Kúba

Kúba

Höfuðborg: Havana. Mannfjöldi: 11,0 milljónir (2025). Flatarmál: 109.884 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gefa út öryggisviðvörun vegna mót­mæla

Bandaríska sendiráðið á Íslandi hefur gefið út sérstaka öryggisviðvörun vegna fyrirhugaðra mótmæla vinafélags Íslands og Kúbu fyrir utan húsnæði þeirra. Sendiráðinu verður lokað snemma.

Innlent
Fréttamynd

For­seti Kúbu segir við­ræður við Trump-liða eiga sér stað

Forseti Kúbu segir ríkisstjórn landsins eiga í viðræðum við ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum. Þessum viðræðum sé ætlað að bæta samskipti ríkjanna og finna lausnir á því hvernig þau geti unnið saman. Bandaríkjamenn hafa komið í veg fyrir olíuflutninga til Kúbu og hefur verulega slæmt efnahagsástand þar versnað til muna.

Erlent
Fréttamynd

Segir Kúbu brátt munu falla

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa verið „geld“ og að hann vilji að ný forrusta landsins komi vel fram við Bandaríkin og Ísrael, jafnvel þó það yrði ekki lýðræðisríki. Þá segir hann Kúbu brátt munu falla.

Erlent
Fréttamynd

Veiktist er hann reyndi að af­sanna Havana-heilkennið

Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki.

Erlent
Fréttamynd

Kúba og sviftingar í heims­málunum

Það hefur ekki farið hátt hér á landi að um síðustu mánaðarmót gaf Donald Trump fyrirmæli þar sem kveðið er á um refsingar gagnvart þeim þjóðum sem selja eða útvega Kúbu olíu.

Skoðun
Fréttamynd

Havana-heil­kennið heldur á­fram að kveikja sam­særis­kenningar

Þrátt fyrir umfangsmiklar rannsóknir og fjölda opinberra skýrslna hefur ekki enn tekist að ráða gátuna um hið svokallaða Havana-heilkenni. Hundruð starfsmanna í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna hafa lýst lamandi svima, nístandi höfuðverk, suði í eyrum og minnistruflunum. Málið er enn óleyst ráðgáta sem heldur áfram að næra sögur um dularfull vopn og leynilegar tilraunir stórvelda.

Lífið
Fréttamynd

Keyptu tæki sem gæti út­skýrt Havana-heilkennið

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur í rúmt ár gert tilraunir á tæki sem gæti hafa verið notað til að framkalla Havana-heilkennið svokallaða. Bandarískir njósnarar eru sagðir hafa keypt tækið í leynilegri aðgerð fyrir milljónir dala í lok ríkisstjórnar Joes Biden en menn munu ekki vera sammála um hvort það virki eða tengist heilkenninu.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert nema hégómi hjá Trump að vilja setja banda­ríska fánann á Græn­land

Erlingur Er­lings­son hernaðar­sagn­fræðingur segir allar yfir­lýsingar Donald Trump, for­seta Bandaríkjanna, um Græn­land og Venesúela fjar­stæðu­kenndar og for­sendur hans líka. Hann segir að frá her­fræði­legu sjónar­miði sé í raun ein­falt fyrir Bandaríkin að taka Græn­land, og þau gætu gert það, ef þau vildu, í dag. Það sé þó alls ekki nauð­syn­legt og í raun aðeins hégómi „gamla fast­eigna­bra­skarans frá New York“ að vilja það.

Innlent
Fréttamynd

Í­trekaðar í­hlutanir í „bak­garði“ Banda­ríkjanna

Árás Bandaríkjastjórnar á Venesúela um helgina var fyrsta hernaðaraðgerð hennar í Rómönsku Ameríku á þessari öld. Bandaríkin eiga sér hins vegar aldalanga sögu íhlutana í heimshluta sem þarlendir ráðamenn hafa oft skilgreint sem „bakgarð“ þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Fordæmalaus eyði­legging vegna Melissu

Sameinuðu þjóðirnar segja að fellibylurinn Melissa hafi valdið fordæmalausri eyðileggingu á Jamaíku og hafa kallað eftir aðstoð handa eyríkinu. Fellibylurinn, sem þykir einn þeirra öflugustu á Karíbahafinu í mannaminnum, lék íbúa á Kúbú og Haítí einnig grátt.

Erlent
Fréttamynd

Búast við ham­förum vegna Melissu

Fellibylurinn Melissa náði í morgun landi á Jamaíka í Karíbahafinu og er óttast að hann muni valda gífurlegum usla og tjóni þar. Melissa er fimmta stigs fellibylur og sá öflugasti sem skráður hefur verið ná landi á eyríkinu fátæka og er búist við því að auga óveðursins fari þvert yfir eyjuna í dag.

Erlent
Fréttamynd

Slíta sam­bandinu en vinna á­fram saman

Hollywood-stjörnurnar Tom Cruise og Ana de Armas eru hætt saman eftir átta mánaða samband. Neistarnir hafi verið horfnir og því best að segja það gott. Þau verði áfram vinir og samstarfsfélagar í neðansjávar-spennutrylli.

Lífið
Fréttamynd

Undir­búa flutning þúsunda til Guantánamo

Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, er byrjuð að undirbúa mögulegan flutning þúsunda erlendra manna sem eru í Bandaríkjunum ólöglega til Guantánamo á Kúbu. Meðal þeirra sem til stendur að senda eru hundruð manna frá Evrópuríkjum eins og Bretlandi, Ítalíu, Frakklandi, Þýskalandi og stendur ekki til að láta yfirvöld þar vita.

Erlent
Fréttamynd

Stefna á víð­tækar ferðatakmarkanir

Stjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, stefnir á að gefa út víðtækar ferðatakmarkanir fyrir ríkisborgara 43 landa. Löndunum er skipt í þrjú stig en ríkisborgum ellefu landa verður alfarið bannað að ferðast til Bandaríkjanna.

Erlent