

Tónlist
Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Eurovision fer fram í Malmö á næsta ári
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin í Malmö í suðurhluta Svíþjóðar í maí á næsta ári.

Birnir og GusGus með sumarteknósmell
Teknóhljómsveitin GusGus og rapparinn Birnir sameina krafta sína í nýju lagi, sannkölluðum sumartekósmelli, sem ber nafnið Eða?

Britney slegin í gólfið af öryggisverði Wembanyama
Britney Spears var slegin utan undir af öryggisverði með þeim afleiðingum að hún féll í jörðina þegar hún leitaðist eftir mynd með körfuboltamanninum Victor Wembanyama í Las Vegas í gær.

Dagur og Trudeau biðla til Taylor Swift
Tónlistarkonan Taylor Swift hefur að undanförnu verið á gífurlega vinsælu tónleikaferðalagi í Bandaríkjunum. Í síðasta mánuði tilkynnti Swift að stefna ferðalagsins væri sett út um allan heim en þó ekki til Íslands. Borgarstjóri Reykjavíkur hefur lagt sitt af mörkum í að sannfæra stjörnuna um að gera sér ferð til höfuðborgar Íslands.

Varð við bón aðdáanda og kýldi hann
Tónlistarmaðurinn Machine Gun Kelly kýldi aðdáanda sinn í andlitið á tónleikum á dögunum er hann var í miðju lagi. Það var þó ekki illa meint þar sem aðdáandinn bað hann um að kýla sig og var virkilega sáttur eftir höggið.

Söngkonan Coco Lee er látin
Bandaríska söngkonan og leikkonan Coco Lee, sem fæddist í Hong Kong og naut mikilla vinsælda í Asíu, er látin, 48 ára að aldri.

Mugison fer suður til þess að slaka á
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, hefur keypt sér hús á höfuðborgarsvæðinu. Því má segja að stofnandi tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður fari í raun iðulega suður.

Má ekki flytja lagið sitt og biður aðra um að gera það
Emmsjé Gauti segir viðtökurnar við þjóðhátíðarlaginu í ár hafa verið góðar. Það hafi þó ekki alltaf verið markmið að semja þjóðhátíðarlagið. Hann er spenntur fyrir því að frumflytja það í brekkunni í Vestmannaeyjum en ætlar þangað til að hlusta á annað fólk flytja lagið.

„Ég mana ykkur að kasta einhverju í mig“
Undanfarið virðist vera sem það sé að færast í aukana að ýmsum hlutum sé kastað í átt að tónlistarfólki á meðan það kemur fram á sviði. Tónlistarkonan Adele ræddi um þetta á tónleikum sínum og sendi aðdáendum sínum skilaboð.

Fer óhrædd inn í framtíðina
„Einhverjir hafa spurt mig hvort lagið fjalli um að vera foreldri og ég held að það sé að einhverju leyti rétt. Ég fékk allavega innblástur úr móðurhlutverkinu,“ segir tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, jafnan þekkt sem GDRN. Hún var að senda frá sér lagið Parísarhjól en lagið kom nýtt inn á Íslenska listann á FM í dag.

Einveran í æsku kveikjan að farsælum tónlistarferli
„Ætli ég sé ekki svolítið prívat manneskja. Það er þó ekki meðvitað hjá mér að vera svona prívat heldur er það bara algjörlega út frá einhverjum svona þægindaramma. Mér finnst athygli stundum óþægileg nema þegar að ég fer upp á svið með tónlistina, þá líður mér vel,“ segir tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir. Blaðamaður hitti hana í kaffi og ræddi við hana um listina, lífið og nýtt sóló efni.

Hætti sem málari og gerðist poppstjarna
„Ég hef alltaf haft trú á mér sem tónlistarmaður og lét til skara skriða þegar ég loksins öðlaðist kjark,“ segir tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel Kristmundsson. Hann ákvað að elta drauminn um poppstjörnuferilinn og sagði skilið við starfið sem málari.

Ekki ákærður vegna harmleiksins á tónleikunum
Rapparinn Travis Scott verður ekki ákærður fyrir aðkomu sína að því þegar tíu ungir tónleikagestir létust eftir troðning á tónlistarhátíðinni Astroworld, sem Scott hélt árið 2021.

Skiptu þrisvar um erindi
Ingi Þór Þórhallsson gaf á dögunum út sitt annað lag, sem heitir Þú. Lagið gaf hann út í samstarfi við Kristinn Óla Haraldsson, eða Króla eins og hann er gjarnan kallaður.

Langþráður draumur Röggu Hólm rættist
Langþráður draumur rapparans og plötusnúðarins Röggu Hólm rættist þegar hún sá átrúnaðargoðið og poppstjörnuna Beyoncé berum augum á tónleikum í borginni Varsjá í Póllandi í vikunni.

Gat ekki hætt að gráta eftir skilnaðinn
Bandaríska söngkonan og þáttastjórnandinn Kelly Clarkson segir skilnaðinn við fyrrverandi eiginmann sinn, Brandon Blackstock, hafa tekið á. Hún segist hafa þurft á þunglyndislyfjum að halda til að koma sér aftur á strik.

Ingó spilar á Goslokahátíð en ekki Þjóðhátíð
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, þekktur undir listamannsnafninu Ingó veðurguð, mun koma fram á Goslokahátíðinni í Vestmannaeyjum.

Húrra lokað: „Reykjavík er að verða ömurlega leiðinleg borg“
Eigandi tónleikastaðarins Húrra við Tryggvagötu í Reykjavík hefur lokað staðnum, að minnsta kosti tímabundið. Hann segir leiguna of háa en viðræður standi yfir við eigendur hússins. Hann segist óttast að Reykjavík stefni hraðbyri að því að verða einsleitari borg þar sem tónleikastaðir fái ekki þrifist.

Kaleo með góðgerðartónleika vegna harmleiksins í Svíþjóð
Meðlimir Kaleo hafa ákveðið að blása til góðgerðartónleika í kvöld þar sem hljómsveitin er stödd í Stokkhólmi til styrktar fjölskyldna þeirra sem lentu í rússíbanaslysi í skemmtigarðinum Gröna Lund um helgina þar sem einn lést og tíu slösuðust. Sveitin átti að koma fram í skemmtigarðinum í gær.

Lokaumferðin er hafin - Leitin að besta SS pylsulaginu
Nú geta lesendur Vísis valið besta nýja SS pylsulagið. Undanúrslitin í Skúrnum voru tilkynnt í lok maí þar sem lesendur Vísis og þriggja manna dómnefnd völdu Gunnar & Benedikt, Sprite Zero Klan og Sæborg áfram í keppninni um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu.

Tónleikum Lewis Capaldi í Höllinni aflýst
Tónleikum Lewis Capaldi 11. ágúst í Laugardalshöllinni hefur verið aflýst. Ástæðan er ákvörðun tónlistamannsins um að aflýsa öllum tónleikum sínum það sem eftir er árs til að hlúa að andlegri heilsu sinni.

Von á „gamla Drake“ og fyrsta ljóðabókin komin út
Fyrsta ljóðabók rappstjörnunnar Drake, Titlar eyðileggja allt, er komin út. Samhliða útgáfunni hyggst rapparinn gefa út plötu þar sem má heyra „gamla Drake“ rappa.

Tónleikar Lewis Capaldi hér á landi enn og aftur í lausu lofti
Það er ekki ljóst hvaða áhrif yfirlýsing Lewis Capaldi um pásu hans frá tónlist hefur á tónleika hans í Laugardalshöll 11. ágúst næstkomandi. Framkvæmdastjóri Senu Live segist ekki hafa heyrt frá teymi Lewis Capaldi og undirbúningur tónleikanna sé í fullum gangi. Í versta falli verði þeim frestað.

Jónas Friðrik Guðnason er látinn
Jónas Friðrik Guðnason, texta- og ljóðskáld frá Raufarhöfn, er látinn, 77 ára að aldri.

Öðlaðist von um að geta sigrað stríðið gegn ofsakvíðanum
„Lífinu sem ég hafði þekkt var kippt undan mér og ég þurfti að læra upp á nýtt að lifa með miklum kvíða og vanlíðan, sem var ákveðið áfall fyrir mig,“ segir tónlistarkonan Katrín Myrra. Hún sendi nýverið frá sér smáskífuna Skuggar og er þar að finna lagið Ljósið, sem var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 í dag. Blaðamaður ræddi við Katrínu um tengslin á milli tónlistarinnar hennar og tilverunnar.

Eftirminnilegast að koma fram í kjól frá Eivöru
Tónlistarmaðurinn, leiklistaneminn og lífskúnstnerinn Kristinn Óli Haraldsson, jafnan þekktur sem Króli, hefur gaman að margbreytileika tískunnar. Hann segist duglegur að fá föt af foreldrum sínum að láni og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til þeirra. Undanfarin ár hefur stíllinn hans breyst í það sem kalla mætti „fullorðinslegri“ átt og segist hann ekki vita hvort samfélagslegur þrýstingur spili þar inn í. Króli er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Örvæntingin um samþykki annarra var stöðugur eltingarleikur“
Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson reis úr þrettán ára dvala þegar hann gaf út lagið Ástin heldur vöku árið 2021. Hann segir mikla sjálfsvinnu hafi hjálpað honum að snúa blaðinu við í átt að betra lífi og hefur hann aldrei verið hamingjusamari.

Travis Scott á landinu
Bandaríski rapparinn Travis Scott er þessa dagana á Íslandi.

Minnast Árna Johnsen með hlýju: Bóngóður vinur sem sat aldrei auðum höndum
Árni Johnsen, þingmaður, tónlistarmaður og blaðamaður, var jarðsunginn í dag frá Landakirkju í Vestmannaeyjum. Samferðamenn hans í pólitík og öðrum störfum minnast hans með hlýju.

Prettyboitjokkó í fyrsta sinn á Þjóðhátíð
Þjóðhátíð í Eyjum er handan við hornið og hefur tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, þekktur sem Prettyboitjokkó, bæst í ört stækkandi hóp listamanna sem mun halda uppi stuðinu í Herjólfsdal í ár.