tæknilausn sem bindur koltvísýring varanlega í bergi, til marga milljarða króna í aukið hlutafé til að standa straum að uppbyggingu þess á komandi árum. Innherji 27. september 2023 10:01
Stórtækar umbætur í fangelsismálum Framundan eru stórtækar umbætur í fangelsismálum hérlendis með það að markmiði að byggja upp fangelsi og fullnustukerfi sem sæmir nútímaþjóðfélagi, með bætt öryggi og aðstöðu til betrunar að leiðarljósi. Skoðun 27. september 2023 09:00
Samið um neyðaraðstoð við fólk sem hefur fengið endanlega synjun um vernd Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur gert samkomulag við Rauða krossinn á Íslandi um tímabundið verkefni sem felur í sér neyðaraðstoð við útlendinga sem fengið hafa endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hér á landi og eiga ekki rétt á aðstoð á grundvelli laga um útlendinga. Innlent 27. september 2023 08:48
Breytum um kúrs Það hefur verið áhugavert að fylgjast með umræðunni innan verkalýðshreyfingarinnar um þann mikla kostnað sem fylgir krónunni fyrir heimili landsins. Þetta hávaxtabrjálæði sem við búum við þýðir að fjölskyldur greiða sturlaða vexti fyrir það eitt að eignast þak yfir höfuðið. Miklu hærri en í nágrannalöndunum. Skoðun 27. september 2023 08:00
Eignaðist barn 14 ára: „Ég hafði misst röddina og hugrekkið til að tjá mig“ Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, var aðeins fjórtán ára gömul þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn. Hún hélt óléttunni leyndri í tæpa sjö mánuði og segist ekki hafa haft neinn þroska til að ráða við aðstæðurnar. Í dag sé hún þakklát fyrir að hún og sonur hennar hafi komist í gegnum þetta lifandi. Lífið 27. september 2023 08:00
Þurfum að aðlagast veðuröfgum: „Sorglegt en staðreynd“ Öfgakenndari úrkoma, fleiri skriður og aukin flóðahætta er meðal þess sem blasir við Íslendingum á næstu árum, segir sérfræðingur á Veðurstofu Íslands. Auka þarf rannsóknir og gera þær aðgengilegar svo allir geti skipulagt sig út frá breyttum veruleika. Innlent 26. september 2023 21:15
Freklega vegið að líffræðilegum fjölbreytileika Það viðrar ekki vel til fiskeldis þessa dagana. Hver fréttin rekur aðra af slysasleppingum úr kvíum, umhverfisslysum fiskeldisfyrirtækja! Skoðun 26. september 2023 16:31
Skorar á ríkisstjórnina að takast á við hinn raunverulega „brennuvarg“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gerði pistil Vilhjálms Birgissonar formann Starfsgreinasambandsins að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Innlent 26. september 2023 15:34
Bein útsending: Loftslagsþolið Ísland Stýrihópur sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði til að vinna tillögur fyrir gerð Landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum, hefur skilað tillögum sínum og verða þær kynntar á blaðamannafundi sem hefst klukkan 14:30. Innlent 26. september 2023 14:01
Lenya Rún og Siffi G nýtt par Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, og Sigurjón Guðjónsson rannsóknarsálfræðingur eru nýtt par. Lífið 26. september 2023 11:00
Eygló nýr formaður stjórnar Sjúkratrygginga Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Eygló Harðardóttur formann stjórnar Sjúkratrygginga Íslands og Guðmund Magnússon varaformann. Ný inn í stjórnina kemur einnig Ólafía B. Rafnsdóttir, fyrrverandi formaður VR. Innlent 26. september 2023 10:11
Vill vita hvers vegna skíðalyftan í Breiðholti var fjarlægð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, vill fá svör hvers vegna staurar fyrir skíðalyftu í Breiðholti hafa verið fjarlægðir. Hún segir samráð í málinu vera ekkert. Innlent 25. september 2023 16:29
Fyrsta skóflustungan að nýju hverfi á Akureyri Fyrsta skóflustungan að Móahverfi á Akureyri var tekin í morgun. Hverfið rís norðvestanmegin í bænum en gert er ráð fyrir um 1.100 íbúðum þar. Innlent 25. september 2023 15:17
Hálfleikur Í dag eru liðin slétt tvö ár frá Alþingiskosningum. Í þeim vann Framsókn frækinn kosningasigur sem skilaði flokknum 13 þingmönnum og tryggði áframhaldandi stjórnarsamstarf Framsóknar, Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og Sjálfstæðisflokks. Á þeim sex árum sem liðin eru hefur mikið mætt á íslensku samfélagi en um leið hefur mikið áunnist. Skoðun 25. september 2023 11:31
Burt með sjálftöku og spillingu Flokkur fólksins er með í mótun almennar framsæknar breytingar á úthlutunarreglum um sértæka byggðakvóta Byggðastofnunar. Tillögurnar munu setja fólkið í sjávarbyggðunum í fyrsta sæti og verða vítamínsprauta til að efla frumkvæði heimamanna. Við viljum aftengja þá undarlegu kröfu að forsenda samnings um úthlutun á veiðiheimildum sé aðkoma sykurpabba sem tilheyra kvótaaðlinum. Skoðun 25. september 2023 10:30
Sameining sveitarfélaga á endanum ákvörðun íbúa Sveitarfélagið Vogar útilokar ekki mögulega sameiningu við neinn að sögn bæjarstjóra. Nágrannasveitarfélögunum á Suðurnesjum verði sent formlegt erindi á næstu dögum um samtal en of snemmt sé að spá fyrir um það hvort samtalið muni leiða til breytinga. Innlent 24. september 2023 12:32
Lilja Hrönn kjörin forseti Ungs jafnaðarfólks Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, 22 ára laganemi og nemi í sjávarútvegsfræði var kjörin forseti Ungs Jafnaðarfólks í dag. Hún tekur við af Arnóri Heiðari Benónýssyni, kennaranema, sem hefur gegnt embættinu undanfarið ár. Innlent 23. september 2023 21:34
Vogar vilja ræða sameiningu og hin sveitarfélögin jákvæð Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum á miðvikudag að hefja samtal við nágrannasveitarfélög til að ræða mögulega sameiningarkosti. Bæjarstjórar Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar hafa tekið vel í frumkvæði Vogamanna. Innlent 23. september 2023 21:07
Óttast frekari vopnvæðingu þrátt fyrir skipun eftirlitshóps Dómsmálaráðherra hyggst skipa eftirlitshóp með rafbyssunotkun lögreglu. Þingmaður Pírata óttast meiri vopnavæðingu með innleiðingu rafbyssa hér á landi. Innlent 23. september 2023 20:07
Mikilvægt að fólk geti stigið fram og greint frá hatursorðræðu Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir afar áríðandi að rými sé í samfélaginu fyrir fólk til að greina frá hatursorðræðu og fordómum. Mikilvægt sé að skrá öll tilfelli og að brugðist sé við þeim. Innlent 23. september 2023 16:30
„Það skiptir engu máli hvar verkefnin eru unnin“ Dómsmálaráðherra tilkynnti í dag að hún myndi ekki leggja fram frumvarp um sameiningu sýslumannsembættanna á þessu þingi við mikinn fögnuð viðstaddra. Formaður sýslumannaráðs segir ákvörðun ráðherra mikið gleðiefni. Innlent 22. september 2023 23:15
Íslenska lögreglan kynnist rafbyssunum umdeildu Undirbúningur lögreglu fyrir komu rafbyssa er nú í fullum gangi undir handleiðslu erlendra sérfræðinga. Íslensk lögreglukona segir alveg nóg að prófa einu sinni að vera skotin og fá fimm sekúndna rafstraum úr vopninu. Innlent 22. september 2023 21:22
Hamingjan ræðst ekki af peningum Aldrei hafa færri verið hamingjusamir hér á landi og og andlegri heilsu þjóðarinnar hrakar stöðugt. Þá er ungt fólk kvíðnara og meira einmana en áður. Sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu segir samfélagið hafa einblínt um of á hagvöxt og tekjur, í stað velsældar og félagslegra tengsla. Innlent 22. september 2023 20:01
Ragnar telur Íslendinga ófæra um að stýra efnahagsmálum Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands hefur látið í ljós þá skoðun að vert sé að taka upp nýjan gjaldmiðil. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR er honum sammála. Innlent 22. september 2023 13:58
Sameining MA og VMA „ekki heillaskref í menntamálum á Íslandi“ Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir áform menntamálaráðherra um sameiningu MA og VMA ekki heillaskref fyrir íslenskt menntakerfi. Ólíkir skólar tryggi meiri fjölbreytileika fyrir nemendur á landsbyggðinni. Hann er mótfallinn sameiningunni. Innlent 22. september 2023 13:01
Hætt við sameiningu sýslumannsembættanna Dómsmálaráðherra er hættur við áform fyrri ráðherra um sameiningu sýslumannsembættanna. Fyrrverandi dómsmálaráðherra tilkynnti áformin fyrir ári síðan og voru þau afar umdeild. Innlent 22. september 2023 11:53
Stór orð en ekkert fjármagn Orð eru ódýr. Peningar hreyfa heiminn. Þessir frasar eru beinþýddir úr ensku en skiljast ósköp vel á íslensku. Á Íslandi situr ríkisstjórn sem notar gjarnan stór orð um fyrirætlanir sínar. En þegar rýnt er í fjárlög og fjármálaáætlun til að kanna hvað býr þar að baki þá finnst ekkert fjármagn. Skoðun 22. september 2023 09:00