Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Tveir bandarískir hagfræðingar hlutu hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar fyrir að framlag þeirra til bættra hagstjórnartækja samtímans. Þeir lögðu rekstrarhagfræði til grundvallar þjóðarhagfræðilegra líkana sem eru sögð hafa hjálpað til við peninga- og fjármálastefnu og dregið úr sveiflum. Erlent 12.10.2026 10:01
Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi. Viðskipti erlent 12.10.2026 08:45
Fær aukadag til stjórnarmyndunar Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð, fær einn aukadag til stjórnarmyndunarviðræðna en hún átti upphaflega að skila skýrslu til forseta þingsins á morgun. Erlent 11.10.2026 17:47
Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði. Erlent 6. október 2026 09:15
Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Sænska vísindaakademían hefur veitt þeim Karl Deisseroth, Peter Hegemann og Georg Nagel Nóbelsverðlaun í lífeðlis- og læknisfræði í ár. Þeir hljóta verðlaunin fyrir uppgötvanir sínar á ljósstýrðum jónagöngum og ljósörvun. Erlent 5. október 2026 09:39
Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. Erlent 5. október 2026 09:02
Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna að íslenskir karlmenn hafi íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum er viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag að mati doktorsnema sem kallar eftir viðbrögðum. Innlent 3. október 2026 14:17
Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð fær stjórnarmyndunarumboðið á ný eftir að hafa skilað því fyrr í vikunni. Forseti sænska þingsins tilkynnti á blaðamannafundi í morgun að Andersson fái viku frá og með mánudegi til að reyna að mynda starfhæfa ríkisstjórn. Erlent 2. október 2026 09:40
Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Íslenskir karlmenn hafa íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á Norðurlöndum samkvæmt nýrri rannsókn. Doktorsnemi segir niðurstöðurnar sláandi og sérstaklega komi á óvart að mun fleiri íslenskir karlar en norrænir telji að hægt sé að leysa úr ágreiningi með ofbeldi. Svör þeirra skera sig einnig úr þegar kemur að spurningum um lýðræði. Innlent 2. október 2026 06:02
Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum. Erlent 29. september 2026 22:43
Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Andreas Norlén, þingmaður hægriflokksins Moderaterna, var í gær endurkjörinn sem forseti sænska þingsins. Norlén fundar á morgun með formönnum flokka til að afhenda nýjum leiðtoga stjórnarmyndunarumboðið. Erlent 29. september 2026 07:25
Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun til vinstri eftir að Vinstriflokkurinn á sænska þinginu hafnaði tillögu Jafnaðarmanna að þingforseta. Þess í stað ákvað flokkurinn að styðja tillögu hægriflokka að þingforseta. Erlent 28. september 2026 08:03
Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Heart Aerospace, fyrirtæki sænska frumkvöðulsins Anders Forslund, hefur kynnt breytta hönnun tvinn-rafmagnsflugvélar sinnar. Núna er fyrirhugað að hún verði með 36 farþegasæti og tuttugu prósentum meiri burðargetu en hin 30 sæta ES-30 flugvél sem áður var stefnt að og Icelandair hafði skráð sig fyrir. Erlent 26. september 2026 22:33
Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Formaður Vinstriflokksins í Svíþjóð telur að rannsókn á kosningasvindli sem gagnaðist nýkjörnum þingmanni flokksins hafi ekki áhrif á stjórnarmyndunarviðræður. Þetta er í fyrsta skipti sem formaðurinn tjáir sig um rannsóknina. Erlent 24. september 2026 08:48
„Þetta snýst um líf og dauða“ Sænsk-samíska kvikmyndagerðarkonan Amanda Kernell er meðal erlendra gesta Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík (RIFF). Hún kemur til landsins beint frá Toronto eftir heimsfrumsýningu á nýjustu kvikmynd sinni Með frost í hjarta þar sem hún fékk dómnefndarverðlaun. Aðspurð segir hún að þó umfjöllunarefnið sé nýtt hverju sinni þá tengi dramatískir þræðir myndir sínar; leyndarmál innan fjölskyldunnar, og konur sem taka róttækar ákvarðanir koma oftar en ekki við sögu. Bíó og sjónvarp 23. september 2026 20:04
Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Þingmaður Vinstriflokksins í Svíþjóð sem virðist hafa notið góðs af kosningasvindli segist ætla í leyfi á meðan lögregla rannsakar málið. Hann segist ekki hafa komið nálægt svindli og engar upplýsingar hafa enn bendlað hann persónulega við það. Erlent 22. september 2026 14:28
Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Sænsk yfirvöld rannsaka nú meint kosningasvindl eftir að kæra barst yfirvöldum í kjölfar þingkosninganna í Svíþjóð þann 13. september síðastliðinn. Frambjóðandi Vinstriflokksins er meðal annars sakaður um að hafa borgað fólki fyrir að merkja við sig á kjörseðlinum. Erlent 22. september 2026 07:37
Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Fimmtungur íslenskra ungmenna á aldrinum fimmtán til nítján ára drekkur orkudrykk einu sinni á dag eða oftar. 36 prósent drekka orkudrykk vikulega eða oftar. Töluvert fleiri íslensk ungmenni drekka aldrei orkudrykk en ungmenni á öðrum Norðurlöndum. Innlent 22. september 2026 06:41
Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Átján ára piltur hefur verið dæmdur til tíu ára fangelsis í dómstóli í Umeå í Svíþjóð fyrir tvær tilraunir til manndráps gegn ungmenni í Þýskalandi og fjölmörg kynferðis- og ofbeldisbrot gegn ástralskri stúlku. Brotin áttu sér stað á netinu og pilturinn hefur verið kallaður „Chai“ í sænskum miðlum og var hluti af glæpahópnum 764. Erlent 19. september 2026 09:35
Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Magdalena Andersson, leiðtogi Sósíaldemókrata í Svíþjóð, hefur fengið umboð til þess að mynda nýja ríkisstjórn Svía eftir að flokkurinn sigraði í þingkosningum um síðustu helgi. Ulf Kristersson sagði af sér sem forsætisráðherra í gær. Erlent 18. september 2026 15:43
Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Leiðtogi fjarhægriflokksins Svíþjóðardemókrata heldur því fram að velgengni Vinstriflokksins í þingkosningum um síðustu helgi hafi verið vegna „íslamista“. Svíþjóðardemókratar töpuðu fylgi í fyrsta skipti. Erlent 18. september 2026 10:49
Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna, segist vilja fara með Svíþjóð í nýja átt sem kjósendur völdu í kosningum um helgina. Hún leggur áherslu á loftslags-, mennta-, heilbrigðis- og öldrunarmál. Erlent 17. september 2026 14:24
Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin Sigur stjórnarandstöðunnar í Svíþjóð var endanlega staðfestur þegar lokið var við að telja öll atkvæði í dag. Ulf Kristersson, forsætisráðherra, tilkynnti um afsögn sína í kjölfarið. Erlent 17. september 2026 11:39
Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Fulltrúar Interpol handtóku Ali Namdar, einn leiðtoga Foxtrot-glæpasamtakanna í Svíþjóð, í Marokkó í gær. Hann er grunaður um að hafa lagt á ráðin um fjölda ofbeldisverka, þar á meðal sprengju- og skotárásir á Norðurlöndunum. Erlent 17. september 2026 09:32