Rússland
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 99 ›
Kynntu fyrstu þjóðaröryggistefnu Þýskalands Olaf Scholz, kanslari Þýskalandi, opinberaði í dag nýja þjóðaröryggisstefnu ríkisstjórnar sinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Þjóðverjar setja sér stefnu sem þessa en er hann kynnti hana í morgun talaði Scholz um gerbreytt öryggisástand í Evrópu vegna innrásar Rússa í Úkraínu og sagði Rússland helstu ógnina sem Þýskaland stæði frammi fyrir. Erlent 14.6.2023 12:23
Segir Rússa hafa misst 54 skriðdreka á nokkrum dögum Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í skyn að hann myndi skipa rússneska hernum að ráðast aftur inn í norðurhluta Úkraínu. Hann hélt því fram að Úkraínumenn hefðu orðið fyrir gífurlegu mannfalli í gagnsókn þeirra, sem er nýhafin í suður- og austurhluta Úkraínu. Erlent 13.6.2023 17:15
Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu á Ísafirði Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í morgun. Innrás Rússa var til umræðu og ræddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra þá ákvörðun sína að leggja niður starfsemina í sendiráði Íslands í Moskvu sem tilkynnt var um í liðinni viku. Innlent 13.6.2023 15:33
Enn og aftur ráðist á opinbera vefi Netárásir voru gerðar í morgun á nokkra stjórnsýsluvefi, þar á meðal vef Alþingis, Stjórnarráðsins og Hæstaréttar. Forstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS segir sama hóp að baki árásunum og stóð að netárásum á meðan leiðtogafundur Evrópuráðsins fór fram í maí. Innlent 13.6.2023 11:28
Staðarráðnum starfsmönnum og leigunni sagt upp Fimm staðarráðnum starfsmönnum íslenska sendiráðsins í Moskvu verður sagt upp í samræmi við gildandi ráðningarsamninga. Þá er gert ráð að leigusamningum fyrir húsnæði sendiráðsins og sendiherrabústað verði sagt upp. Innlent 13.6.2023 07:54
Gerðu loftárás á heimabæ Selenskís Þrír létust og tuttugu og fimm særðust í loftárásum Rússa á úkraínska bæinn Kryvyi Rih í nótt. Erlent 13.6.2023 07:39
Segja að Rússar hafi sprengt aðra stíflu Úkraínumenn saka Rússa um að hafa sprengt aðra stíflu í landinu, í þetta sinn í Zaporizhzhia héraði. Erlent 12.6.2023 07:15
Segjast hafa endurheimt fyrstu þorpin Úkraínumenn segjast hafa endurheimt þrjú þorp í Dónetsk-héraði úr höndum Rússa. Úkraínuforseti staðfesti í gær að gagnsókn úkraínska hersins væri hafin. Erlent 11.6.2023 21:17
„Eins og að lenda á stálvegg“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í gær að gagnsókn Úkraínumanna væri hafin. Hann gaf lítið fyrir orð Valdimír Pútín, forseta Rússlands, um að gagnsóknin hefði engum árangri skilað og bað blaðamenn þess í stað um að koma því til Pútíns að úkraínskir herforingjar væru í góðu skapi þessa dagana. Erlent 11.6.2023 08:53
Segja ákvörðunina eiga eftir að eyðileggja allt samstarf Rússlands og Íslands And-rússneskum ákvörðunum íslenskra ráðamanna verður óhjákvæmilega svarað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem rússneska utanríkisráðuneytið birti í dag í kjölfar ákvörðunar Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur, utanríkisráðherra, um að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu, senda sendiherra Rússlands á Íslandi heim og draga þar með úr diplómatískum samskiptum ríkjanna. Innlent 10.6.2023 15:17
Rússneski sendiherrann verði farinn fyrir mánaðamót Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Innlent 9.6.2023 19:21
Hvetur önnur ríki til að fara að fordæmi Íslendinga Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sendi í dag þakkir til Þórdísar Kolbrúnu R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra Íslands. Það gerði hann vegna ákvörðunar Íslendinga að leggja niður starfsemi í sendiráðinu í Rússlandi og krefjast þess að Rússar takmarki umsvif sín hér á landi. Erlent 9.6.2023 13:50
Forsendur gjörbreyttar og tengslin nánast engin „Staðreyndin er bara sú að forsendur fyrir því að reka starfsemi í Moskvu eru gjörbreyttar,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, sem hefur ákveðið að leggja niður starfsemi íslenska sendiráðsins í Moskvu. Starfsemi rússneska sendiráðisins hér verður takmörkuð og sendiherrann fer heim. Innlent 9.6.2023 13:16
Rússneskum manni banað af hákarli í Rauðahafi Rússneskur maður lést í gær eftir að tígrishákarl réðst á hann undan ströndum Hurghada í Egyptalandi. Hákarlinn réðst á manninn skammt frá landi og stóðu ferðamenn á bakkanum og horfðu á árásina. Erlent 9.6.2023 11:28
Loka sendiráðinu í Moskvu og takmarka umsvif Rússa hérlendis Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu frá 1. ágúst næstkomandi. Þá hefur sendiherra Rússlands hér á landi verið tjáð að gert sé ráð fyrir að Rússland minnki fyrirsvar sitt þannig að sendiherra stýri ekki lengur sendiráði Rússlands í Reykjavík. Sömuleiðis hefur Rússlandi verið gert að lágmarka starfsemi sendiráðsins á Íslandi til samræmis við þessa ákvörðun. Innlent 9.6.2023 11:12
„Það er enn engin hjálp“ Fólk sem situr fast í húsum á austurbakka Dnipróár í Úkraínu segir litla hjálp berast frá Rússum. Fólk sem hefur reynt að koma öðrum til bjargar segist hafa lent í því að rússneskir hermenn taki báta þeirra. Aðrir segja að hermennirnir hjálpi ekki fólki nema þau hafi rússnesk vegabréf. Erlent 9.6.2023 10:34
Yana mótmælir ein í rigningunni innrás Rússa í heimalandið Á sama tíma og nokkrir þingmenn koma í veg fyrir áframhaldandi undanþágur á tollum á innfluttum kjúklingi frá Úkraínu, stendur Yana Hryshko frá Kyiv héraði alein í rigningunni og mótmælir fyrir utan ræðisskrifstofu Rússlands við Túngötu. Hún óskar þess heitast að stríðinu ljúki og hún komist aftur heim. Innlent 8.6.2023 20:31
Fönguðu eyðilegginguna í Kherson úr lofti Drónamyndir frá Kherson-héraði í Úkraínu, bæði vestan og austan megin við Dnipróá, sýna gífurlega eyðileggingu vegna flóða. Vatn hefur streymt yfir fjölmargar byggðir og valdið gífurlegri eyðileggingu. Erlent 8.6.2023 14:45
Hlébarðarnir sjást í fyrsta sinn á víglínunum Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmiklar árásir gegn Rússum í Sapórisjía-héraði en þýskir skriðdrekar af gerðinni Leopard hafa sést á víglínunum í fyrsta sinn. Erlent 8.6.2023 10:43
Stór sprenging inni í stíflunni líklegasta orsökin Líklegasta ástæða þess að Kakhovka-stíflan í Kherson-héraði í Úkraínu brast, er að miklu magni sprengiefna hafi verið komið fyrir inni í stíflunni og hún sprengd. Aðrar ástæður eins og eldflaugaárás og mikið álag eru mögulegar en mun ólíklegri. Erlent 7.6.2023 11:30
Eyðilegging stíflunnar hefur alvarleg áhrif á líf fjölda fólks til framtíðar Alls hafa um fjörutíu þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín eftir að Kakhovka stíflan í Úkraínu brast í fyrrinótt. Erlent 7.6.2023 07:48
Árás á stífluna „umhverfislegt gjöreyðingarvopn“ Úkraínuforseti hefur sakað Rússa um að hafa sprengt stíflu í Kherson-héraði af ásettu ráði og segir þá hafa beitt „umhverfislegu gjöreyðingarvopni“ og framið stríðsglæp. Erlent 6.6.2023 23:05
Vissu af áætlun Úkraínumanna um árás á Nord Stream Yfirvöld í Bandaríkjunum fengu í júní í fyrra upplýsingar frá evrópskri leyniþjónustu um að Úkraínumenn hefðu skipulagt árás á Nord Stream gasleiðslurnar. Þremur mánuðum síðar, eða þann 22. september, sprungu sprengjur við Nord Stream 1 og 2 en skemmdarverkinu hefur verið lýst sem bíræfni árás á orkuinnviði Evrópu. Erlent 6.6.2023 16:48
Einn alræmdasti njósnari í sögu Bandaríkjanna látinn Robert Hanssen, fyrrverandi alríkislögreglumaður sem þáði mútur fyrir að njósna um Bandaríkin fyrir Rússa, er látinn í fangelsi. Hann er meðal annars talinn hafa verið ábyrgur að hluta til á dauða þriggja sovéskra embættismanna sem njósnuðu fyrir Bandaríkjamenn. Erlent 6.6.2023 11:01
Yfirborð uppistöðulónsins var í methæðum Raforkuverið við Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson er ónýtt eins og stíflan og er útlit fyrir að sprenging hafi valdið skemmdunum. Íbúar segjast hafa heyrt sprengingar en enn hefur ekki verið staðfest hvað olli því að stíflan brast. Yfirborð uppistöðulónsins hafði hækkað mjög að undanförnu og stóð í methæðum. Erlent 6.6.2023 10:46
Unnið að rýmingu og Selenskí boðar til neyðarfundar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur boðað til neyðarfundar vegna eyðileggingar Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson. Unnið er að rýmingu vegna flóðahættu. Úkraínuher segir Rússa hafa sprengt stífluna en leppstjórn þeirra á svæðinu segir um hryðjuverk að ræða. Erlent 6.6.2023 06:19
Er gagnsókn Úkraínumanna hafin? Úkraínumenn eru byrjaðir að gera árásir í suðausturhluta Úkraínu. Fregnir hafa borist af tiltölulega smáum árásum í Dónetsk- og Sapórisjía-héruðum og eru Úkraínumenn sagðir hafa náð einhverjum árangri. Erfitt er þó að sannreyna fregnirnar að svo stöddu. Erlent 5.6.2023 14:54
Málaliðar Wagner handsömuðu og börðu rússneskan ofursta Málaliðar Wagner Group lentu á dögunum í skotbardaga við rússneska hermenn nærri Bakhmut. Bardaginn endaði með því að málaliðarnir handsömuðu rússneskan undirofursta, börðu hann og þvinguðu hann til að játa að hafa skipað mönnum sínum að skjóta á málaliðana. Erlent 5.6.2023 12:45
Rússar segjast hafa fellt 250 úkraínska hermenn Rússar segjast hafa hrundið stórri gagnárás úkraínska hersins í Donetsk í nótt og fullyrða að 250 úkraínskir hermenn liggi í valnum og að fjölmörg brynvarin tæki hafi verið eyðilögð. Erlent 5.6.2023 07:37
Úkraínumenn þjarma að Wagner-lausum Rússum í Bakhmut Úkraínski herinn þjarmar að Rússum við og í kringum borgina Bakhmut. Rússar lýstu sig sigurvegara í baráttunni um Bakhmut í síðasta mánuði eftir ein blóðugust átökin frá upphafi innrásarinnar. Þrýstingur Úkraínumanna er hluti af gagnsókn sem er að taka á sig mynd. Erlent 4.6.2023 08:09